Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Side 26

Skessuhorn - 18.12.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201926 Með fyrsta sunnudegi í jólaföstu hófst nýtt kirkjuár. Þann dag tendruðu margir ljós á spádóms- kerti aðventukransins í hýbýlun- um. Það er fræðandi, hjálpar til við að lesa í menningu og sið og eykur skilning að kynna sér og kunna táknmálið, sem er marg- víslegt, tengt kristinni trú. Þær fjórar vikur sem aðventan spann- ar marka upphaf kirkjuársins. Í upphafi kirkjuárs gefur gjarn- an að líta hinn fjólubláa lit sem á táknmálinu hangir við hugtök- in íhugun, iðrun og yfirbót. Spá- dómskertið fær að loga á krans- inum og verið er að segja sögu. Í ritum Gamla testamentisins var spáð fyrir um komu Jesú hins upprisna frelsara okkar og Drott- ins. Við erum minnt á að Jesús fæddist í borginni Betlehem og hafandi ljós þess kertis fyrir aug- um, þá skyldum við hnikkja á því sem Jesú sagði: „Ég er ljós heims- ins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins.“ Spurt er - fær Jesús Krist- ur að vera leiðtoginn eða stjórinn í lífi okkar? Hversu vel þekkjum við lífsstílinn sem hann kenndi? Hvar eru að finna upplýsingar um hinn kristna lífsstíl? Og þriðja kerti kransins, Hirðakertið, lýsir skært ásamt með hinum fyrri. Til- urð þess kertis skyldi hvetja okk- ur til að boða trúna, vera ófeimin við að fara og segja öðrum frá því sem Jesús kenndi og sagði, fræða þann sem ekki veit. Fjárhirðarn- ir í sögunni fóru og sögðu frá eft- ir að þeir höfðu farið til Betlehem að sjá hið nýfædda barn, sem boða myndi mikinn fögnuð. Þau und- ursamlegu fagnaðartíðindi eru að Jesús var algóður maður, hann var Guð fæddur meðal mannanna. Boðskapur hans var kærleiksboð- skapur fyrst og fremst. Guð vill þér, lesandi góður, allt gott, vill að ljósið sem innra með þér er lýsi í veröldinni, að þú finn- ir þig æfinlega sólarmegin í líf- inu og að engum megi takast að slökkva með nokkrum hætti birt- una sem frá þér stafar. Og veljir þú fagnaðarboðskapinn, þ.e.a.s. trúir og treystir hinum frelsandi fagnaðarboðskap Jesú, sem sjálfur sagðist vera ljós heimsins, þá lýs- ir verun þín, orð þitt og æði, birtu hins himneska ljóss sem saga að- ventukransins leiðir þig til. Hið sama gildir um mig og ég trúi og treysti að kraftur Guðs sé að verki í mínu lífi. Kraftur Guðs er hinn heilagi andi. Sem maður sagðist Jesús mundu fara, en sagði jafnframt hann myndi vera, vera hjá mannfólki hér á jörð. Þann- ig er hin þríeina trú okkar krist- inna manna; hún samanstendur af Guði (eða Alheimsmóðuralls, orð sem mér er stundum tamt að nota í stað Guð), Jesú og hinum heil- aga anda. Það er í krafti andans sem Jesús er hjá okkur hér og nú. Hann er heilarinn, huggarinn. Íhugum farinn veg á kirkjuárinu Við skulum leyfa ljósi Jesú Krists, að lýsa í sál og sinni nú á þess- arri jólaföstu, að við svo að end- ingu tendrum loga Englakertis- ins á aðventukransi híbýlanna, en englarnir eru jú sendiboðar Guðs. Þeir boða frelsi og frið á jörð. Verum þakklát þegar öll fjögur kerti aðventukransins hafa sagt okkur sögu, sögu sem tendrar ljós í myrkri hér á norðurhveli jarðar og birtan frá þeirri sögu verður skærust rétt tveimur sólarhring- um fyrir upphaf jólahátíðarinnar nú á þessu ári. Fram að því skul- um við íhuga farinn veg á kirkju- árinu, horfa inn í hinn dulmagn- aða fjólubláa lit og spyrja. Á ég eitthvað eftir óuppgert t.d. í sam- skiptum frá umliðnu kirkjuári, nú eða hef ég svikið sjálfan mig / sjálfa mig hvað snertir ásetning og áform á árinu? Er fyrirgefningar þörf; að fyrirgefa sjálfum sér eða öðrum? Spyrja - vilt þú góði Guð fyrirgefa mér misgjörðir mínar á árinu? Og hið dásamlega undur gerist, táknrænt og í raunverunni að Kristur sjálfur kemur til þín, en bara vegna þess að þú vilt það lesandi kær. Við vel flest veljum að hafa jólatréð, meira að segja í miðri stofunni hjá okkur, jólatréð sem á táknmáli kristinnar trúar táknar Jesú Krist, hinn upprisna drottin okkar og frelsara. Megi hið sanna ljós Krists verða okkur vegvísir á yfirstand- andi kirkjuári. Saga frelsarans sem sögð er með aðventukransinum hefur með hverri viku lýst skær- ar. Svo koma jólin og himnesk- ur ljómi stafar frá fallega ljósum prýddu jólatrénu í stofunni okkar og myrkrið hopar. Göngum mót jólatré torgs þess samfélags sem við búum, mót trénu í garðinum heima hjá okk- ur og eða í stofunni, og horfum á það með gleraugum trúarinnar. Göngum í mót ljósinu sem tréð skartar. Leyfum ljósi Krists að lýsa. Þekkinguna, kraftinn, inn- blásturinn færir þér bókin Biblí- an. Tilvalin jólagjöf! Hænsnin undir trénu Þá saga héðan úr uppsveitum Borgarfjarðar, hvar ég undirrit- uð bý í Stafholti. Hænsnfuglarnir hér á bæ hafa um að velja að skýla sér og hafa náttstað í kofa upphit- uðum og/eða vera úti. Og ekki að undra sess grenitrjáa með tilliti til jólahalds. Það er undir hinum sí- grænu greinum eins barrtrésins í skrúðgarðinum, þar sem greinar þess alsettar barrnálunum mynda kross, eru þétt hver við aðra, það er þar sem fiðurféð velur að hafa Jólahugvekja Vilt þú gera hjarta þitt að jötu Jesú Krists? Brynhildur Óla Elínardóttir. Ljósm. Kristján Friðriksson

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.