Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Page 27

Skessuhorn - 18.12.2019, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 27 náttstað. Hið fallega, alltumlykj- andi skjólgóða barrtré skýlir og verndar og hin litfríðu íslensku hænsn gefa trénu góða ásýnd sem væri á því hið fegursta jólaskraut. Snjórinn sem sveipaði það í gær er sem hið skærasta ljós, líkt því sem frelsarinn færir okkur, - sem veljum að fylgja þeim lífsstíl sem hann boðar; kærleik, frelsi, frið, sátt. Það stafar himneskri birtu upp af jötu jólabarnsins Íslenska Þjóðkirkjan býður þér, fermingarbarn, foreldrum með börnin ykkar blessuð, okkur sem eldri erum - býður öllum að koma, vera með í þeim fjölmenn- ustu félagssamtökum hér á landi, að skerpa á þekkingu, gildum, sið- ferði og ekki síst að koma saman af gleði að lifa trúna. Vilt þú nú á þessu kirkjuári styðja við íslensku Þjóðkirkjuna, hvers framtíð ég sé sannarlega bjarta, með því að hug- leiða fordómalaust fyrir hvað hún stendur, móta hana, etv. breyta henni sem stofnun og af sátt njóta þjónustu íslensku Þjóðkirkjunn- ar? Vilt þú gera hjarta þitt að jötu Jesú Krists? Ég vil það. Guð geymi okkur og gefi, þakk- læti, sátt, hugarkyrrð, gleði og megi Alheimsmóðiralls hjálpa okkur öllum að losna úr fortíðar- festu hugarangurs. Friður sé með okkur öllum, hverjar svo sem að- stæður okkar eru. Óttumst ekki. Gleðileg jól. Stafholtskirkja. Ljósm. Kristján Friðriksson. Landbúnaðarháskóli Íslands sendir sínar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár, með þakklæti fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Gleðileg Jól

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.