Skessuhorn - 18.12.2019, Síða 34
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201934
Vildu endurheimta fyrri farveg
Eins og lesendur muna varð gríðarlegt berghlaup í Hítardal
sumarið 2018 sem stíflaði stóran hluta af ofanverðum farvegi
Hítarár. Stjórn Veiðifélags árinnar óskaði eftir því að leyft
yrði að grafa í gegnum skriðuna þannig að endurheimta mætti
dýrmæt uppeldissvæði árinnar sem næst fyrri farvegi árinn-
ar. Ákveðið var að þetta verkefni þyrfti að fara í gegnum um-
hverfismat og eru framkvæmdir ekki hafnar.
Dregur úr íbúafjölgun
Í upphafi þessa árs voru íbúar á Vesturlandi 16.547 talsins, eða
4,6% af íbúafjölda á landinu öllu. Fjölgunin var 2% milli ár-
anna 2018 og 2019. Af 318 íbúa fjölgun í landshlutanum fjölg-
aði um 196 íbúa á Akranesi árið 2018, en hlutfallsleg fjölgun
var þó mest í Helgafellssveit þar sem fjögurra íbúa fjölgun
jafngilti 6,8% fjölgun í hreppnum. Heldur dregur úr fólks-
fjölgun á Vesturlandi á þessu ári, en skráðir íbúar voru 16.672
þann 1. nóvember síðastliðinn, hafði fjölgað um 0,8% það
sem af var ári.
Meint samráð um klukkuna
Í lok ársins 2018 ákvað ríkisstjórnin að setja í opið samráðs-
ferli hugmyndir um að breyta klukkunni. Í byrjun árs var svo
greinargerðin „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“
settur í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Greinargerð sú var unn-
in í forsætisráðuneytinu en í henni er skoðað hvort færa eigi
staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins.
Á það var bent að rannsóknir sýndu að nætursvefn Íslendinga
er almennt séð of stuttur en slíkt getur verið heilsuspillandi
og haft áhrif á námsárangur og framleiðni í atvinnulífinu. Sér-
staklega er þetta áhyggjuefni vegna barna og ungmenna. Ein
líkleg skýring er sú að klukkan sé ekki í samræmi við hnatt-
ræna legu landsins. Í desember lauk heilbrigðisráðuneytið at-
hugun sinni á málinu og örlög klukkubreytingarfrumvarpsins
eru nú í höndum forsætisráðherra.
Línur farnar að skýrast í vegamáli
Tekist var á um vegstæði fyrir nýjan Vestfjarðaveg um Gufu-
dalssveit á árinu. Í janúar hélt Vegagerðin fjölmennan upp-
lýsingafund með íbúum í Reykhólahreppi og nágrannasveit-
arfélögum. Þar kom fram að Vegagerðin stendur fast á að öll
rök hnígi í þá átt að vegagerð um Teigsskóg, svokölluð Þ -H
leið, sé vænlegasti kosturinn, vænlegri en svokölluð R-leið
með brú yfir Þorskafjörð frá Reykjanesi yfir á Skálanes. Tel-
ur Vegagerðin að umferðaröryggismál vegi þyngra en nátt-
úruvernd þegar kemur að ákvörðun um staðarval. Skipulags-
vald er í þessu máli sem öðrum í höndum viðkomandi sveitar-
stjórnar. Meirihluti hreppsnefndar Reykhólahrepps samþykkti
í haust að leggja til þá breytingu á aðalskipulagi að framtíðar-
vegstæðið liggi um Teigsskóg. Skipulagsstofnun staðfesti svo
22. nóvember síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi Reyk-
hólahrepps vegna Vestfjarðavegar.
Gott ár í ferðaþjónustu
44 ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi tóku þátt í Manna-
móti landshlutanna, sem haldið var í Kórnum í Kópavogi í
janúar og höfðu aldrei verið fleiri. Flestir lýstu forsvarsmenn
ferðaþjónustufyrirtækja yfir að liðið ár hafi verið greininni
hagfellt og voru bæði bjartsýnir og fullir eftirvæntingar fyr-
ir árið sem þá fór í hönd. Það átti síðan eftir að koma í ljós
að innistæða var fyrir þeim væntingum. Sumarið var afar gott
og ekki skaðaði veðrið. Mikil aukning mældist víða og í sum-
ar var t.d. uppselt á fjölda tjaldstæða í landshlutanum. Aukin
ferðalög Íslendinga bættust við fjölgun erlendra ferðamanna.
Bæir urðu kvikmyndasett
Kvikmyndafyrirtækið Sagafilm hóf í lok janúar tökur á sjón-
varpsþáttaröðinni 20/20 í Stykkishólmi og stóð verkefnið
yfir í um þriggja mánaða skeið. Samið var við bæjarfélagið
um skammtímaleigu á mannvirkjum í stuttan tíma, m.a. á
flugstöðinni og sal tónlistarskólans. Þá var einnig samið um
breytingar á útliti húsa á meðan tökur stóðu yfir, eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd þar sem Hafnargata 1 þjónaði hlut-
verki lögreglustöðvar. Bæjarbúar létu vel af samstarfi við kvik-
myndatökufólkið enda fylgdi verkefninu talsverðar tekjur á
annars rólegum tíma í ferðaþjónustunni. Þá voru fleiri kvik-
myndir teknar upp á Vesturlandi á árinu. Í febrúar stóð efnis-
veitan Netflix fyrir upptökum á þáttum sem nefnast Brot, eða
The Valhalla Murders upp á ensku, sem sýndir verða nú um
hátíðirnar. Ein sena í þáttunum var tekin upp í Ráðhúsi Borg-
arbyggðar í Borgarnesi þar sem húsið var í hlutverki lögreglu-
stöðvar, ekki ósvipað og Hafnargata 1 í Stykkishólmi í þátt-
unum 20/20.
Bjarni Þór er Skagamaður ársins
Bjarni Þór Bjarnason, listamaður og lífskúnstner, var á þorra-
blóti krýndur Skagamaður ársins. Valið fer þannig fram að
tilnefningum er safnað og bæjarráð staðfestir niðurstöðuna.
Elsa Lára Arnardóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs,
afhenti Bjarna Þór blóm og verðlaunagrip eftir Dýrfinnu
Torfadóttur gullsmið.
Vill vindhraðamælingar
Íbúi í Borgarfirði vakti máls á nauðsyn þess að komið verði
upp vindhraðamælingum á þekktum roksvæðum við Borgar-
fjarðarbraut til að bæta megi umferðaröryggi. Meðal þekktra
sviptivindastaða við Borgafjarðarbraut má nefna hæðina ofan
við Grjóteyri og vegarkafla á móts við Kvígsstaði. Á báðum
þessum stöðum hafa óhöpp sem rekja má til sviptivinda verið
tíð. Skemmst er frá því að segja að ekki hefur enn verið brugð-
ist við erindinu.
Urðarfellsvirkjun formlega vígð
Í lok janúar var Urðarfellsvirkjun í landi Húsafells formlega
tekin í notkun en hún hafði þá verið í prufurekstri í tíu mán-
uði, án þess að slá feilpúst. Inntaksmannvirki Urðarfellsvirkj-
unar er í 370 metra hæð yfir sjávarmáli, við Urðarfell (sjá
mynd), þaðan sem virkjunin fær nafn sitt. Um fallvatnsvirkjun
er að ræða þar sem lindarvatni er veitt í gegnum niðurgrafin
rör, niður fjallshlíðina að snyrtilegu stöðvarhúsi í Reyðarfells-
skógi. Þar knýr vatnsaflið Pelton vél sem framleiðir orkuna.
Virkjunin hefur allt frá upphafi skilað tilsettu hámarki, eða
1100 kW af raforku. Virkjunin er sú fjórða í landi Húsafells í
tíð jafn margra kynslóða ábúenda.
Kaldur fundur
Talsverðar vetrarhörkur voru í byrjun febrúar en þá fór frost
víða á landinu um eða upp fyrir 20 gráðurnar einkum inn til
landsins. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að muna eftir
smáfuglunum. Þessa skemmtilegu mynd tók Gunnlaugur A.
Júlíusson, þáverandi sveitarstjóri í Borgarbyggð, af grýlukert-
um og smáfuglum á þakbrún. Gunnlaugur hætti störfum nú í
nóvember eftir hálft fjórða ár í því starfi.
Fjölmiðlafrumvarp
Frumvarp um opinberan fjárstuðning við öflun og miðlun
frétta og fréttatengds efnis var lagt fram fyrr í vikunni. Frum-
varpið er unnið í menntamálaráðuneytinu á grundvelli stefnu-
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að bæta þurfi rekstrarum-
hverfi einkarekinna fjölmiðla og byggir á því meginmarkmiði
stjórnvalda að efla lýðræðislega umræðu. Frumvarpið hefur
þó mætt andstöðu nokkurra flokka, þar á meðal eins í ríkis-
stjórninni. Íslensk fjölmiðlun er í mikilli óvissu. Ríkisútvarpið
hefur yfirburði á þeim markaði, fær um fimm milljarða í for-
skot á alla einkarekna fjölmiðla sem allflestir eru reknir með
tapi.
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2019 í máli og myndum