Skessuhorn - 18.12.2019, Page 50
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201950
Kveðjur úr héraði
Jólahugleiðing úr Dalabyggð
Því samfélagið
er við fólkið
„Þú manst að danssýningin í skól-
anum er í dag,“ sagði ég við mann-
inn minn i morgun. Ætlaði svo að
bæta við að það væri best að hann
færi einn í þetta sinn því ég þyrfti
að klára verkefni sem ég hefði tekið
að mér. En náði að hugsa þetta bet-
ur áður en orðunum sleppti. Auðvi-
tað færi ég líka. Það er ekki hægt að
neita sér um svona skemmtun, það
er alltaf svo svakalega gaman að sjá
krakkana dansa og springa úr gleði
og spenningi á dansgólfinu. Svo er
auðvitað mikilvægt að við foreldr-
arnir virðum verkefni barnanna okk-
ar og veitum þeim athygli og hvetj-
um þau áfram. Danssýningin var
æði, stoltir krakkar að sýna fimi svo
glöð og ánægð. Ég fór út í hversdag-
inn aftur með bros á vör. Ég er ekk-
ert öðruvísi en aðrir með þetta, verð
að minna mig á að fara hægar um,
líta í kringum mig og njóta þess sem
nærumhverfið hefur uppá að bjóða.
Sumt getur bara beðið!
Það er svo margt sem lyftir
manni upp í skammdeginu og fullt
í boði hérna hjá okkur í Dalabyggð.
Við erum kannski ekki með stóra
tónleika með landsþekktum tón-
listarmönnum og ljósasjói eða vin-
sælustu verslanirnar í þorpinu okk-
ar. En hér í aðdraganda jólanna er
boðið upp á kaffihúsakvöld, tón-
leika, vöfflukaffi, hugvekjur, að-
ventukvöld, opið hús hjá félagasam-
tökum, leiksýningu og jólahlaðborð
svo eitthvað sé nefnt. Allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Og ef eitthvað er ekki í boði sem
þig langar til að njóta þá er oft hæg-
ur leikur að kíkja á hvað nágranna-
sveitarfélögin hafa upp á að bjóða
eða bara græja það sjálfur.
Mig langar að deila með ykk-
ur venju, sem ég hef notað lengi
og virkar vel. Það er að ef ég verð
óánægð með eitthvað t.d. þjónustu
sem er í boði eða alls ekki í boði,
þá spyr ég mig; Hvað get ég gert
í því? Það þýðir ekkert að vera fúll
við eldhúsborðið sitt, það eru ekki
alltaf einhverjir aðrir sem eiga að
gera hlutina og breyta og bæta.
Við getum gert svo margt og það
er hlutverk okkar í samfélaginu að
vera gefendur ekki síður en þiggj-
endur og er ekki síður mikilvægara
í smærri samfélögum, því samfélag
er við, fólkið, sem þar búum.
Þetta er búið að vera gott ár.
Börnin að verða sjálfstæð og full-
orðin, búreksturinn stóráfallalaus
og við gömlu haft drjúgan tíma til
að gera skemmtilega hluti saman.
Ófáar fjallgöngurnar höfum við far-
ið á þessu ári, sem toppa hver aðra.
Það sem stendur uppúr er þakk-
læti, þakklæti sem maður má svo
gjarnan vera duglegri að sýna. Ég
er þakklát fyrir fjölskylduna mína,
ótrúlega stolt af börnunum og glöð
fyrir barnabörnin sem eru orðin
þrjú. Það er svo frábært að eiga hlut
í þessum krílum, og ekki síður að
sjá börnin sín verða foreldra. Ég er
þakklát fyrir að vera heilsuhraust,
ég er þakklát fyrir samfélagið mitt,
að vera hluti af svo stórri fjölskyldu
sem það er.
Njótum þess sem við eigum. Ég
óska ykkur öllum yndislegra gleði-
ríkra ánægjulegra hátíðardaga.
Helga á Erpsstöðum
Jólakveðja frá Akranesi:
Mikilvægt að njóta samverunnar
með fjölskyldu og vinum um jólin
Það er eitthvað við aðdraganda
jólanna og jólahátíðina sjálfa sem
fær mann alltaf til að hlakka til.
Þetta er tíminn til að hitta og njóta
samverunnar með fjölskyldu og
vinum og láta gott af sér leiða. Þeg-
ar ég hugsa til baka til jólanna þá
minnist ég þess sem yndislegs tíma
og þær minningar sem koma upp
tengjast oftar en ekki litlu hlutun-
um í aðdraganda jólanna og sam-
verunnar um jólin.
Jólin heima hjá mér, á meðan ég
var að alast upp, voru með nokkuð
föstu sniði. Aðventukransinn var
búinn til fyrir fyrsta sunnudag í að-
ventunni og síðan var tekið til við
að baka að minnsta kosti tíu sort-
ir af smákökum til að eiga um jólin.
Það var mjög mikilvægt að eiga sem
flestrar sortir. Í desember var svo
tekið til við að þrífa allt hátt og lágt
þar sem allt varð að vera sérstaklega
hreint um jólin og ef eitthvað þurfti
að mála þá varð það að gerast fyr-
ir jól. Á Þorláksmessukvöld var svo
jólatréð skreytt. Klukkan sex á að-
fangadag var farið í kirkju en venju-
lega tók pabbi okkur börnin með
þangað á meðan mamma var heima
með afa að hlusta á jólamessuna á
meðan hún hugaði að matnum. Í
matinn var alltaf rækjukokteill í
forrétt með ristuðu franskbrauði og
jólakokteilsósu, hamborgarhryggur
í aðalrétt og heimagerður ís í eft-
irrétt. Að loknum matnum feng-
um við krakkarnir að taka upp einn
pakka á meðan foreldrarnir gengu
frá og svo var tekið til við að opna
pakkana. Að því loknu var farið í
að lesa upp jólakortin frá vinum og
vandamönnum. Á Jóladagsmorg-
un bankaði mamma alltaf uppá hjá
okkur krökkunum og færði okkur
ekta súkkulaði í bolla og smákök-
ur í rúmið.
Þegar ég svo stofnaði sjálf til fjöl-
skyldu reyndi ég að halda í eitthvað
af þessum siðum þó svo einhver
málamiðlun hafi átt sér stað þar sem
við vorum tvö sem komum að fjöl-
skyldunni. Það var þó skemmtilegt
að sjá í aðalatriðum hversu keimlík-
ir siðirnir hafa verið í gegnum tíð-
ina hjá íslenskum fjölskyldum. Þó
svo ég hafi notið aðdraganda há-
tíðarinnar og jólanna sjálfra þá fann
ég stundum fyrir stressi í kringum
mig þar sem verkefnin voru mörg
sem búið var að búa til í aðdrag-
anda jólanna.
Í dag er ég búin að læra að njóta
jólanna enn betur og aðdraganda
þeirra með því að fækka þeim verk-
efnum sem skipta mig minna máli.
Ég legg minni tíma í að þrífa og
baka og meiri tíma í að njóta sam-
verunnar með fjölskyldu og vinum.
Nú er sá siður kominn á að við hitt-
umst í byrjun desember hjá foreldr-
um mínum og skreytum piparkökur
og piparkökuhús með börnum og
barnabörnum. Við hittum vini yfir
jólahlaðborðum og njótum samver-
unnar á ýmsan hátt með börnunum
okkar. Við skreytum fyrr fyrir jól-
in en áður til að njóta jólaljósanna
lengur í svartasta skammdeginu og
eins skreytum við jólatréð nokkr-
um dögum fyrir jól til að hafa meiri
tíma til að njóta þess. Eins höldum
við okkur við einfaldleikan í elda-
mennskunni á aðfangadag þannig
að ekkert geti klikkað á þeim vett-
vangi og við náum að njóta tímans
með fjölskyldunni yfir góðum mat.
Við mannfólkið eigum það til að
vilja alltaf gera meira, flottara og
betra en áður því við teljum það
gefi okkur meira. Við eigum því til
að drekkja okkur í verkefnum sér-
staklega fyrir jólin því þá á allt að
vera svo fínt og flott.
Við megum ekki gleyma að
staldra við og hugsa um það sem
virkilega skiptir máli og gefur okk-
ur góðar minningar. Litlu hlutirn-
ir geta oft verið miklu merkilegri
og skemmtilegri en stóru hlutirn-
ir. Við eigum að gefa okkur tíma til
að vera með þeim sem okkur þyk-
ir vænt um, spjalla saman, spila og
jafnvel að púsla saman því það get-
ur gefið okkur heilmikið, og hvaða
tími er betri fyrir samveruna en jól-
in. Munum að njóta hátíðarinnar
og forgangsraða verkefnunum okk-
ar ásamt því að vera góð við hvort
annað. Við getum alltaf haldið jól-
in hátíðleg án þess að ná að gera allt
sem við viljum gera.
Jólakveðja frá Akranesi,
Ingibjörg Valdimarsdóttir