Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2019, Qupperneq 74

Skessuhorn - 18.12.2019, Qupperneq 74
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 201974 Íris Edda Steinþórsdóttir er 19 ára Skagastelpa, fædd og uppal- in á Akranesi. Hún lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskóla Vestur- lands síðastliðið vor og byrjaði í hjúkrunarfræði við Háskóla Ís- lands í haust. Fyrsta önnin í skólan- um fór þó ekki eins og til stóð því þriðjudaginn 10. september ætlaði hún ásamt kærastanum sínum að djúpsteikja kjúkling. Þau settu olíu í pott og kveiktu undir. „Við viss- um ekki að það gæti verið hættu- legt að djúpsteikja og höfðum ekki hugmynd um hvernig ætti að gera það. Við kveikjum því bara undir og bíðum eftir að suðan komi upp, sem gerist náttúrulega ekki,“ seg- ir Íris Edda í samtali við Skessu- horn. Eftir að hafa beðið í nokkurn tíma opnuðu þau pottinn og þá gýs upp eldur. „Það fyrsta sem mér datt í hug var að losa okkur við eldinn með að taka upp pottinn og hlaupa með hann út. Veit nú að það má alls ekki gera. Á leiðinni skvettist á mig bæði eldur og olía,“ segir Íris Edda sem hlaut þriðja stigs bruna á hægri hönd, hægra læri, niður eftir sköfl- ungnum og niður á rist og á ristinni á vinstri fæti og annars stigs bruna á vinstri hönd. „Vinstri höndin log- aði en það var samt ekki eins slæmt og hægra megin þar sem olían fór á mig,“ segir Íris Edda. Þess ber að geta að ef kviknar í olíu í potti er best að nota eldvarnarteppi til að kæfa eldinn. Átta aðgerðir Við tók langt bataferli sem enn er ekki lokið. Íris Edda lá á Landspít- alanum í Fossvogi í þrjár vikur eft- ir slysið, þar af fyrst á bráðamót- tökunni þar til hún var búin að fara í aðgerð því ekkert laust pláss var á brunadeildinni þegar hún var lögð inn. „Svo ég var látin bíða annars staðar þar til morguninn eftir þeg- ar ég komst á deild A4,“ segir Íris Edda. Hún fór samtals í átta aðgerð- ir þar sem skinn var tekið af vinstra læri og sett yfir sárin. „Þetta er eins og skinnið sé skorið með ostaskera, svona skafið af. Svo er það klippt niður og sett á svæðin sem brunnu mest, til að hjálpa líkamanum að loka þeim. Sárin gróa þá hraðar undir skinninu sem er sett yfir, það hjálpar gróandanum og örin verða skárri,“ útskýrir Íris Edda og bætir því við að að skinnið hafi allsstaðar verið heftað við hana, nema á hægri hönd þar sem það var saumað. Var hún með um 60-70 spor í höndinni og segir hún það hafa verið mjög sársaukafullt. „Ég var vakandi þeg- ar saumarnir voru teknir úr og það var mjög vont,“ segir hún. Lengsta aðgerðin sem Íris Edda fór í tók sex klukkustundir og sú stysta tók um eina klukkustund. Hún var svæfð í flestum aðgerðunum en stund- um var hún aðeins slævð og tvisvar var hún vakandi en verkjastillt. „Ég fann samt fyrir öllu, sem mér fannst ógeðslegt,“ segir Íris Edda. Áhuginn á hjúkrun hjálpaði henni Eins of fyrr segir var Íris Edda ný- lega byrjuð í Háskóla Íslands í hjúkrunarfræðinámi þegar slys- ið varð og segir hún áhuga sinn á hjúkrun hafa hjálpað henni í gegn- um allt ferlið. „Það var gott að hafa áhuga á því sem var verið að gera. Hjúkrunarfræðingarnir og lækn- arnir voru frekar hissa á mér því ég vildi sjá allt sem var verið að gera við mig. Mér þótti það ekkert ógeðslegt heldur bara frekar spenn- andi,“ segir Íris Edda og hlær. En á meðan hún var að ná sér eftir slysið gat hún ekkert sinnt náminu. „Ég missti eiginlega af þessari fyrstu önn,“ segir hún og bætir því við að hún hafi þó tekið ákvörðun um fara í lokaprófin. „Ég hugsaði að ég gæti engu tapað á að taka prófin og að reyna mitt besta. Ég sé svo bara til hvað ég geri á næstu önn þegar ég hef fengið út úr prófunum,“ segir hún. Góður gróandi Aðspurð segist hún öll vera að koma til í dag þó vissulega sé bata- ferlið ekki nærri búið. Hún segist gera ráð fyrir að það taki hana um eitt ár að ná fullum bata og er hún bjartsýn á að fullur bati náist. „Ég ætti að verða aftur jafn góð og ég var. Ég er að gróa mun betur en allir þorðu að vona og allt ferlið hefur gengið mjög vel. „Ég virðist vera mjög heppin hvað þetta varð- ar og er með góðan gróanda al- mennt,“ segir Íris Edda. Aðspurð segist hún hafa átt erfiðast með að vera rúmföst. „Ég er sem bet- ur fer orðin alveg sjálfbjarga núna en fyrst á eftir lá ég bara í rúm- inu og gat ekki gert neitt sjálf. Ég þurfti að fá aðstoð með alveg allt. Það þótti mér erfiðast við þetta allt saman. Það var eins og allt væri hrifsað frá mér og ég lá bara í rúminu með meðvitund en gat ekkert gert og ekkert hreyft mig,“ segir hún og bætir því við að hreyfigetan sé að mestu komin að nýju. „Ég er góð eiginlega alls- staðar nema í hægri höndinni sem er ennþá frekar stíf, stirð og aum, enda var langversti bruninn þar,“ segir Íris Edda. Þrýstihanski í eitt ár Íris Edda þarf að klæðast sérstök- um þrýstihanska á hægri hönd í allavega 23 klukkustundir á sól- arhring næstu mánuði. Hanskinn hjálpar höndinni að gróa, kem- ur í veg fyrir bjúg og bólgur og hjálpar til við að gera örin sléttari. Hún má ekkert taka hanskann af sér nema til að þrífa hann og þeg- ar hún fer í bað. Aðspurð segist hún gera ráð fyrir að þurfa að nota hanskann í heilt ár. „Höndin verð- ur mikið betri ef ég er með hansk- ann á mér á meðan allt er að gróa. Það var vont að fara í hann fyrst en núna þykir mér bara betra að vera í hanskanum. Þegar ég fer úr honum núna finn ég mikinn dofa í höndinni, sem er óþægilegt, svo mér líður bara best í honum. Hann venst alveg,“ segir Íris Edda. Sjúkraþjálfun næstu mánuði Spurð um hvað taki við núna í bataferlinu segist Íris Edda vera búin með aðgerðir og sjúkrahúss- dvöl og nú sé hún bara í sjúkra- þjálfun til að ná aftur fullri hreyfi- getu í hægri höndinni. „Þegar ég lá inni var sjúkraþjálfarinn að koma til mín einu sinni til þrisvar á dag til að hjálpa mér að hreyfa hend- ur og fætur,“ segir hún og bætir því við að eftir að hún útskrifað- ist af Landspítalanum mæti hún til sjúkraþjálfara einu sinni í viku og mun halda því áfram næstu mán- uði. Spurð hvort skemmdir hafi orðið á húsinu segir hún það hafa sloppið. „Það kom bara sót í loftið og á parketið hjá svalarhurðinni. Þar sem ég henti pottinum út fór líka illa,“ segir Íris Edda og bætir við að hægt hafi verið að skipta um allt sem skemmdist. Skildi líka eftir sár á sálinni Svona slys skilur ekki aðeins eftir ör á líkamanum heldur verður sálarlíf- ið líka fyrir áhrifum. „Andleg líðan varð eiginlega bara mjög slæm eftir þetta og ég var frekar þung alla dag- ana á spítalanum, og eftir að ég kom heim,“ segir Íris Edda og bætir því við að hún hafi ekki beint tekið eftir því sjálf hvernig andlega líðanin var orðin, heldur var það fólkið í kring- um hana sem sá það. „Þau sáu það bara að líðan mín, og bara hvern- ig ég var, var alls ekki eins og ég er vön. Andleg líðan er eitthvað sem ég mun sennilega þurfa að vinna mest úr núna og á næstunni,“ segir hún. „Það hefur verið mun erfiðara en ég bjóst við að það myndi vera að líta á það jákvæða og vera þakklát. En ég ætla að tækla þetta allt saman, þó ég viti ekki hversu langan tíma það mun taka. Ég ætla ekki að gefast upp og það er númer eitt, tvö og þrjú,“ segir hún og heldur áfram: „Að læra að elska líkamann sinn er eitt, en að þurfa að líta í spegil og sjá sig svona á hverjum einasta degi og reyna að sætta sig við það er annað og eitt- hvað sem ég óska engum. Þetta er fáránlega erfitt og ég veit ekki ennþá hvernig ég ætla að fara að því að reyna að sætta mig við þessi ör, en ég vona samt að það kom einn dag- inn,“ segir Íris Edda að endingu. arg/ Ljósm. úr einkasafni. Íris Edda þarf að vera í þrýstihanska á hægri hönd í um eitt ár. Lá á spítala í þrjár vikur eftir að hafa ætlað að djúpsteikja kjúkling Rætt við Írisi Eddu sem brenndist illa á olíu Íris Edda er ung Skagastelpa sem lenti í slysi í september þegar hún brenndi sig á sjóðandi olíu. Hægri höndin á Írisi Eddu í dag og svo daginn sem hún fékk að sjá hana í fyrsta skipti eftir slysið. Íris Edda lá á spítala í þrjár vikur.Hér má sjá hvar skinnið var tekið af vinstra lærinu hennar til að setja yfir verstu brunasárin. Ristin á Írisi Eddu eins og hún er í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.