Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 34
32
Höfðahverfis. Rauðir hundar barust hingað fyrir áramótin og gengu
liér enn í janúarrnánuði og febrúar. í fullorðnu fólki voru þeir yfir-
leitt verri, en í börnum í'ylgdi þeim hálsbólga og þrálátt kvef.
Reykdæla. Hin skráðu tilfelli öll í Laxárdal. Fundust við skóla-
skoðun, voru væg, svo að krakkarnir voru flestir á fótum.
Seijðisfj. Létt tilfelli.
Fáskrúðsfj. Sóttin væg og fylgikvillalaus.
Vestmannaeijja. Gekk hér framan af ári. Annars stungið sér niður og
íólk ekki gert læknum aðvart.
Grimsnes. Fáein tilfelli í fvrstu múnuðum ársins, leifar af faraldri
fyrra árs.
ICeflavikiir. Verður vart 3 fyrstu mánuði ársins.
15. Skarlatssótt (scarlatina).
Töflur II, III og IV, 15.
Sjúklingafjöldi 1932—1941:
1932 1933 193+ 1935 1936 1937 1938 1939 19+0 19+1
Sjúkl 024 426 900 109 70 288 197 04 33 158
Uánir 17 6 22 2 2 „ 1 i9 99
Á skarlatssótt bar nu ; aftur meira en áður, einkum í Reykjavík,
Hafnarfirði og á Siglufirði, en auk þess í héraðsskólanum í Reykholti,
og er hún ásækin við héraðsskólana.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Gerði talsvert mikið vart við sig, einkum vormánuðina. Yfir-
leitt væg og enginn talinn dáinn. Sjúklingarnir flestir einangraðir í
Farsóttahúsinu.
Álafoss. Kom upp á einum bæ í Kjós, en breiddist ekki út þaðan.
Skipaskaga. Rarst hingað í janúar.
Borgarfj. Kom upp í Reykholtsskóla í lok nóvembermánaðar. Veikt-
ust 3 næstum samtímis og voru þegar einangraðir, en síðan veiktist
hver á fætur öðrum. Einangrun var haldið áfram fram í rniðjan des-
ember, en þá hætt, enda höfðu þá um 20 tekið veikina. Yfirleitt væg.
sum tilfellin svo, að varla þekktust. Lítið um fylgikvilla, nokkrir
fengu vott af liðagigt, einn fékk myocarditis (eftir áramót), enginn
eyrnaveiki né nýrnabólgu. Um upptök veikinnar er ókunnugt. Hefur
ef til vill leynzt í skólanum þennan mánaðartíma, sem hann starfaði,
svo létt, að engan grunaði neitt. 1 nemandi hafði fengið væga háls-
bólgu nokkru áður en veikinnar varð vart (læknir ekki sóttur), og
sást hreisturvottur á honum 2—-3 vikum síðar. Veikin hélt áfram lengi
vetrar í Reykholti, en breiddist ekki út.
Hólmavíkur. Nokkur tilfelli á stangli af mjög vægri skarlatssótt, og
síðar heyrði ég um önnur tilfelli, sem voru mjög svipuð. Eg er þvl
smeykur um, að nokkuð af þessum hálsbólgufaraldri, sem átti að hafa
gengið hér seinni part sumars og um haustið, hafi verið vægur skar-
latssóttarfaraldur.
Vestmannaegja. 1 tilfelli, einangrað.
Grímsnes. 1 tilfelli, barn úr Reykjavík í sumardvöl. Flutt sam-
stundis heirn til sín. Breiddist ekki út.