Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 181
í Lovsamling for Island, V. bindi, bls. 502—503, er birt kansellí-
bréf 22. sept. 1787, og er bréfinu fengin svo látandi fyrirsögn:
„Cancellie-Skrivelse til Stiftbefalingsmand Levetzow, ang. Vaccina-
tionens Fremme i Island“. Skýtur noltkuð skökku við að sjá hér getið
um kúabólusetning (vaccinatio) á fslandi, níu árum áður en Jenner
uppgötvaði þá merku ónæmisaðgerð (1796), enda er fyrirsögn bréfs-
ins, sem ætla mátti, villandi, miðað við efni þess, því að það fjallar
um bólusetning, sem var mjög annars eðlis. Má um þetta segja, að
skýzt þótt skýrir þyki (og séu), þar sein eru þeir útgefendur lagasafns-
ins, Oddgeir Stephensen og Jón Sigurðsson. Variolatio (einnig nefnd
inoculatio, eins og gert er í bréfinu), þ. e. bólusetning, eða öllu heldur
bólusóttarsýking, með bóluvessa lir bólusóttarveikum sjúklingi, var
ónæmisaðgerð, sem nokkurt gengi hafði fyrir tið kúabólusetningar-
innar og hét á íslenzku „að setja bólu“ (og samsvarandi á dönsku), en
]>egar kúabólusetningin kom til sögu og útrýmdi þegar hinni fyrri
aðgerð, erfði hin síðari smátt og smátt heitið (að bólusetja —• bólu-
setning) í stað hins lengra: að kúabólusetja — kúabólusetning. Er
útgéfendurnir sjá, að bréfið fjallar um „at inoculere Bþrnekopper i
Island“ og staðhæft er, að „detle Middel, ved at blive jevnlig brugt,
kan hjælpe meget til at forebygge og indskrænke den yderlige Far-
lighed som Koppe-Epidemien der paa Landet medf0rer“, þykir þeim
ekki þurfa framar vitna við um, að hér sé átt við hina venjulegu
(kúa)bólusetning, sem þeir voru auðvitað nákunnugir, en hin að-
gerðin mjög fallin í gleymsku. Ekki hefur þeim orðið að nema staðar
við þau ummæli bréfsins, er fyrir kainmerherrann, þ. e. stiftamt-
mann, er lagt „at opmuntre Almuen til at benytte sig af Inoculationen
saa ofte Kopperne naturligen skulde yttre sig i Landet, men ellers ikke“,
og ekki hafa þeir haft fyrir því að g'löggva sig nákvæmlega á leiðbein-
ingum um þessa bólusetning, er kansellíið hafði með ráði Collegii
inedici látið taka saman og birta á íslenzku í Lærdómslistafélagsritun-
um. Er getið um þessar leiðbeiningar í bréfinu og til þeirra vitnað af
útgefendunum (Ávísan um hina beztu aðferð að setja bólu á íslandi.
Rit hins íslenzka lærdóms lista félags, VIII, 1—25). Kansellíbréfinu
lýkur með því, að þess er getið, „at man ei saae at studiosus chirurgiæ
Svend Poulson, som i afvigte Aar har sendt Koppematerie fra