Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 79
77
símað til læknis, sem var Sauðárkrókslæknir, þvi að á nóttum verður
ekki náð í Hofsós í síma. Kom læknir á vettvang, svo fljótt sem auðið
var, og losaði fylgjuna, en konunni hafði þá blætt mikið, og ieið
hún út af.
Ólafsfj. 14 sinnum viðstaddur fæðingar. Astæðan langoftast ósk
um deyfingu. Fæðingar gengu yfirleitt vel. Eins og áður er getið,
fengu 2 konur barnsfararsótt. 2 fengu mastitis án ígerðar og 1 svo að
gróf i. 1 kona fæddi mikið fyrir tímann.
Svarfdæla. Viðstaddur 12 fæðingar. í 2 skiptin allalvarlegar blæð-
ingar og í önnur 2 föst fylgja, sem hefði ekki fæðzt sjálfkrafa.
Akureyrar. Enginn abortus provocatus gerður utan sjúkrahúss Ak-
ureyrar. Ekki vitað um neinn karl eða konu, sem snúið hefur sér til
læknis til að fá leiðbeiningar um takmörkun barneigna.
Höfðahverfis. Fæðingar yfirleitt gengið greiðlega og lítilla aðgerða
þurft með, tekin spor, konan deyfð, og í suinum tilfellum hefur
þurft að þrýsta fram fylgju. Engin kona hefur komið til mín á árinu
til að leita ráða gegn því að verða barnshafandi. 2 fósturlát. Engar
sérstakar ástæður til þeirra.
Reykdæla. 9 sinnum viðstaddur fæðingar, og var aðgerð yfirleitt
aðeins fólgin í narcosis obstetrica og lítils háttar örvun liríðanna
stundum. 1 sinni gerð episiotomia, og í 1 skipti var um allverulegt
hríðaleysi að rajða. Ljósmæður geta ekki um fósturlát í skýrslum
sínum, en læknis hefur þrisvar verið leitað af þeim orsökum. Kon-
urnar fengu secaledropa aðeins og heilsaðist síðan vel. 2 konur hafa
óskað eftir abortus provocatus, önnur utan héraðs, en þeirri mála-
leitun var í hvorugt skiptið sinnt. 2 manneskjur hafa leitað upplýs-
inga um getnaðarverjur og var ráðlagt að nota kondóm.
Húsavíkur. Ljósmæður geta engra aborta, en sjálfur hef ég haft 4
til meðferðar, allt miðaldra, giftar konur. Þeim heilsaðist öllum vel.
Tvisvar hef ég neyðzt til að gera abortus provocatus, vegna þess,
að ekki var unnt að koma konunum til Akureyrar, fyrra skiptið í
marz, en hið síðara í desember, og var í báðum tilfellum ófært land-
leiðina og enginn skipakostur. í fyrra skiptið: Konan hefur nephritis
chronica. Att 2 börn, var nær dauða við síðari fæðinguna og' hefur
aldrei losnað við nephritis. Nú var hún á öðrum mánuði, látlaus
uppsala, eggjahvíta Esb. 2, retinitis albuminurica. Fannst mér því
ekki forsvaranlegt að bíða og réðst því i aðgerðina. Heilsaðist vel.
Hitt tilfellið: 6 barna móðir, hefur mb. cordis og við og við neprhitis,
þó einkum þegar liún er vanfær. Um meðgöngutíma hefur hún alltaf
þjáðst af uppsölu, en vanalega ekki fyrr en á 3. mánuði, en nú byrjar
hún strax á fyrsta rnánuði. Það helzt, bókstaflega talað, ekkert niðri
í henni, hríðleggur af, sefur ekkert. Reyndi að gefa henni blóðvatn,
sem stundum hefur dugað henni, en nú alls ekki. Því ráðist í aðgerð.
Heilsaðist vel.1)
1) ASgerðir þær, sem hér er lýst, varða við lög, og er óþarfi að gæta ekki settra
fyrirmæla. Ef nauðsyn hefði á eftir rekið, mátti i skyndi löggilda sjúkrahúsið
á staðnum til aðgerðanna. Eftir að málið hafði verið rannsakað, var þó eftir
atvikum með forsetaúrskurði fallið frá sakamálshöfðun. Óneitanlega er skemmti-
legra fyrir lækna að komast hjá að þurfa að verða slíkrar náðar aðnjótandi.