Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1941, Blaðsíða 117
115
skólaskoðunarskýrslum héraðslæknanna, hafa 11056 börn, eða 82,3%,
allra barnanna, notið kennslu í sérstökum skólahúsum öðrum en
heimavislarskólum, 266 börn, eða 2,0%, hafa notið kennslu í heima-
vistarskólum, en þau liafa þó hvergi nærri öll verið vistuð í skólun-
um. 1500 börn, eða 11,2%, hafa notið kennslu í sérstökum herbergj-
um i íbúðarhúsum og 610, eða 4,5%, í íbúðarherbergjum innan um
heimilisfólk. Upplýsingar um loftrými eru ófullkomnar, en það virðist
vera mjög mismunandi: í hinum almennu skólahúsum er loftrými í
kennslustofum minnst 1,2 m3 og mest 7,8 m3 á barn, en jafnar sig
upp með 2,8 m3. í heimavistarskólunum 2,9—8,0 m3, meðaltal 4,5 m3:
í liinum sérstöku kennsluherbergjum í íbúðarhúsum 2,1—5,2 m3,
meðaltal 3,3 m3. í íbúðarherbergjum 1,1—5,0 m8, meðaltal 3,0 m3,
sem heimilisfólkið notar jafnframt. í hinum sérstöku skólahúsum,
þar sem loftrýmið er minnst, er það oft drýgt með því að kenna börn-
unum til skiptis í stofunum. Vatnssalerni eru til afnota í skólunum
fyrir 9031 þessara barna, eða 67,3%, forar- og kaggasalerni fyrir 4114
börn, eða 30,6%, og ekkert salerni hafa 287 börn, eða 2,1%. Leikfimi-
hús hafa 6227 barnanna, eða 46,4%, og bað 6962 börn, eða 51,8%.
Leikvellir við þessa skóla eru taldir fyrir 6802börn, eða 50,6%. Læknar
telja skóla og' skólastaði góða fyrir 9185 þessara barna, eða 68,4%,
viðunandi fyrir 3931, eða 29,3%, og óviðunandi fyrir 316, cða 2,3%.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Hafncirfi. Sú nýlunda hefur verið tekin upp á þessu ári, að bæjar-
stjórn starfrækir (ásarnt sjúkrasamlaginu) ljósastofu, og' fá öll
veikluð börn þar Ijósböð ókeypis.
Skipaskaga. í sveitum er farkennsla á 2—3 bæjum í hverjum
hreppi, en börnin „ganga á milli“ að meira eða minna leyti, einkum
þau elztu. Gert vegna þess, að heimilin eiga erfitt með að hafa barna-
liópa langan tíma, og fara þeir örðugleikar vaxandi vegna fólksekl-
unnar. A Akranesi unnið að leikfimihúsi barnaskólans, en húsið
ekki fullgert. Ljósmóðirin á Akranesi lítur eftir og athugar óþrifa-
kvilla í skólabörnum. Lýsisgjöf fer fram í skólanum.
Borgarfi. Ekki verður vart neins áhuga hjá forráðamönnum héraðs-
ins á því að koma lagi á barnafræðsluna, og situr allt við sama, far-
kennslu í misjöfnum húsakynnurn.
Þingegrar. Skólaskoðanir gera mikið gagn, ýta undir þrifnað,
ýmsir kvillar koma í ljós, sem annars myndi lítill gaumur gefinn,
og einkum er berklaprófunin þýðingarmikil. Skólahús eru sæmileg.
Flateyrar. Skólastaðir þeir sömu sem undanfarið og svipað um
þá að segja.
Ögur. Skólaeftirlit er að mörgu leyti ófullkomið hér í dreifbýlinu.
Gæti þó eftirlit þetta verið einn merkasti þátturinn í heilbrigðis-
eftirlitinu og lagt grundvöllinn að fyrirbygging sjúkdómanna, þar
sem ekki er hægt að koma við ungbarnaeftirliti. Mikið vantar á, að
skólaeftirlitið uppfylli þessar kröfur. Samræmingu vantar í skoðunar-
aðferðir og nákvæmni. I Reykjanesi er nii komin upp heimavistar-
ibúð í stað þeirrar, sem brann. Að vísu er enn ekki að fullu lokið við
húsið. Enn vantar að múrhúða það að utan. En það er orðið íbúðar-
hæft. Húsið er 1 hæð með skúrþaki, bvggt úr timhri úr gömlu húsi,