Studia Islandica - 01.06.1975, Page 45
43
kapítula kemur söguritari aftur að álagasögunni gömlu, og
nær sá kafli til loka 20. kapítula. Koma þeir fóstbræður þá
til Hundings konungs og hitta Hervöru dóttur hans. Kon-
ungur leggur fyrir þá þrautir. Ein er sú, að vinna uxa eirrn
óskaplegan; önnur að glima við blámann í höll konungs;
hin þriðja að toga uxahúðina um eld við Hástiga jötun,
mann konungs. (f rímunum eru þeim fóstbræðrum sýnd
uxahorn, og skulu þeir fá konungi önnur slík; Hástigi er
ginntur með svikasamlegri hringsgjöf, en síðan rekinn í
gegn; loks er einvígi við tJlfar berserk.) Hörður þræll
(Hringur kóngsson í álögum) vinnur þrautimar fyrir
Hjálmþér; hann kemur við flesta aðalþætti sögunnar, en
auk þess njóta þeir ráða Hervarar kóngsdóttur. Hún er
aftur með í ráðum, þegar þau flýja öll á skipum brott frá
landi Hundings, og eiga þau og hjálparar þeirra, sem getið
var í „ævintýrakaflanum“ fyrr í sögunni og í síðasta hluta
hennar, loks í omstu á sjó, og er hún með miklum galdra-
býsnum.
Ætla mætti, að nú hefði Hjálmþér fengið Hervarar, og
mun svo einhvem tíma sagt hafa verið í munnlegum frá-
sögnum. En vegna annara persóna, sem getið var áður í
sögunni (Harðar, Vargeisu og Skinnhúfu) og koma mjög
við síðasta hluta hennar (og heita þá Hringur kóngsson,
Álfsól og Hildisif, og höfðu þau öll lent í álögrnn, og sökum
þess að höfundur þarf að láta þá fóstbræður fá þessara
tveggja meyja, hefm: hann skákað því svo til, að láta Hring
fá Hervarar, og er það nýjung hans, eins og vísindamenn
hafa fyrir löngu séð í hendi sér. Sjá má, að höfundur gerir
sér far um að undirbúa þessa breytingu sagnarinnar, svo
sem með tíðu samtali Hervarar og Harðar.
Auðsætt er, að hér ber mikið á milli, þar sem þeir
Hjálmþér verða að leysa þrautir, en Fjölsvinnsmál gera
sem mest úr torveldi þess að komast inn í borg Menglað-
ar, en það reynist þó hægðarleikur, eftir að hinn ungi
sveinn hefur sagt rétt til nafns síns. Hér em tvær hlið-
stæðar frásagnir, og þó mjög ólíkar. Ekki þykir mér senni-