Studia Islandica - 01.06.1975, Blaðsíða 70
68
útlægan án sakar. Eftir það héldu þau (Conn og Bécuma)
til Tara, og skildi hún skinnbát sinn eftir í gili einu í klett-
umun til að fela hann, því að hún vissi ekki, hvenær hún
kynni að þurfa hans við aftur.
Vert er að athuga þegar í stað, að í 5. grein hér að fram-
an segir, að Bécrnna hafi unnað Art frá upphafi, þó að í
7. grein ruglist efnið, svo og enn síðar. En rétt er að
hafa í huga C-gerð Svejdalsdansins, þar sem líka virðist
ruglað saman stjúpmóður og stjúpdóttur, svo og er vert
að hafa í huga frásögn Grógaldurs.
8. Art var um þetta leyti staddur að Tara og lék að
tafli við Cromdes, drúída Conns. Drúídinn mælti: „Leik-
ur þessi fellir útlegð á hendur þér, sonur sæll, og sökum
konunnar, sem faðir þinn gekk að eiga, ert þú útlægur.“
Konungur og drottning komu nú þangað (til Tara), og var
syni konungs þegar skipað á hans fund. Þá sagði Conn við
Art: „Yfirgefðu Tara og frland um árs skeið og búðu þig
þegar til þess, því að ég hef heitið því.“ En menn á frlandi
töldu, að Art hefði orðið fyrir miklu ranglæti, þegar hann
var ger útlægur vegna konu. Eigi að síður fór hann á brott
um nóttina, og Conn og Bécuma voru saman eitt ár í Tara,
en ekki óx kom og ekki voru kýr mylkar allan þann tíma.1
írar áttu nú í miklum vandræðum af þessu. Drúídar írlands
voru sendir, svo að þeir fyndu af vizku sinni, hver hefði
fært írlandi þvílíka ógæfu. En þeim vitraðist það, og
drúídamir tjáðu kommginum í Tara og höfðingjum íra,
hvaðan ógæfa þessi stafaði, en það var frá löstum drottn-
ingar og vantrú.
Hér getur að líta tvær andstæður: hina góðu konu, sem
Conn átti fyrst, og fylgdi henni blessun, vöxtur koms og
gnægð mjólkur, en sökum misgerðar síðari konu hans þumu
öll þessi gæði. Til samanburðar má nefna hina réttu og
1 „Art“, bls. 155, 8. gr. Svipað segir um Lugaid Mac Conn, en hann
virðist hafa valdið hallærinu sjálfur, sjá Myles Dillon: The Cycles of
the Kings, 1946, 21. Sbr. og Cross: Q552.3.