Studia Islandica - 01.06.1975, Blaðsíða 109
107
Þegar mærin tók að skenkja ölið, spurði hún, hverjum
skyldi fá bikar af rauðu öli, og guðinn svaraði henni, að það
væri Conn. Þegar hann hafði nefnt alla konunga eftir daga
Conns, skráði Cesam skáld nöfnin með ognm-letri á fjóra
íviðarstafi. Þá hvarf guðinn og híbýli hans, en keraldið og
kerið og stafimir urðu eftir. „Því er talað um Sýn og ævin-
týri og ferð Conns og leiðslu goðvemnnar.“
Hér er vert að veita því athygli, að tréð er með gullnu
laufi, alveg eins og Glasir í norrænu goðsögunni. Gullins
laufs er líka getið í öðrum írsknm sögum,1 og er mér raun-
ar gmnur á, að það komi víðar fyrir en ég hef rekizt á.
Enn fremur býst ég við, að getið sé um furðulegan fugl í
toppi sumra trjáa, fram yfir það sem ég veit um (hér hef
ég vitaskuld til samanburðar í huga hanann Yíðópni). —
Oft kemur fuglagrúi fyrir í trjám írskra sagna, og held ég
ekki sé rétt að mgla því saman við hitt, ef um einn fugl
er að ræða, eða í toppi trésins er eins konar fuglakóngur,
sem af öllum öðrum ber.
Áður en horfið er frá fundi þeirra Lugs og Conns, skal
minna á eitt atriði, en það er full það, eða öllu heldur full
þau (því að þau vom mörg), sem Lug og dóttir hans veittu
Conn. Ósjálfrátt hvarflar hugurinn að komnn þeim, sem
veita Art drykkinn að tilstuðlan Coinchender drottningar.
Má hugsa sér, að heilladrykkur Conns sé upphaflegur í
sögu hans, en í hinni sögunni sé bætt við banadrykknum;
þeir líta sjálfsagt eins út, og nú á Art að velja milli þeirra,
og nýtur hann til þess ráða Creide meyjar. Með þessu hefði
þá sagnamaður skapað áhrifamikið atvik, þó að lítið sé.
Vel er mér ljóst, að þessi gangur málanna verður varla
sannaður, — en varla heldur afsannaður.
1 Sjá Cross, F811.1.1., F811.2.1.2.