Studia Islandica - 01.06.1975, Síða 199
197
kvæði, sem fljótt á litið eru lík hinum forngermanska brag.1
Þegar þess er gætt, að stuðlun tíðkast einnig í brezkum
(velskum) kveðskap, og að Finnar iðkuðu áður fyrr hljóð-
stafsetningu, — sjá Kalevala —, þá verður að telja líklegt,
að áður hafi verið geysistórt svæði, þar sem hljóðstafsetning
tíðkaðist, og hafi Eyjakeltar a.m.k., svo og Germanar og
Finnar tekið þátt í þessari skáldskaparvenju, sennilega þó
hver þjóðkvísl að meira eða minna leyti með sínu móti.2
Rétt er að geta þess hér, að hljóðstafsetning tiðkaðist
með Irum um langan aldur eftir þetta, og kvað stundum
meira að henni, stundum minna. En hún virðist hafa verið
hragskraut hjá þeim, en ekki skáldskaparnauðsyn eins og
meðal fslendinga.
En nú hófust erfiðleikar höfundar þessarar rannsóknar
fyrst að marki. Þekking hans á írskri hragfræði og máli er
vissulega minni en skyldi, en það sem ég veit um fomar
bókmenntir íra og sögur, kann að vera eitthvað meira, en
sannarlega þó ekki til að stæra sig af. Þegar ég byrjaði
þessa rannsókn, virtust verk hinna góðu gömlu vísinda-
manna fjnri tíðar sýna, að ég væri á villigötum. En ég
hef verið svo heppinn, einmitt þegar ég var að glíma
við þessi fræði, að mikilsverðar nýjar rannsóknir á þessum
efnum birtust á frlandi, og smnar þeirra virtust koma í
1 Sjá G. Turville-Petre: Um dróttkvæði og írskan kveðskap. i
Skími 128 (1954), bls. 31 o. áfr., einkum bls. 36-37. Hann sýnir þar
ágætlega bæði fram á likingu og mismun, og tel ég rétt að taka það hér
skýrt fram, að mér virðist mismunurinn svo mikill, að óhugsandi sé að
germönsk hljóðstafsetning sé komin af hinni írsku, enda er fornkveð-
skapur annara germanskra þjóða í sama flokki og hinna norrænu í þess-
um efnum. Turville-Petre skrifaði grein sína ó íslenzku, og var hún
siðan þýdd á frönsku af Jan de Vries og kom út í Ogam 1957, ensk
þýðing eftir Gearóid Mac Eoin í Ériu 1971 og í greinasafninu “Nine
Norse Studies” (Viking Society, 1972).
2 Gerard Murphy: Early Irish Metrics (Dublin, Royal Irish Aca-
demy, 1961), bls. 6-7 gefur fáein dæmi stuðlasetningar úr fomnm
latneskum kveðskap.