Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 44

Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 44
42 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 muni þjóðarinnar og eðlilega löggjöf varðandi ólöglega innflytjendur alias hælisleitendur alias umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá leggur þverpólitíska nefndin til að það verði refsilaust að framvísa fölsuðum skilríkjum við ólöglega komu ólöglegra innflytjenda til landsins. Datt engum í hug að með því að setja slíkt í lög þá gildir eitt fyrir ólöglega innflytjendur en allt önnur réttarákvæði og viðurlög og miklu harðneskjulegri fyrir fólk sem býr í landinu. Hvað réttlætir það að við setjum í lög að það skuli vera refsilaust að ljúga, svíkja og sýna falsaða pappíra ef þú ert ólöglegur innflytjandi en allir aðrir skuli sæta réttmætri refsingu fyrir slík athæfi. Hvar skyldi nú hugmyndin um jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar vera í þessu sambandi. Sjálfsagt bara í gildi fyrir Íslendinga en ólöglegir innflytjendur eiga samkvæmt tillögunum að njóta meiri og annarrar réttarverndar. Tækni- og fjölmiðlasamfélagið í dag gerir það að verkum að það er næsta auðvelt fyrir alla ólöglega innflytjendur að sýna a.m.k. að líkindi séu á því að þeir séu flóttamenn sem eigi rétt á alþjóðlegri vernd. Geti fólkið það ekki þá eru meiri líkur en minni á því að um ólöglega innflytjendur sé að ræða en ekki flóttamenn. Í öllum tilvikum nema undantekningartilvikum á að vísa slíku fólki frá landinu til brottfarar- lands umsvifalaust. Við verðum að gera kröfu til þeirra sem hingað koma og rétturinn má ekki og á ekki að vera einhliða í hag þeirra sem eru að reyna að brjótast inn í landið á fölskum forsendum. Í umhverfi ólöglegra innflytjenda í dag, við getum eins kallað það fjölmiðlunarkerfi velferð- arfarþega, þá liggja fyrir upplýsingar um það hvert er best að fara. Hvar löggjöfin og réttar- framkvæmdin er slöppust og hvar velferðar- kerfið tryggir bestu afkomuna fyrir ólöglega innflytjendur. Með því að hafa slappa löggjöf og réttarframkvæmd eins og þverpólitíska nefnd varaformanns Sjálfstæðisflokksins leggur til að verði viðhöfð hér á landi þá köllum við á sífellt fleiri velferðarfarþega til að leita „alþjóðlegrar verndar“ sem flóttafólk og njóta hagræðis af því þangað til tekst að sanna að þessar staðhæf- ingar eru tóm vitleysa. Á þeim tíma sem líður þess vegna mánuðir og ár sýnir ríkið ólöglegum innflytjendum meira örlæti en Íslendingum sem eru sjúkir eða aldraðir. Slöpp löggjöf og réttarframkvæmd varðandi ólöglega innflytjend- ur veldur því að innflytjendastraumurinn mun bara aukast og kostnaður skattgreiðenda eykst að sama skapi. Velferðarkakan þynnist því sjálfkrafa sem því nemur. Er það þess konar þjóðfélag sem við viljum sjá í framtíðinni. VIII. Upphaf Evrópskrar vitundar. Fyrsta innrás íslamskra vígamanna í Evrópu var á Spáni árið 711. Evrópa gat ekki varið sig þar og í tæpar 8 aldir eða til ársins 1492 var stór hluti Spánar á þeirra valdi. Karl Martel Franka- konungur sigraði heri múslima við Tours árið 732 þegar múslimaherirnir ætluðu að leggja undir sig núverandi Frakkland og hugði auk þess á frekari landvinninga. Margir halda því fram að orrustan við Tours sé ein mikilvægasta orrusta sem háð hefur verið í Evrópu og hafi tryggt Evrópu frelsi og bjargað kristninni frá eyðingu af íslamska rétttrúnaðinum. Í framhaldi af sigri Karls Martel, afa Karls mikla Frankakonungs, sem er betur þekktur, varð til samevrópsk vitund og vilji til að varðveita evrópska menningu og kristin gildi. Um aldir þurftu kristnu ríkin í Evrópu að sæta stöðugum árásum herja múslima sem komust m.a. að Vínarborg en biðu þar ósigur 11. september 1683 fyrir sameinuðum her margra evrópuríkja undir herstjórn Sobíeski Póllandskonungs. Dagsetningin 11. september er síðan þá þekkt meðal múslima og brennimerkt í huga íslamistana. Það var því engin tilviljun að þeir skyldu velja þessa dagsetningu 11. september 2001 til að fremja hryðjuverk í Bandaríkjunum m.a. með því að ráðast á tvíburaturnana og Pentagon. Evrópa náði vopnum sínum af því að við vildum verja vígi kristinnar hugmyndafræði og Hvað réttlætir það að við setjum í lög að það skuli vera refsilaust að ljúga, svíkja og sýna falsaða pappíra ef þú ert ólög- legur innflytjandi en allir aðrir skuli sæta réttmætri refsingu fyrir slík athæfi. Hvar skyldi nú hugmyndin um jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar vera í þessu sambandi. Sjálfsagt bara í gildi fyrir Íslendinga en ólöglegir innflytjendur eiga samkvæmt tillögunum að njóta meiri og annarrar réttarverndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.