Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 5

Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 5
ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015 3 ritstjórnarbréf Sjálfstæðisflokkurinn í kreppu, segir í fyrirsögn á for- síðu Þjóðmála. Einhverjum kann að finnast of djúpt í árinni tekið og jafnvel að í fyrirsögninni sé falinn ósanngjarn dómur yfir verkum kjörinna fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins á Alþingi og sveitarstjórnum. Auðvitað hefði verið hægt að nota önnur orð um stöðu Sjálfstæðisflokksins; erfiðleikar, vandræði, klípa, basl og þrautaganga eru allt orð sem gætu lýst stöðunni. En ekkert þessara orða nær að lýsa því hvernig ungt fólk hefur orðið afhuga Sjálfstæðis- flokknum á undaförnum árum. Árið 2005 sögðust yfir 44% kjósenda undir fertugu kjósa flokkinn. Nú nær flokkurinn ekki 20% fylgi meðal ungs fólks og í sumum aldurshópum rétt liðlega 10%. Í Reykjavík, sem áður var höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins, er staðan sérstaklega slæm. „Flokkur án æsku er flokkur án framtíðar,“ skrifar Ingvar Smári Birgisson, fyrrverandi formaður Heim- dallar. Í grein sem birtist hér í Þjóðmálum bendir Ingvar Smári á að nú sé Sjálfstæðisflokkurinn, sem eitt sinn gerði tilkall til unga fólksins, orðinn að jaðar- flokki í hugum yngri kjósenda. Þetta er kreppa Sjálfstæðisflokksins og aðeins með því að horfast í augu við staðreyndir geta sjálfstæðis- menn gert sér vonir um að vinna bug á erfiðleikunum. Möguleikarnir eru fyrir hendi og það sem meira er, þeir eru meiri og betri en hjá nokkrum öðrum stjórnmálaflokki. Fyrir liðlega ári átti ég samtal við einn liðsmann Pírata, sem nú heilla ungt fólk. „Hvaða rugl er þetta í þér,“ sagði ég við Píratann, „þú átt heima í Sjálfstæðisflokknum.“ „Já, það er líklega alveg rétt. Og ég skal koma til liðs við ykkur um leið og þið farið að tala um frelsi,“ var einlægt svar Píratans. Svarið endurspeglar ágætlega viðhorf fjölga ungra karla og kvenna sem ég hef rætt við á undan- förnum mánuðum og misserum. Frelsið er bakbeinið í hugmyndum ungs fólks um leið og það gerir sanngjarna kröfu til þess að á það sé hlustað, tekið sé tillit til sjónarmiða þeirra og hagsmuna. Ungt fólk er hugsjónafólk frelsis, sem oft nálgast hlutina með öðrum hætti en þeir sem eldri eru, og það vill fá vettvang til að hrinda hugsjónum sínum í framkvæmd. Hinn eðlilegi vettvangur er Sjálfstæðisflokkurinn en þá þurfa flokksmenn að vera tilbúnir til að ryðja brautina. Þolgæði til samtala milli kynslóða Bjarni Benediktsson, sagði í setningarræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 1969 að allir sækist eftir fylgi æskumanna og telji það sér„til ágætis að vera vinsælir í þeirra hópi“. Fyrir 46 árum hafði formaður Sjálfstæðisflokksins áhyggjur að gjá gæti myndast á milli kynslóða. „Flokkur án æsku er flokkur án framtíðar“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.