Þjóðmál - 01.09.2015, Blaðsíða 42
40 ÞJÓÐMÁL hausthefti 2015
ekki væri vegna innflytjenda. Þá segir hann
rangt sem Bush forseti sagði að innflytjendur
séu að vinna vinnu sem Bandaríkjamenn vilji
ekki vinna. Það sé alltaf spurning um launin og
í mörgum tilvikum séu boðin svo lág laun að
vegna framboðs af innfluttu vinnuafli. Sama
hefur verið hent á lofti hér að innflytjendur
væru að vinna vinnu sem íslendingar vildu ekki
vinna. Það er með sama hætti rangt eins og
Krugmann bendir á. Það er spurning um hvaða
kjör boðið er upp á.
Á sama tíma og við sækjumst eftir fólki til að
vinna við hátæknisjúkrahús eins og Norðmenn
sækjast eftir því að fá velmenntaða íslenska
hjúkrunarfræðinga þá er það ekki keppikefli
að taka við fólki sem fyrirsjáanlega lendir í
erfiðleikum við að aðlagast samfélaginu, þarf
að veita ómælda aðstoð meira og minna alltaf.
Munurinn er sá að í fyrrnefnda tilvikinu þá er
sótt í hæft fólk sem viðkomandi land skortir til
að geta búið við bestu lífskjör. Í hinu tilvikinu er
fólk sem engin sækist eftir sem fyrirsjáanlega
mun rýra lífskjör fólksins í landinu.
Þar við bætist ógnin frá Íslamistunum sem
ekki er hægt að horfa framhjá. Hvað sem líður
virðingu okkar eða virðingarleysi fyrir trúar-
brögðum þá verður ekki horft framhjá því að
mesti órói og ófriður er í kring um fólk sem játar
Múhameðstrú. Fjölgun þeirra sem játa þá trú
er því ekki æskileg. Um leið og þetta er sagt þá
liggur fyrir að fjöldi fólks sem játar þessa trú er
mikið ágætis fólk og mundi geta orðið landi og
þjóð til framdráttar. En það verður hugsanlega
að líða fyrir öfgar og illmennsku trúarsystkina
sinna og þess að samfélög þeirra sem játa
þessi trúarbrögð í Evrópu hafa ekki brugðist
við með virkri fordæmingu á illmennskunni og
villimennskunni sem framin er í nafni þessara
trúarbragða.
Á sama tíma og stórir hópar Íslamista í Evrópu
fara um götur með illindum og láta ófriðlega
og hrópa vígorð gegn kristni og þeim löndum
sem þeir njóta gistivináttu með hótunum um
að banna mannréttindi og taka upp sharía lög
þá verða aðrir og hófsamari Múslimar að gjalda
fyrir það. Með því að þannig sé farið að, þá
þrýstir það á fólkið sem vill halda frið við kristin
gildi og Evrópska menningu, til að fordæma
og útvísa þeim sem hrópa á torgum Evrópu á
mikilleik Allah og dauða yfir kristni og kristin
þjóðríki, að láta af þessu athæfi eða fara burt úr
álfunni ella.
VII.
Ný lög um innflytjendur.
Hanna Birna Kristjánsdóttir skipaði þver-
pólitíska nefnd til að endurskoða lög um
útlendinga og gerði formann Bjartrar framtíðar
að formanni nefndarinnar. Því má velta fyrir
sér hvort brýnast var að endurskoða lög um
útlendinga, en það skiptir í sjálfu sér ekki
máli. Að mínu mati var nauðsynlegt að gera
þær breytingar á útlendingalögunum, sem
auðveldaði stjórnvöldum að vísa ólöglegum
innflytjendum úr landi og koma þeim í burtu
strax, til þess lands sem þeir komu frá, gætu
þeir ekki framvísað nauðsynlegum skilríkjum
eða sönnunum um réttmæti þess, að þeir falli
undir skilgreiningu sem flóttafólk. Tillögur
nefndarinnar ganga í þveröfuga átt. Þvert á
móti eru úrræði stjórnvalda skert og réttar-
áhrifum í öllum málum sem varða alþjóðlega
vernd frestað þegar niðurstaða Útlendinga-
stofnunar er kærð og niðurstaða liggur fyrir á
æðra stjórnsýslustigi. Það þýðir að ólöglegir
innflytjendur sem kalla sig flóttamenn, en eru
það í fæstum tilvikum, eru á framfæri íslenskra
skattgreiðenda um margra mánaða og þess
vegna margra ára skeið. Öll sönnunarbyrðin
samkvæmt lögunum liggur á ríkisvaldinu en
ekki þeim sem halda fram rétti sínum til að
koma og fá hæli í landinu á forsendum sem þeir
geta ekki sýnt fram á að séu réttar. Er þetta ekki
að snúa réttlætinu svolítið á haus?
Við sem fámennt land höfum takamarkaða
Að mínu mati var nauðsynlegt að gera
þær breytingar á útlendingalögunum,
sem auðveldaði stjórnvöldum að vísa
ólöglegum innflytjendum úr landi og
koma þeim í burtu strax, til þess lands
sem þeir komu frá, gætu þeir ekki
framvísað nauðsynlegum skilríkjum eða
sönnunum um réttmæti þess, að þeir
falli undir skilgreiningu sem flóttafólk.
Tillögur nefndarinnar ganga í þveröfuga
átt. Þvert á móti eru úrræði stjórnvalda
skert. Það þýðir að ólöglegir
innflytjendur sem kalla sig flóttamenn,
en eru það í fæstum tilvikum, eru á fram-
færi íslenskra skattgreiðenda um margra
mánaða og þess vegna margra ára skeið.