Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 6
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 5
fékk hreinan meirihluta í fyrri umferðinni.
Í annarri umferð var kosið á milli Kristjáns
Þórs og Geirs Jóns Þórissonar, fyrrverandi
yfirlögregluþjóns.
Þegar Guðlaugur Þór hlaut kjör sem ritari
sagði hann við mbl.is:
„Ritari hefur ákveðnum skyldum að gegna
gagnvart innra starfinu og grasrótinni. Það
er það sem ég hef mestan áhuga á. Styrkur
okkar felst í því öfluga tengslaneti sem við
sjálfstæðismenn eigum um allt land.“
Kosning formanns, varaformanns og ritara
Sjálfstæðisflokksins fór fram á lokadegi lands-
fundarins, sunnudeginum 25. október 2015.
Allir landsfundarfulltrúar voru kjörgengir og
skrifuðu menn nafn þess sem þeir kusu á
auðan kjörseðil. Venja hefur skapast um að
gefa þeim sem vilja afla sér fylgis í kjörinu
tækifæri til að ávarpa landsfundinn síðdegis
laugardaginn fyrir kjördag. Bjarni talaði einn
sem formannsframbjóðandi og Ólöf ein sem
varaformannsframbjóðandi.
Það fór undrunarkliður um salinn þegar
Áslaug Arna 25 ára laganemi, fyrrverandi
formaður Heimdallar og stjórnarmaður í
Sambandi ungra sjálfstæðismanna (SUS),
kvaddi sér hljóðs og flutti framboðsræðu
sem ritaraefni. Ræðan snerist öðrum þræði
um mikilvægt framlag ungs fólks til lands-
fundarins og nauðsyn þess að fylgja því eftir
af forystusveit flokksins. Í þeim anda hefði
hún þá fyrr um daginn tekið ákvörðun um
framboð sitt.
Að lokinni ræðu Áslaugar Örnu flutti
Guðlaugur Þór framboðsræðu sína. Hún
virkaði dálítið útslitin miðað við ræðu keppi-
nautarins. Guðlaugi Þór kom framboð Áslaugar
Örnu greinilega í opna skjöldu. Hann hafði
ekki haft neitt ráðrúm til að laga texta ræðu
sinnar að gjörbreyttum aðstæðum.
Ef mæla mátti hug fundarmanna af lófataki
að loknum framboðsræðunum tveimur var
ekki neinn vafi um að Áslaug Arna hafði
höfðað meira til þeirra en Guðlaugur Þór.
Í kvöldfréttatíma sjónvarps klukkan 19.00
þennan sama laugardag dró hann framboð
sitt til baka í beinni útsendingu. Hann mat
stöðu sína og styrk rétt. Var það staðfest af
viðbrögðum fundarmanna við ræðu hans
sunnudaginn 25. október þegar hann hvatti
fundarmenn til að styðja Áslaugu Örnu.
II.
Fyrir landsfundinn lá ljóst fyrir að ríkisstjórn-
inni hefði tekist að búa þannig um hnúta
að íslenskt efnahagslíf losnaði úr fjármagns-
höftum án þess að þungar byrðar leggist á
þjóðina. Í upphafi setningarræðu sinnar á
fundinum lýsti Bjarni Benediktsson árangri
af stefnu og störfum ríkisstjórnarinnar meðal
annars með þessum orðum:
„Kaupmáttur hefur vaxið á hverju ári,
störfum fjölgað, skuldir heimilanna og
tekjuskattur lækkað. Kjörin eru að batna
hratt. Slakinn í hagkerfinu er horfinn og
verkefnið framundan er að sækja enn
frekar fram. Stærsta efnahagsmálið, losun
fjármagnshafta, er vel á veg komið og
stefna stjórnarinnar hefur þegar aukið tiltrú
á styrk íslenska efnahagslífsins. Ferðaþjón-
ustan er í örum vexti, mikill uppgangur í
sjávarútvegi og veruleg fjárfesting að eiga
sér stað í fjölbreyttri iðnaðarstarfsemi. Við
erum að fella niður tolla, höfum afnumið
vörugjöld, bætur hafa hækkað og við
höfum hafið nýja sókn í heilbrigðismálum
og aukið framlög til rannsókna og
nýsköpunar. Allt þetta hefur gerst á sama
Bjarni Benediktsson hlaut afburðakosningu á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins eða 96% atkvæða.