Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 18
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 17
langtímaáætlanir um aðkomu hins opin-
bera, styrki og meðfjárfestingar.
Mikilvægi innviðafjárfestinga
einkaaðila mun aukast
Sívaxandi umræða á sér stað um þörfina
á fjárfestingum í innviðum, bæði upp-
safnaða þörf og fyrirsjáanlega þörf vegna
mannfjöldaþróunar og komu ferðamanna.
Opinberi geirinn mun varla einn geta komið
að öllum þeim verkefnum sem framundan
eru. Ríkið mun eflaust alltaf verða ráðandi í
innviðafjárfestingum eða að minnsta kosti
gegna veigamiklu hlutverki, svo sem í krafti
löggjafarvalds um innviði, í tengslum við
einkavæðingu eigna, sem eftirlitsaðili, sem
kaupandi eða greiðandi eða sem meðfjárfestir.
Innviðafjárfestingar einkaaðila, sem voru
áður lítill og sérhæfður markaður, eru í dag
viðurkenndur eignaflokkur sem mætir vel
þörfum stofnanafjárfesta. Mikilvægi slíkra
fjárfesta í innviðum mun klárlega aukast á
komandi árum en enn eru þó ýmsar hindranir
í veginum, jafnt pólitískar sem lagalegar.
Hér á landi eru nokkur stór verkefni í
samgöngumálum sem vel myndu falla að
kostum einkafjármögnunar, auk fjölmargra
tækifæra í einkavæðingu og félagslegum
innviðum.
Vandaðir útreikningar á þjóðhagslegri arð-
semi einstakra verkefna þurfa að liggja fyrir
og val verkefna þarf að taka mið af þeim. Eitt
er þó alveg ljóst, að Ísland getur ekki búist
við því að verða aftur land með A lánshæfi en
með D innviði.
Gísli Hauksson er hagfræðingur að
mennt. Hann er forstjóri og stofnandi
fjármálafyrirtækisins Gamma.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar-
innar, á ekki sjö dagana sæla. Samfylkingin
stefnir í að verða áhrifalítill smáflokkur.
Á Alþingi er þingflokkur samfylkinga sundur-
tættur og sundurþykkur. Árni Páll segir
ástandið ekki sér að kenna og enginn þing-
manna hreyfir mótmælum. Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, sem gerði misheppnaða leifturárás
á Árna Pál, hefur lítið til málanna að leggja.
Össur Skarphéðinsson situr rólegur, býður
eftir kallinu og minnir á að þegar hann sat á
formannsstóli hafi Samfylkingin mælst með
um og yfir 30% fylgi. Síðan hafi leiðin legið
niður á við, fyrst með Ingibjörgu Sólrúnu og
síðan Jóhönnu.
Arnar Sigurðsson, sem er einn beittasti
penni hægri manna hér á landi, bendir á eina
skýringu á fylgistapi Samfylkingarinnar. Hann
talar um Árna Pál sem fráfarandi formann. Í
pistli á bloggsíðu sinni bendir Arnar á að á
flokksstjórnarfundi laugardaginn 14. nóvem-
ber hafi Árni Páll sagt meðal annars:
„Fólk flýr Ísland þrátt fyrir gott efna-
hagsástand til að fá að búa við þau
samfélagsgæði sem sósíaldemókratísk
forgangsröðun hefur skilað.“
Daginn eftir, sunnudaginn 15. nóvember,
var Árni Páll í viðtali á Eyjunni á Stöð 2 og
sagði:
„Íslenskur vinnumarkaður stendur þannig
núna að það er skortur á mannafla, aldrei
verið betri aðstæður til að taka á móti
útlendingum sem eru tilbúnir til þess að
búa sér lífsviðurværi hér….það eru öfunds-
verðar aðstæður hér.“
Það er ekki hægt annað en taka undir með
Arnari þegar hann skrifar:
„Já það er eitthvað svo skrítið af hverju
sumir tapa tiltrú kjósenda……“
Talað út og suður