Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 71
70 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015
Þótt mikill meirihluti
Íslendinga væri andvígur
því að ríkissjóður geng-
ist í ábyrgð fyrir Icesave-
skuldum Landsbankans,
átti ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur sér öfluga
stuðningsmenn, ekki síst
meðal háskólamanna.
Einn þeirra Stefán Ólafs-
son, prófessor við Háskóla
Íslands, tók til máls og
barðist fyrir því að fyrsti
Icesave-samningurinn yrði
samþykktur.
Í grein sem birtist í Frétta-
blaðinu 17. ágúst 2009 hélt
Stefán því fram að Íslend-
ingar myndu opinbera sig
sem ræningjaþjóð ef látið
yrði reyna að ábyrgðina
fyrir dómstólum. Ekki sé
„viðeigandi að betla né
hlaupa frá málinu“.
Stefán Ólafsson skrifaði
meðal annars:
„Svo segja menn að
ábyrgð okkar hefði átt að
útkljá fyrir dómstólum.
Þar hefði málflutningur
okkar þurft að vera sá, að
innstæðutryggingakerfið
á Íslandi hefði aðeins verið
fyrir íslenska viðskiptavini
Landsbankans en ekki
þá erlendu. Halda menn
að nokkur dómstóll hefði
dæmt Íslandi í vil í slíku
máli? Varla. Líklegra er
að slík framganga hefði
opinberað okkur sem
ræningjaþjóð.
Loks segja sumir að
forsætisráðherra eigi að
taka málið beint upp
við leiðtoga Bretlands
og Hollands. Biðja eigi
griða því þjóðin ráði
ekki við ábyrgðina (þó
útreikningar sýni annað).
Útlendingarnir vita betur.
Þeir munu réttilega
segja: Íslendingar lifðu
um efni fram á annarra
þjóða fé og nú er komið
að skuldadögum. Lífskjör
Íslendinga verða um
margt betri en lífskjör
Breta þrátt fyrir þessar
auknu byrðar.
Mér sýnist af öllum
gögnum málsins og vel
rökstuddum greinum
Steingríms J. Sigfús-
sonar og Indriða H.
Þorlákssonar og fleiri
að niðurstaðan sé skýr.
Hártoganir um langsótta
lagaklæki eða kvein um
að við ráðum ekki við
þetta koma okkur hvorki
lönd né strönd. Það er því
ekki viðeigandi að betla
né hlaupa frá málinu.
Í öllu falli er slíkt ekki
tímabært. Við þurfum nú
að sýna heiminum að við
erum heiðarleg þjóð sem
vill standa við skuldbind-
ingar sínar.
Þeir sem vilja fella samn-
inginn bjóða heldur ekki
upp á neina vitræna
lausn. Fullyrða einungis
að hægt sé að fá betri
samning, án þess að
neitt bendi til þess. Þó
var fyrri ríkisstjórn komin
áleiðis með verri samning
síðastliðið haust. Markmið
stjórnarandstöðunnar er
aðeins að skapa ríkis-
stjórninni erfiðleika og
fella hana.
Það er tímabært fyrir
þjóðina að komast á
lappir aftur og nú eins og
siðað fólk. Fórnarlömb
Icesave-útrásarinnar hafa
boðist til að lána okkur
fyrir skuldinni, að mörgu
leyti á viðunandi kjörum.”
Ræningjaþjóð sem betlar
og hleypur frá ábyrgð?
Hártoganir um langsótta
lagaklæki eða kvein um
að við ráðum ekki við
þetta koma okkur hvorki
lönd né strönd.