Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 8
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 7
III.
Í þann mund sem skammdegið gengur
í garð hefjast umræður um ríkisútvarpið
(RÚV), fjárhag þess, stöðu og framtíð. Innan
stjórnarliðsins er ágreiningur um hvort
lækka eigi nefskattinn til RÚV á næsta ári eða
halda honum óbreyttum. Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráðherra, vill
hverfa frá áformum um lækkun. Jafnframt
má skilja orð hans þannig að hann vilji að
RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Ráðherrann
hefur skrifað nokkrar almennar blaðagreinar
um málefni RÚV málstað sínum til varnar. Af
þeim má ráða að hann hyggist fara að fordæmi
Bertels Haarders, menningarmálaráðherra
Danmerkur, og skipa enn eina nefnd um
málefni RÚV.
Bertel Haarder er vinsælastur danskra
stjórnmálamanna. Hann er úr Venstre-flokkn-
um, mið-hægriflokknum, sem nú fer með
stjórnarforystu í Danmörku. Mánudaginn
2. nóvember 2015 lýsti hann þeirri skoðun
að danska ríkisútvarpið, DR, ætti að búa sig
undir að afnotagjöld til þess lækkuðu og
fjölmiðlaval Dana yrði fjölbreyttara.
Haarder sagði við Berlingske Nyhedsbureau:
„Það verður vaxandi vandamál að sífellt
fleirum finnst að þeir greiði mikið til
Danmarks Radio þótt þeir nýti sér alls
ekki neinar DR-rásir. Sé litið fram á veg
getur þetta skapað vanda. Af þessu leiðir
að takmarka verður afnotagjaldið. Ekki
dramatískt en það verður að fara lækkandi
auk þess sem val á rásum eykst.“
Haarder sagði þetta þróun en ekki byltingu.
Hann sagðist ekki vita hver lækkunin yrði
eða hvernig valið yrði tryggt. Hann hefði ekki
fullmótaða skoðun á málinu en það þyrfti að
ræða næstu ár með hliðsjón af því að sam-
komulag stjórnmálaflokkanna um fjölmiðla
rynni út í lok árs 2018.
Danski ráðherrann sagði skapa vanda að
á ríkisreknum miðlum störfuðu fleiri blaða-
menn en á öllum dagblöðum samanlagt. Þá
skapaði það einnig vandamál að fréttastofa
Danmarks Radio lyti einum fréttastjóra. Í því
fælist ekki fjölbreytni. Þá bæru fréttir of mikið
yfirbragð Kaupmannahafnar – sumir dag-
skrárliðir væru eins og „Nørrebro lokalradio“.
Ráðherrann tók fram að hann vildi ekki
stríð, hann sagði sér kært sem fólki væri
sameiginlegt og þar með public service þótt
finna mætti annað nafn á fyrirbærið. Þess
vegna vildi hann ekki leggja Danmarks Radio
niður.
Í þessum orðum felst skýr boðskapur:
Danska þjóðin þarfnast samnefnara á sviði
fjölmiðlunar en Danmarks Radio í núverandi
mynd er ekki þessi samnefnari. Þar ríki of mikil
einsleitni, ekki síst í fréttum undir einni stjórn.
Þóttafull afstaða stjórnenda sem jaðrar
við yfirlæti er ein af meginástæðum þess að
andrúmsloft hefur skapast í kringum RÚV
sem Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
Bertel Haarde menningarmálaráðherra Danmerkur. Hann
telur að danska ríkisútvarpið, DR, eigi að búa sig undir
að afnotagjöld til þess lækki og fjölmiðlaval Dana verði
fjölbreyttara.
Mynd: Johannes Jansson