Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 92
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 91
Eftirlýstur í ríki
Pútíns
Bill Browder: Eftirlýstur (Red Notice), Almenna
bókafélagið, Reykjavík 2015, 358 bls.
Sigurður Már Jónsson
Forseti Rússlands, Vladimir Pútín, er líklega
umdeildasti þjóðarleiðtogi samtímans. Hann
stýrir fallandi heimsveldi af mikilli hörku og er
af mörgum talin sá sem getur haft mest áhrif
á það hvort við á Vesturlöndum lifum í friði
eða stríði. Það er fróðlegt að kynnast huga
fólks í fyrrum leppríkjum Sovétríkjanna/Rúss-
lands gagnvart þessum risa í austri. Í gegnum
tíðina hefur sú ógn sem þessar þjóðir hafa
upplifað að mestu komið úr austri. Þess
vegna sækja þessi lönd fast að fá inngöngu
í Evrópusambandið og Nató. Öll samvinna í
vestur er hugsuð út frá öryggishagsmunum
þessara hrjáðu þjóða sem oftar en ekki hafa
orðið að þola yfirgang af hálfu hins fyrirferðar-
mikla nágrana. Þetta er mikilvægt að hafa í
huga þegar við horfum á þennan heimshluta.
En margt hefur breyst frá því Sovétríkin
liðuðust í sundur 1991. Á þeim tíma var
mannfjöldi Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
svipaður. Bæði ríkin féllu undir að vera
stórveldi í hernaðarlegum skilningi. Það var
efnahagsþátturinn sem skildi á milli og að
lokum hrundi efnahagur Sovétríkjanna og
einræði sovéska kommúnistaflokksins um
leið. Nú eru íbúar Bandaríkjanna 330 milljónir
og fer fjölgandi en íbúar Rússlands eru 170
milljónir og fækkar. Rússland er nú land stétta-
andstæðna og ójöfnuðar þar sem spilltir
ólígarkar hafa hrifsað til sín gríðarleg auðævi
landsins. Svik, mútur, spilling og misþyrm-
ingar virðast viðgangast. En þó að Rússland
nú sé ekki það sem Sovétríkin voru þá er það
hernaðarveld og undir stjórn manns eins og
Pútíns er erfitt að ráða í það hvernig tekið
verður á málum. Við sjáum það nú síðast á
þróun mála í Sýrlandi.
Eftirlýstur er saga William (Bill) Browders,
sem setti á laggirnar vogunarsjóð í Rússlandi
á seinni hluta níunda áratugarins og lendir
upp á kannt við Pútin eftir ævintýralegan
uppgang. Hann stýrði Hermitage Capital
Management sem réði um tíma yfir 4,5
milljörðum Bandaríkjadala.
Browder á athyglisverða ættarsögu. Afi
hans, Earl Browder, var í áratug foringi
bandaríska kommúnista, í framboði til for-
seta Bandaríkjanna 1936 á vegum Komm-
únistaflokksins bandaríska. Hann afrekaði
það meðal annars að komast á forsíðuna á
Alþýðublaðinu í þá daga. Synir Earls urðu
bókadómar
Bill Browder flytur erindi á fjölmennum fundi í hátíðarsal
Háskóla Íslands.