Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 19
18 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015
Milton Friedman nóbelsverðlaunahafi í
hagfræði skrifaði stutta en áhrifamikla bók
árið 1983 sem ber titilinn „Tyranny of the
Status Quo“ eða í Sjálfheldu sérhagsmuna.
Þá var liðið á seinni hluta fyrra kjörtímabils
forsetatíðar Ronalds Reagans og Fried-
man var ekki sáttur við hversu litlu Reagan
hefði áorkað við að vinda ofan af stöðugum
vexti ríkisins. Hann bar þó þá von í brjósti
að forsetanum yrði meira út verki á seinna
kjörtímabilinu. Margir eru þeirra að skoðunar
að Reagan hafi þegar upp var staðið gert um
margt góða hluti.
En Friedman var ekki aðeins með hugann
við málefnin sem þyrftu að komast á dag-
skrá heldur ekki síður að brýnt væri að taka
rösklega til hendinni. Friedman hélt því fram
að stjórnmálamenn hafi 6-9 mánuði í upphafi
kjörtímabilsins til að ráðast í þær lykilaðgerðir
sem viðkomandi stjórnmálamaður hyggst
standa fyrir. Þetta séu hveitibrauðsdagarnir
áður en menn festist í „sjálfheldu sérhags-
muna“, og „tyranny of the status quo“ nær
yfirhöndinni. Stjórnmálamenn vilji stuðla að
breytingum en fæstir átti sig á hversu kraftar
kyrrstöðunnar eru sterkir.
Fólk sem hefur beina hagsmuni af óbreyttu
ástandi er mun einbeittara en það sem
nýtur ávinnings af einhverri breytingu.
Embættismenn, stjórnarandstæðingar,
hagsmunasamtök fyrir hinu og þessu,
svo ekki sé minnst á fjölmiðla vinna oft
gegn breytingum. Fyrr en síðar er stjórn-
málamaðurinn fastur í sjálfheldu sérhags-
muna og orðinn sendiboði sérhagsmuna og
kemur litlu í verk.
Boðskapurinn úr þessari litlu bók er
rifjaður upp á rúmlega tveggja ára afmæli
„hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar“ sem
birti merkilegar tillögur um víðtækar breyt-
ingar á mörgum sviðum. Tillögur þeirra
Vigdísar Hauksdóttir, Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar og Ásmundar Daða Einarssonar birtust
13. nóvember 2013, alls 14 blaðsíður. Lítið
hefur heyrst af þessu ágæta plaggi síðan og
tilfinningin er sú að um margt séum við á
sama stað – hagræðingarhópurinn hafi orðið
sjálfheldu sérhagsmuna að bráð og fælni
ráðherra við að taka ákvarðanir hafi ráðið för.
Annað tilefni til upprifjunar er nýja RÚV
skýrslan um starfsemi og rekstur RÚV ohf.
frá árinu 2007. Skýrslan sem þau Eyþór
Arnalds, Margrét Ögmundsdóttir og Svan-
björn Thoroddsen unnu fyrir Illuga Gunnars-
son, menntamálaráðherra, er mikilvægasta
innleggið um bættan ríkisrekstur í mörg ár.
Friðrik Friðriksson
Í sjálfheldu sérhagsmuna
ríkisrekstur og fjölmiðlar