Þjóðmál - 01.12.2015, Blaðsíða 15
14 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015
Engin slík markmið um fjárfestingar í
innviðum er að finna hjá íslenskum stofnana-
fjárfestum.
Hvernig er aðkomu einkaaðila að
innviðafjárfestingum háttað?
Aðkoma stofnanafjárfesta er svo sem ekki
ný af nálinni þegar kemur að innviðum en
hún hefur einkum verið í formi fjárfestinga
í skráðum innviðafyrirtækjum, fjárfestinga í
einkavæðingu innviðafyrirtækja, kaupum á
skuldabréfum innviðafyrirtækja eða skulda-
bréfum sveitarfélaga eða ríkis.
Fram að þessu hefur hefðbundin fjármögn-
un innviðafjárfestinga verið að mestu bundin
við bankafjármögnun og útgáfu skuldabréfa.
Áhrif lánsfjárkreppunnar, nýrra og þrengri
reglugerða hafa takmarkað möguleika
bankastofnana til fjármögnunar á efnahags-
reikningi sínum, einkum og sér í lagi til lengri
tíma.
Verkefnatengdri fjármögnun hefur vaxið
fiskur um hrygg á síðustu árum. Algengasta
form innviðafjárfestingar er svokallað Public-
Private Partnership eða P3 sem skilgreina
má sem langtíma, árangursmælanlega
aðferð til að tryggja uppbyggingu þjóðhags-
lega ábatasamra innviðaverkefna þar
sem einkaaðilar taka stærstan eða stóran
hluta áhættunnar þegar kemur að hönnun,
fjármögnun, byggingu, rekstri og hagkvæmni
verkefnisins á líftíma þess. Í Bretlandi eru til
að mynda yfir áttahundruð slík verkefni. Í
upphafi voru flest þeirra tengd samgöngum
og spítölum, en síðar skólum og nú nýlega
sorphreinsun.
Okkur Íslendingum er tamt að horfa til
Norðurlandanna við allan samanburð. Þar
sjáum við ýmis dæmi um samstarf einkaaðila
og hins opinbera í samgöngumálum, til að
mynda í Noregi og reynslan þar hefur verið
góð af slíku samstarfi.
Til eru margar mismunandi útfærslur af P3
samstarfi opinberra aðila og einkaaðila en
helsti munurinn snýr að þeirri áhættu sem
Uppsöfnuð fjárfestingarþörf í
innviðum á Íslandi, bæði hefð-
bundnum og félagslegum, er um
12-15% af vergri landsframleiðslu,
eða sem nemur að minnsta kosti 250
milljörðum króna. Fjárfestingarþörf i
innviðum næstu 7-10 árin verður að
minnsta kosti 500 milljarðar eða um
25% af vergri landsframleiðslu.
Verkefnatengdri fjármögnun hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum. Algengasta form innviðafjárfestingar er svokallað
Public-Private Partnership eða P3.