Þjóðmál - 01.12.2015, Page 26
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 25
ekki tilheyrði tilgangi RÚV var fátt um svör frá
þáverandi ráðherra Katrínu Jakobsdóttir.
Í september 2014 var 200 manns sagt upp
störfum hjá DR. Við það tækifæri sagði fram-
kvæmdastjórinn:
„Við hjá DR horfumst í augu við miklar
áskoranir. Við höfum metnað til að veita
almannaþjónustu af miklum gæðum fyrir
alla Dani á tímum þegar tækniþróunin
hefur snarbreytt notkun á fjölmiðlum.
Sú breyting gerir þá kröfu til okkar að
endurhugsa efnisframboðið og auka þjón-
ustuna á sama tíma“.
RÚV og Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með málefni
RÚV nánast alfarið í 30 ár og ber því mestu
ábyrgð á því hvernig komið er. Núverandi
menntamálaráðherra fær plús fyrir að láta
gera RÚV skýrsluna sem greinir vandann.
En fylgir hugur máli og vilji til að ráðast í að
leysa vandann? Um það má því miður efast.
Ráðherrann gefur strax eftir með því að klára
ekki hagræðingarkröfuna gagnvart RÚV, með
því að falla frá lækkun útvarpsgjaldsins sem
komið var inn í fjárlagafrumvarpið fyrir 2016.
Hann klárar ekki þjónustusamning sem
rann út 2013 og fjallar ekki um starfsemi
RÚV út frá réttum forsendum. Í stað þess
reyndir ráðherrann að réttlæta það sérstak-
lega að biðja skattgreiðendur um að greiða á
fjórða milljarð inn í stofnun, sem er illa rekin,
kostar of mikið og hefur óljósan tilgang,
enda enginn gert tilraun til að skilgreina
hann. Ráðherrann gerir því lítið með nýjar
samþykktir landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Hann á þó sögulegt tækifæri til að gera rétta
hlutinn, byggja á þeim staðreyndum sem liggja
fyrir og draga af þeim réttar ályktanir.
Þrátt fyrir viðleitni við að láta gera skýrsluna
margnefndu eru líkurnar mestar á að ráðherr-
ann breyti engu, enda tími til þess að renna
út. Hann mun því að öllum líkindum fylla
fríðan flokk ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem
gefist hafa upp fyrir RÚV og orðið sérhags-
munum að bráð.
Friðrik Friðriksson er viðskipta-
fræðingur með MA í hagfræði og MBA í
rekstrarhagfræði
Menntamálaráðherra fær plús fyrir að láta gera RÚV skýrsluna sem
greinir vandann. En fylgir hugur máli og vilji til að ráðast í að leysa vandann?
Í Morgunblaðinu í dag talar
Svavar Gestsson um nýlega
ferð sína til Austurþýskalands
þar sem fram fari ,,Uppgjör
án miskunar“ en lætur þess
ógetið að sjálfur hefur hans
uppgjör átt sér stað án iðrunar,
svona ekki ósvipað og með
Isave samninginn.
Svavar stundaði nám við
sérskóla fyrir efnilega komm-
únista: Institut für Gesells-
chaftswissenschaften beim ZK
der SED. Í viðtali við DV árið
1989 þegar múrinn var fallinn
lýsti Svavar breytingunni:
„Ég tel að þessi niðurstaða í
Sovétríkjunum og sérstak-
lega A-Þýskalandi sé sigur
sósíalismans sem brýtur
niður járnrimlana því það
er ekki hægt að halda
honum föstum í tukthúsi –
hann brýst út.
Borgarastéttin í landinu
hefur reynt að stimpla
marxismann sem einhvern
afbrigðilegan óþverra og
það skrifum við auðvitað
ekki upp á.”
Þó að námið hafi verið
veitt af æðstu stjórn komm-
únistaflokksins, hafa engin
skjöl fundist um ætlað hlut-
verk eða störf Svavars fyrir
flokkinn eða undirstofnanir
hans eins og hina geðfeldu
stofnun STASI.
Arnar Sigurðsson á blogg-
síðu sinni 28. nóvember 2015
Uppgjör án iðrunar