Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 33

Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 33
32 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 dagar.5 Sambærileg könnun á ferðavenjum Íslendinga var gerð á árinu 2015 og kemur þar fram að 87,1% þjóðarinnar hafði ferðast innanlands og erlendis á árinu 2014.6 Af þessum tveimur könnunum má draga þá ályktun að áhugi landsmanna á ferðalögum um landið hafi síst minnkað, ef eitthvað hefur hann aukist. Raunar er það svo að munurinn milli kynja og aldurshópa lítill. Og það sem hlýtur að teljast stórmerkilegt að áhuginn virðist vera stéttlaus. Allir ferðast innanlands. Ekki aðeins hafa orðið breytingar á viðhorfi alls almennings heldur hafa samhliða orðið gríðarlega breytingar í lögum og reglum um náttúru- og umhverfisvernd. Samkvæmt lögum eru flestar framkvæmdir háðar mati á umhverfisáhrifum, til eru lög gegn mengun hafs og stranda, um meðhöndlun úrgangs, náttúruvernd, rekstur fráveitna, efni og efnablöndur, bann við losun hættulegra efna í sjó og lög um sinubrennur og meðferð elda á víðavangi og lög um verndar- og orkunýt- ingaráætlun sem í daglegu tali eru nefnd rammaáætlun. Þetta og margt fjölmargt annað hefur orðið til á innan við þremur ára- tugum. Starfandi er ráðuneyti um umhverfi og auðlindir og sérstök opinber stofnun sem nefnist Umhverfisstofnun. Stofnaðir hafa verið nýir þjóðgarðar, annar kenndur við Vatnajökul og hinn við Snæfellsjökul. Ekki má heldur gleyma frjálsum félaga- 5 Viðhorfsrannsókn, Ferðamálaráð, Ferðavenjur árið 2000, Íslenskar markaðsrannsóknir desember 2000. 6 Ferðamálastofa 2015, Ferðalög Íslendinga, mars 2015, Markaðs- og miðlarannsóknir. samtökum sem láta sig varða náttúru- og umhverfisvernd. Meðal þeirra eru Ferðafélag Íslands, Útivist, Íslenski Alpaklúbburinn, Samtök útivistarfélaga, Ferðaklúbburinn 4x4, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Jöklarannsóknarfélag Íslands, Fuglaverndun- arfélag Íslands, Hellarannsóknafélag Íslands, Náttúruvaktin og samtök um náttúruvernd eru starfandi í öllum landsfjórðungum. Upptalningin er síður en svo tæmandi og má nefna til sögunnar margvíslegar upplýsinga- og umræðusíður á Facebook um þessi mál og vefsíðuna sem hin öflugu samtök Framtíðar- landið standa að, framtidarlandid.is. Áhugi landsmanna er vissulega fyrir hendi. Þó ágreiningur sé um leiðir eru markmiðin í flestum tilvikum sameiginleg og öllum ljós. Þversögnin Áður var sagt að til að skilja íslenska náttúru þurfi skilning á sögu landsins, ævintýrum, þjóðsögum, reynslu genginna kynslóða, og ekki síður hugsunarhætti landsmanna. Hér hefur verið stiklað á stóru frá upphafi landnáms. Niðurstaðan er sú að til að þrauka gekk þjóðin á náttúru landsins, harðindi voru tíð og allt þetta hafði þær afleiðingar að það var nær skóglaust og öðrum gróðri hnignaði, gróðurleysur stækkuðu. Frammi fyrir þessu stendur þjóðin og getur í raun ekkert gert annað en bætt úr eins og kostur er, gera landið búsældarlegra með skógi og öðrum gróðri, þó ekki væri til annars en að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Þjóðin býr nú vel að sér. Nú steðja ekki önnur harðindi að henni nema hugsanlega hin efnahagslegu og hart er brugðist við þeim. Þó vissulega sé þjóðfélagið með öðrum brag en fyrr á öldum koma margir auga á þversögnina. Þrátt fyrir nýjar kynslóðir, breytt viðhorf til landsins, náttúrunnar og fleira og fleira virðist enn svo að „hönnun“ landsins sé ekki nógu góð. Búsældin mætti að áliti fjölmargra vera betri en lengst af hefur verið talið og því er komin upp meinleg þörf á að breyta landi, „endurhanna“ og laga sem áður þótti fullgott frá náttúrunnar hendi. Þversögnin er eitthvað á þessa leið: Um leið Þrátt fyrir nýjar kynslóðir, breytt viðhorf til landsins og fleira og fleira virðist enn svo að „hönnun“ landsins sé ekki nógu góð. Búsældin mætti að áliti fjölmargra vera betri en lengst af hefur verið talið og því er komin upp meinleg þörf á að breyta landi, „endurhanna“ og laga sem áður þótti fullgott frá náttúrunnar hendi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.