Þjóðmál - 01.12.2015, Side 40
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 39
komust í hendur einstaklinga. Yfirleitt á spott-
prís sem ekki endurspeglaði vænt eða raun-
veruleg verðmæti. – Þetta er tími sem fram til
þessa var einstæður í sögunni og mun líklega
aldrei koma aftur, sagði Bill Browder
höfundur bókarinnar Eftirlýstur, á fundi í
Háskóla Íslands í tilefni af útgáfu bókarinnar
hér á landi.
Gríðarleg verðmæti skiptu um hendur
Gleymum því ekki að í Rússlandi eru gríðar-
legar auðlindir af fjölþættum toga þar sem
olían spilar þó stærstu rulluna. Þarna fór
fram margs konar framleiðsla fyrir stórþjóð
og fylgihnetti hennar. Sovétríkin höfðu þrátt
fyrir allt átt viðskipti við aðrar þjóðir. Meira
að segja við hér uppi á litla Íslandi þekktum
það. Olía var lengst af nær eingöngu keypt
hingað til lands af Sovétríkjunum – i skiptum
fyrir fisk og iðnaðarframleiðslu. Fyrirtæki sem
höfðu stundað þessi viðskipti í Sovétríkjunum
voru skyndilega í lausu lofti. Reksturinn í
fullkomnu uppnámi og enginn vissi hvernig
ætti að bregðast við. Eignir skiptu um hendur
og gríðarleg verðmæti voru þannig flutt frá
íbúum hins nýja Rússlands til kaupahéðna og
braskara en auðvitað líka til alvöru kaupsýslu-
manna sem voru drifnir áfram að heilbrigðri
hagnaðarvon.
Þeir lukkunnar pamfílar sem gátu komist
yfir eignir við þessar aðstæður gátu ætlað
að þeirra biði rósrauð framtíð. Þeir sátu með
í höndunum eignir sem í mörgum tilvikum
höfðu verið verðlagðar með afar frum-
stæðum hætti.
Skjótt skipast veður í lofti
En veður skipaðist skjótt í lofti. Hið nýja Rúss-
land tók á sig nýja mynd. Í bókinni Eftirlýstur
eftir Bill Browder sem Almenna Bókafélagið
gaf út er gefin lýsing á þessu þjóðfélagi. Sam-
kvæmt lýsingu höfundar er hið nýja Rússland
í raun bófasamfélag, þar sem leikreglurnar
eru sniðnar að hagsmunum ríkjandi afla,
stjórnvalda sem maka krókinn og allsherjar
spillingu. Réttarríki í þeim skilningi sem við
leggjum í það hugtak fyrirfinnst ekki. Lög-
reglan er handbendi stjórnvalda; ekki þjónn
almennings heldur óvinur. Í réttarsölum fer
ekki fram málsmeðferð þar sem sakborningar
eiga rétt, nema það henti þörfum þeirra sem
ráða. Eignarrétturinn, hornsteinn siðaðrar
samfélagsgerðar er í engu metinn. Og æðstu
stjórnendur maka krókinn, ætla sér hlut af
viðskiptalegum gripdeildum til persónulegra
þarfa og eignar. Browder hélt því til dæmis
blákalt fram á fundinum í Háskóla Íslands að
Pútín Rússlandsforseti sé ríkasti maður heims;
ríkari en Bill Gates, Warren Buffet, Carlos
Slim Helu og þeir allir. Allt með þeim hætti
að hann krafðist hlutar af þeim sem hann
heimilaði að stunda viðskipti sem náðu máli
í Rússlandi. Í kring um hóp æðstu stjórnenda
er síðan flókinn vefur minni spámanna sem fá
sína sneið af kökunni; milljón hér og milljón
þar, sem dugir umtalverðum hópi fólks til
þess að lifa í vellystingum praktuglega. Eins
og Browder lýsir þessu hafa þessir menn
(og konur eru auðvitað líka menn, þó þeirra
hlutur virðist rýrari) beina hagsmuni af því að
viðhalda þessu valdakerfi og fyrirkomulagi.
Þetta eru lögreglumenn og dómarar, minni-
háttar kaupsýslumenn, stjórnmálamenn,
kerfiskallar og kellingar og svo framvegis.
Eins konar köngulóavefur sem teygir sig um
samfélagið og tryggir þetta fyrirkomulag.
Þessu fólki er það í hag að þannig verði þetta
áfram og gætir þess að rugga engum bátum
svo hagmunir þess raskist ekki. Efst trónir svo
elítan skipuð „ólígörkum“ af ýmsum toga. En
fróðlegt er að þetta hugtak er enskusletta
byggð á rússnesku orði og vísar til einhvers
konar klíku eða fámennisstjórnar sem makar
krókinn.
Lýsing Browdens
Bók Bill Browder er auðvitað einhliða lýsing
hans á Rússlandi. Æsispennandi og reyfara-
kennd svo ekki sé meira sagt, en byggð á ævi
hans og reynslu af rússnesku samfélagi og
viðskiptalífi eftir hrun kommúnismans. Það er
stundum sagt að sannleikurinn geti stundum
verið ótrúlegri en nokkur skáldsaga og oft
kom það upp í hugann við lestur bókarinnar.
Á köflum er hún líka átakanleg, svo sem
eins og lýsingin á örlögum lögfræðingsins