Þjóðmál - 01.12.2015, Page 51
50 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015
Al Capone sagðist ekki bera
ábyrgð á því þó fyrirtækið
sem hann átti að stærstum
hluta hefði gerst sekt um
glæpsamlega starfsemi.
Hann væri bara hluthafi
og skipti sér ekki af rekstri
fyrirtækisins. Al Capone var
í því að selja fólki ólöglegan
vökva, áfengi, á bannárunum
í Bandaríkjunum. Þegar
hann var sakaður um að hafa
svikið undan skatti sagði Al
Capone.: „Það er ekki rétt það
er ekki hægt að leggja skatt á
ólöglegar tekjur."
Samkvæmt frumskýrslu
Samkeppniseftirlitsins um
sölu á öðrum vökva en
áfengi þ.e. olíu kemst þessi
opinberi eftirlitsaðili að þeirri
niðurstöðu í frumskýrslu
sinni að olíufélögin hafi stolið
rúmum fjórum milljörðum af
neytendum árið 2014.
Talsmenn olíufélaganna
segja þetta alrangt og hafa
upp orðagjálfur og röksemdir
sem eru sambærileg mál-
flutningi þeirra fyrir tveim
áratugum, þegar flett var
ofan af víðtækri svikastarf-
semi og samráði þeirra. Þá
var stolið milljörðum af neyt-
endum, en ekki bara það.
Húnæðislánin hækkuðu líka
vegna ólögmæta samráðsins.
Neytendur hafa aldrei
fengið tjón sitt vegna þeirrar
svikastarfsemi olíufélaganna
bætt.
Nú eru eigendur olíufélag-
anna að stórum hluta lífeyris-
sjóðir. Sjóðir fólksins eins og
talsmenn þeirra segja jafnan.
Þessir eigendur olíufélag-
anna segja að þeim komi
svikastarfsemi fyrirtækja
sinna ekki við, af því að þeir
skipti sér ekki af rekstrinum.
Er það tæk skýring?
Neytendur eru neyddir til
þess með nauðungarlögum
að borga mestan hluta
mögulegs sparnaðar síns til
lífeyrissjóða. Er hald í því fyrir
talsmenn lífeyrissjóðanna að
segja að þeim komi ekki við
þegar fyrirtæki þeirra eru að
arðræna fólkið sem á lífeyris-
sjóðina? Fólkið sem fær engu
ráðið um starfsemi þeirra en
verður bara að borga.
Þegar eigendur lífeyris-
sjóða láta sér vel líka vegna
þess að fyrirtæki skilar
góðum hagnaði og skella
skollaeyrum við þegar á það
er bent að hagnaðurinn sé
að stórum hluta vegna ólög-
mætrar starfsemi þá er það
ekki að neinu leyti tækari
röksemdir en röksemdir Al
Capone fyrir tæpri öld.
Jón Magnússon á bloggsíðu
sinni 2. desember 2015
atvinnulífið
Crime syndicate ltd.