Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 54
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 53
flestra starfa menn sem hafa styrkst í átökun-
um og hafa nú skarpari sýn á framtíðina en
áður. Þótt rykið hafi ekki enn sest, er flestum
ljóst að það hafa orðið ný vatnaskil í íslenskum
stjórnmálum. Þau bjóða upp á nýja mögu-
leika, sem snerta grundvallaratriðin.
Endurreisn frumþarfa
Þeir Íslendingar, sem ólust upp við sjálfs-
þurftabúskap eru orðnir fáir. Sjálfur tilheyri
ég þeirri kynslóð Íslendinga, sem fetaði sín
fyrstu spor sem sérhæft neyslusamfélag, og
eru nú taldir til safngripa.
Gífurlega ör þróun heimsviðskipta hefur
– á tiltölulega skömmum tíma – gerbreytt
afstöðu okkar til lífsnauðsynja. Við þurfum ekki
að sinna frumþörfum okkar. Það gera aðrir.
Eða réttara sagt, það eru engar frumþarfir.
Allir eru sérhæfðir. Sumir í vélbúnaði. Aðrir
í hveiti. Við sendum okkar fisk og tölvuleiki
út um allan heim. Heimurinn sendir okkur
mat. Jarðaber berast okkur allt árið, flutt um
hálfan heiminn. Þótt þau séu bragðlaus, eru
þau að minnsta kosti rauð og óháð árstíðum
að því er virðist. Fjarlægðir skipta ekki máli.
Að vísu þarf að yfirvinna þær á kostnað um-
hverfisins, en það er ekki enn orðið refsivert á
alþjóðavísu. Er á meðan er.
Mikill vöxtur alþjóðaviðskipta lýtur
reglum og eftirliti. Hvort tveggja er veikt.
Reglur þjóðríkja, með alla sína veikleika,
eru enn sterkari stofnanir og trúverðugri
en fjölþjóðlegar reglur að ekki sé minnst á
reglur hins svokallaða alþjóðasamfélags.
Alþjóðaviðskipti hafa á hinn bóginn sýnt
fram á takmarkanir þjóðríkisins við að tryggja
hag þegna sinna. Veraldarviðskiptin hafa
sína guði. Lýðræðið, með sínar áherslur á hag
fólksins, atvinnuþátttöku og kaupmátt launa,
er ekki meðal þeirra.
Hægri menn eru vanir því að tala af virðingu
um frjálsa verslun og kapítalisma. Þeir líta
á hvort tveggja sem verkfæri til að örva
hagvöxt, bæta kaupmátt og kjör. Veraldar-
viðskipti hafa á hinn bóginn hafið frjálsa
verslun og frjálsa fjármagnsflutninga upp á
stall. Hér er um að ræða trúarbrögð sem ná
yfir allan heiminn og sameina ólíklegustu öfl.
Til marks um þessi nýju viðhorf er Kínverska
alþýðulýðveldið. Kínverski kommúnistaflokk-
urinn og kínverskir athafnamenn eru mikil-
vægir lánardrottnar elsta nútímalýðveldis
Mikill vöxtur alþjóðaviðskipta lýtur reglum og eftirliti. Hvort tveggja er veikt. Reglur þjóðríkja, með alla sína veikleika, eru
enn sterkari stofnanir og trúverðugri en fjölþjóðlegar reglur að ekki sé minnst á reglur hins svokallaða alþjóðasamfélags.
Alþjóðaviðskipti hafa á hinn bóginn sýnt fram á takmarkanir þjóðríkisins við að tryggja haga þegna sinna.