Þjóðmál - 01.12.2015, Qupperneq 58
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 57
að orkumálum álfunnar. Þær tóku þó ekki
á sig þá hrollverkjandi mynd, sem nú blasir
við, fyrr en eftir fjármálakreppuna. Þær voru
staðfestar og skilgreindar af mikilli nákvæmni
og yfirsýn árið 2014 í bók Martin Meredith
The Fortunes of Africa.
Bandaríki Norður-Ameríku, öflugasta
ríki heimsins, hafa gengið í gegn um þrjú
orkutímabil. Á 19. öld urðu þau olíuveldi. Í
seinni heimsstyrjöldinni náðu þau óbein-
um yfirráðum yfir verulegum hluta af
orkusölu heimsins, og studdu þá stöðu með
stjórnmálatengslum og hernaðarlegum
yfirburðum. Á valdatíma Ronald Reagan
var gripið til ýmissa ráða til að grafa undan
efnahagslífi Sovétríkjanna. Nánir bandamenn
Reagans, Saudi-Arabía, juku olíuframleiðslu
með þeim afleiðingum að olíuverð hrapaði
árið 1985, en olía var burðarás í efnahagslífi
Sovétríkjanna.
Jafnvel eftir árasina á tvíburaturnana, árið
2001 taldi sérfræðingur Cato-stofnunarinnar
að það væri ekki veikleikamerki að Banda-
ríkin væru háð innflutningi 13% af olíuneyslu
sinni frá óöruggasta hluta heimsins. Banda-
rísk stjórnvöld voru á öðru máli. Markvisst var
unnið að því að breyta stöðunni. Árið 2008
voru Bandaríkin þriðji stærsti olíuframleiðandi
heimsins, á eftir Saudi-Arabíu og Rússlandi.
Árið 2012 urðu Bandaríkin stærsti olíu- og
gasframleiðandi heimsins og eru það enn.
Þessi breyting hefur gerbreytt stöðu í heims-
málum. Vinnsluaðferðir eru hins vegar mjög
umdeildar heima fyrir og vekja upp alvarlegar
spurningar um umhverfisáhrif þeirra.
Staða Íslands gagnvart frumþörfum
Svo vill til að Íslendingar standa vel að því
er vatn varðar. Þeir standa einnig býsna vel í
orkumálum, en gætu þó mótað mun meira
sannfærandi stefnu um sjálfstæði í þeim
málaflokki. Báðir þessir málaflokkar eru mikil-
vægir með hliðsjón af möguleikum Íslands til
að reka hér sjálfstætt og fullvalda ríki.
Að því er varðar matvælin er staðan
flóknari. Íslendingar hafa náð lengra en
flestar aðrar þjóðir í að nýta sjávarauðlindir
sínar á sjálfbæran hátt. Það er alþjóðlega
viðurkennd staðreynd, sem er minna metin á
Íslandi en erlendis.
Á hinn bóginn er staða landbúnaðarins
mjög óviss. Annars vegar hefur land-
búnaðurinn náð sterkum tökum á fram-
leiðslu vandaðra matvæla og býður upp á
ótrúlega fjölbreytt vöruúrval þrátt fyrir smæð
markaðarins. Þessi árangur eru byggður á
traustri menntun, miklu þróunarstarfi og
fjárfestingu.
Eins og landbúnaður nágrannaþjóða, lifir
íslenskur landbúnaður við kerfisfjötra, sem
stuðla að því að halda niðri matvöruverði.
Talsverður hluti þjóðarinnar, og umtals-
verður hluti af stjórnmálamönnum hennar
og fulltrúum launþega trúa því að hagur
Staða íslensks landbúnaðar er mjög óviss. Annars vegar
hefur landbúnaðurinn náð sterkum tökum á framleiðslu
vandaðra matvæla og býður upp á ótrúlega fjölbreytt
vöruúrval þrátt fyrir smæð markaðarins. Þessi árangur eru
byggður á traustri menntun, miklu þróunarstarfi og fjár-
festingu. Hins vegar býr landbúnaðurinn við kerfisfjötra.