Þjóðmál - 01.12.2015, Page 74
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 73
Í kennslustofunni
Karl Ívanytsj var í afar slæmu skapi. Það sást á
því hvernig hann hnyklaði brýnnar og slengdi
lafafrakkanum niður í kommóðuskúffuna,
hvað hann gyrti sig reiðilega og strikaði fast
með nöglinni í lestrarbókina til að merkja við
kaflann sem við áttum að kunna utanbókar.
Volodja sinnti lærdómnum sómasamlega
en ég var hins vegar svo miður mín að mér
varð ekkert úr verki. Ég horfði lengi tómlega
á bókina en tárin sem fylltu augu mín vegna
yfirvofandi aðskilnaðar hindruðu allan lestur.
Þegar ég átti loks að fara með kaflann fyrir
Karl Ívanytsj, sem hlustaði á mig með hálf-
luktum augum (sem ekki var góðs viti), og
var einmitt kominn að þeim stað þar sem
einn segir: „Wo kommen Sie her?“ en hinn
nýjar bækur
Lev Tolstoj
Bernska, Æska, Manndómsár
Rússneski skáldjöfurinn Lev Tolstoj (1828–1910) er flestum kunnur fyrir stórvirki sín,
Stríð og frið og Önnu Karenínu. Fyrstu þrjár skáldsögur hans voru þríleikurinn
Bernska, Æska og Manndómsár. Þær eru jafnan núorðið gefnar út í einu lagi. Bækurnar
byggja á uppvexti skáldsins og flestar persónur þeirra eiga sér að nokkru fyrirmynd
í ævi Tolstojs sjálfs. Bókaútgáfan Ugla hefur nú gefið út þessa hrífandi og djúpvitru
uppvaxtarsögu í rómaðri þýðingu Önnu Agnarsdóttur sem einnig skrifar inngang um
Tolstoj og verk hans. Hér fara á eftir þrjú kaflabrot úr bókinni: