Þjóðmál - 01.12.2015, Page 79

Þjóðmál - 01.12.2015, Page 79
78 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 einu kerti í stofunni. Mamma hafði sagt að hún myndi vekja mig sjálf. Það var hún sem hafði sest hjá mér í hægindastólinn þar sem ég svaf og strokið hár mitt með dásamlega mjúkri hönd sinni. Rétt við annað eyrað heyri ég kunnuglega rödd hennar sem er mér svo kær: „Á fætur með þig, ástin mín. Það er kominn háttatími.“ þar sem við erum ein og enginn að fylgjast með okkur þarf hún ekki að vera feimin við að sýna mér alla þá blíðu og ást sem hana langar til. Ég hreyfi mig ekki en kyssi hönd hennar enn fastar. „Stattu nú upp, engillinn minn.“ Hún leggur hina höndina utan um hálsinn á mér, fingurnir flögra um hálsakotið og kitla mig. Í herberginu er hljótt og hálfdimmt. Það fer fiðringur um mig, svona nývaknaðan, við kitlið. Mamma situr þétt upp við mig, hún snertir mig, ég finn ilminn af henni og heyri rödd hennar. Allt þetta hefur þau áhrif á mig að ég stekk á fætur, flýg upp um hálsinn á henni, þrýsti höfðinu að brjósti hennar og segi með öndina í hálsinum: „Æ, elsku, elsku mamma, hvað mér þykir vænt um þig!“ Hún brosir sínu raunamædda en töfrandi brosi, tekur utan um höfuð mitt með báðum höndum, kyssir mig á ennið og lætur höfuð mitt svo hvíla í kjöltu sinni. „Þykir þér virkilega vænt um mig?“ Hún þagnar andartak en segir síðan: „Hlustaðu nú. Þú verður alltaf að elska mig, þú mátt aldrei gleyma mér. Ef mamma þín væri ekki lengur til staðar myndir þú ekki gleyma henni, er það nokkuð, Kolja minn?“ Hún kyssir mig enn blíðar. „Hættu! Ekki tala svona, mamma mín, elsku besta mamma!“ hrópa ég upp yfir mig og kyssi hana á hnén. Það streyma tár úr augum mínum, tár ástar og hrifningar. Síðan fer ég upp á loft og stend, eins og ég er vanur, fyrir framan íkonana í stutta vatt- sloppnum mínum, og mér líður svo feiknalega vel þegar ég segi: „Elsku Guð, passaðu mömmu og pabba.“ Ég endurtek bænirnar sem barnsvarir mínar höfðu fyrst eftir minni ástkæru móður og ást mín til hennar og til Guðs blandast á einhvern undarlegan hátt og rennur saman í eina og sömu tilfinninguna. Eftir bænirnar vef ég kannski sænginni utan um mig. Ég er í ljómandi léttu og góðu skapi. Draumar sækja að mér, einn á fætur öðrum – en um hvað eru þeir? þeir eru óljósir en fullir af fölskvalausri ást og von um ein- skæra hamingju. Kannski hvarflar hugurinn að Karli Ívanytsj og bitrum örlögum hans – hann var eini óhamingjusami maðurinn sem ég hafði kynnst – og þá finn ég svo til með honum og þykir svo vænt um hann að tárin taka að renna niður kinnarnar og ég hugsa: „Guð gefi að hann verði hamingjusamur og að ég fái tækifæri til hjálpa honum og létta raunir hans. Ég er tilbúinn að fórna hverju sem er fyrir hann.“ Síðan sting ég uppáhalds postulínsdýrinu mínu – til að mynda héra eða hundi – undir horn dúnkoddans og hugsa um hvað það er hlýtt og gott og notalegt fyrir dýrið að liggja þarna. Ég bið þess líka að Guð geri alla hamingjusama og glaða og að það verði gott veður á morgun í lautartúrnum. Síðan sný ég mér á hina hliðina, hugsanir og draumar renna saman og smám saman sofna ég, kinnarnar enn votar af tárum. Kemur áhyggjulaus bernskan með sína styrku barnatrú og þörf fyrir umhyggju nokkurn tíma til baka? Hvaða tími getur talist betri en sá þegar tvær framúrskarandi dyggðir – saklaus glaðværð og skilyrðis- laus krafa um ást – voru einu hvatirnar í lífi manns? Hvar eru nú þessar áköfu bænir og hin hjartnæmu og hreinu tár? Verndarengill flaug af himnum ofan og þurrkaði burt tárin með bros á vör og vakti sæta drauma í óspilltu ímyndunarafli barnsins. Hefur lífið virkilega markað svo þung spor í hjarta mitt að þessi tár og þessar ástríður séu mér horfin að eilífu? Eru endurminningarnar virkilega það eina sem ég á eftir? thjodmal.is vefur með skoðanir

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.