Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 88

Þjóðmál - 01.12.2015, Síða 88
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2015 87 skömmu síðar til Englandsbanka, en því bréfi var ekki svarað. Ólafur telur, að Davíð hefði átt að þiggja aðstoð Kings við að reyna að minnka íslensku bankana (bls. 68–69). En hvað felst í því? Ekki getur verið átt við annað en áætlun um að neyða íslensku bankana til að selja eignir, þótt skráð eigið fé þeirra væri verulegt. Um leið og slík áætlun hefði verið samin eða kynnt, hefði allt traust á bönkunum horfið og þeir fallið. Vorið 2008 var ástandið á alþjóðlegum fjármálamarkaði orðið mjög viðkvæmt. Þá þurfti ekki slíka áætlun, heldur aðgang að lausafé, og um það neitaði Englandsbanki Seðlabankanum. Síðar á árinu neitaði líka bandaríski seðlabankinn Seðlabankanum um gjaldeyrisskiptasamning, um leið og hann gerði slíka samninga við alla aðra seðlabanka í Vestur-Evrópu utan evru- svæðisins, sem gerði þeim kleift að bjarga bönkum, sem ella hefðu hrunið, eins og síðar kom á daginn, til dæmis Royal Bank of Scot- land og Danske Bank. Þarf að skýra, hvers vegna Íslendingar sættu þessari sérmeðferð. Þjóðsögur Ólafs um Rússalánið og hryðjuverkalögin Ólafur Arnarson víkur nokkrum orðum að Rússaláninu svonefnda 2008 (bls. 102–103): „Sendiherra Rússa, Victor I. Tatarintsev, mun hafa verið æfur yfir frumhlaupi Davíðs þegar það átti sér stað þó að hann hafi örfáum mánuðum síðar lýst því sem farsakenndri uppákomu í samtölum.“ Ólafur bætir við: „Rússar hefðu getað lokið þessu máli innan ákveðins tímaramma ef Davíð Oddsson hefði ekki eyðilagt málið. Þetta er haft eftir Tatarintsev sem hefur ekki farið leynt með það í viðtölum við æðstu menn hvern hann telur vera hlut formanns bankastjórnarinnar í því að ekkert varð úr láni frá Rússlandi.“ Hér eru ummæli höfð eftir sendiherranum í trausti þess, að hann sé ekki til andsvara. Hið rétta í málinu er, að sendiherrann hafði að eigin frumkvæði samband við Davíð Oddsson snemma morguns þriðjudaginn 7. október og tilkynnti honum, að Rússar væru reiðubúnir að lána Íslendingum fjóra milljarða evra á lágum vöxtum. Kvað hann engin tormerki á því að skýra opinberlega frá því. Svo virðist hins vegar sem málið hafi ekki verið fullafgreitt í Moskvu, því að síðar um daginn hafði sendiherrann aftur samband við Davíð og bað hann að draga í land. Davíð gerði það, þótt hann vissi vel, að sér yrði núið því um nasir. Um leið og Rússar fengu veður af því, að Íslendingar hygðust ef til vill leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, misstu þeir áhuga á að veita lán. Stjórnmálasjónarmið höfðu vitanlega ráðið upphaflegum áhuga þeirra. Ég sat þá í bankaráði Seðlabankans og fylgd- ist vel með þessu. Tryggvi Þór Herbertsson, sem þá var efnahagsráðgjafi forsætisráðherra og hafði rætt við Rússa á bak við tjöldin, hefur líka staðfest þetta í samtali við mig. Töluðu þeir sendiherrann saman í síma að morgni 7. október, strax eftir að sendiherrann hafði hringt í seðlabankastjóra. Eðlilegt var, að Íslendingar leituðu austur, þegar önnur sund lokuðust. Þeir höfðu gert hið sama undir forystu Bjarna Benediktssonar, þáverandi utanríkisráðherra, sem enginn sakaði um Rússadekur, eftir löndunarbann Breta í land- helgisdeilunni 1952. Ólafur Arnarson vitnar (bls. 74) í breska blaðið Guardian frá 23. janúar 2011 um það, að Davíð Oddsson hafi valdið „upp- námi breskra stjórnvalda þegar hann í miðri hringiðu bankakreppu kom fram í íslenska Ríkissjónvarpinu 7. október og lýsti því yfir að Íslandi ætti ekki og myndi ekki axla kostnaðinn vegna hinna föllnu banka“. Síðan segir Ólafur: „Það voru orð Davíðs í Kastljósinu 7. október 2008 sem ollu því að hryðju- Ekki getur verið átt við annað en áætlun um að neyða íslensku bankana til að selja eignir, þótt skráð eigið fé þeirra væri verulegt. Um leið og slík áætlun hefði verið samin eða kynnt, hefði allt traust á bönkunum horfið og þeir fallið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.