Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Page 35

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Page 35
Smálegt um Aldamótabókina vantaði okkur kannski til þess allar forsendur svo sem sóknarnefndir, safnaðar- fundi og fleira. Skal nú vikið að söngtöflunum sem eru aðaltilefni þessarar samantektar. Strax og farið var að velja sálma fyrir hverja guðsþjónustu var nauðsynlegt að setja upp söngtöflur í kirkjunum svo að allir gætu séð hvað syngja ætti í messunni. Notkun taflanna þvældist reyndar fyrir sóknarfólki vegna slakrar lestrarkunnáttu. En útgefendur sálmabókarinnar voru stað- ráðnir í að fylgja breytingunni fast eftir. í formálanum mæla þeir svo fyrir að kirkjuhaldari sjái um smíði söngtaflanna og upphengingu í kirkjunni, enda væru þær hluti af inventari hennar. Skyldi þeim valinn áberandi staður svo að allir sæju hvaða sálmar yrðu sungnir í messunni. Ekki virðist hvarfla að forvígismönnunum að kirkjan kaupi sálmabækur - þær átti sóknarfólk að kaupa sjálft og hafa með sér til guðsþjónustu. Hélst sá siður víða hér á landi fram yfir miðja 20. öld eða þar til kirkjukórar voru stofnaðir og tóku að æfa söng fyrir kirkjulegar athafnir. En hvernig átti nú þessi nýi kirkjugripur söngtaflan að líta út? 1 mörgum dönskum kirkjum var fest upp svartmáluð tafla og sálmanúmerin rituð á hana með hvítri krít.4 Slíkar töflur voru settar upp í nokkrum íslenskum kirkjum og eru sums staðar notaðar enn, svo sem í kirkjunni í Berunesi í Suður-Múlasýslu og .víðar. Flestar íslenskar söngtöflur voru þó veglegri. En hvernig sem hönnun þeirra var háttað var við margvíslegan annan vanda að etja eins og skýrt kemur fram í formála Aldamótabókarinnar. Sem fyrr getur hamlaði ólæsi Balle biskup. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands breytingunni því stór hluti kirkjugesta þekkti ekki tölustafi, kunni ekki stafrófið, gat ekki flett upp í registri og sumir voru algjörlega ólæsir. Nýmælið kom því upp um fáfræði fólks, en það hefur eflaust gert mörgum kirkjugesti gramt í geði og vakið andúð hans á nýbreytninni jafnvel meiri en menn hafa áttað sig á. Er því fróðlegt að lesa hvað dómstjórinn og biskupinn hafa um þetta að segja: „En þá verður nú spurningin: hvörninn fær söfnuðurinn að vita og getur fundið hvað syngja á sérhvern messudag? Að geta fundið hvern sálm, þegar maður veit hans upphaf eða nr., þar til útheimtist ei annað en að lesandi maður, (og aðrir geta ei sungið á bók, þó allir sjáandi eigi nú lesandi að vera) fletti sálminum 4 Andreas Malling, Dansk salmehistorie, VIII. bind, Kobenhavn 1978, bls. 308 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.