Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 74
Múlaþing
Gunnlaugur Eiríksson.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
á Fjarðarheiði, hina í Hallormsstað. Sér-
staklega var Hallormsstaðaferðin vond. Við
fórum að heiman í þá ferð síðustu daga góu,
Eiríkur Sigurðsson, ég og faðir þinn. Við
vorum svo óheppnir að fá asahláku, svo
leiði spilltist. Höfðum þrjá sleða. Þegar í
Hallormsstað kom var marautt og við
urðum að selflytja ofan á Fljót. Vegna þess
urðum við dagþrota. Náðum aðeins síðustu
háttum í Geitagerði. Daginn eftir var
vestanrok og þíðvirði, þá var komið vatn á
ísinn á Fljótinu og glerhált. Ækin tóku á sig
mikið veður og við réðum ekkert við þau,
þó við reyndum að hamla eftir megni.
Komumst samt við illan leik út hjá
Skipalæk. Þar skildum við allt eftir,
komumst með sleðana tóma heim i Bót
einhverntíma um nóttina, blautir og illa til
reika.
Sömuleiðis fór hann upp um miðjar
nætur með okkur að bjarga fé í hús í
snjóburðarveðrum vetranna 1907 og 1908
laust eftir veturnætur og virtist ekki verða
meint af því vosi.
Ég varð fyrst var við að hann fékk vond
köst sumarið 1909, en þau munu hafa liðið
hjá, að minnsta kosti hlífði hann sér ekki
við vinnu um haustið og veturinn framan af.
Meir að segja fór hann í kafsnjó og
illsku tíð á pólitískan fund að Rangá 28.
febrúar 1910. Fór þaðan seint um kvöld í
dimmviðri, ásamt Halldóri bróður sínum,
Jóni á Hvanná, Jóni Þorbergssyni á
Laxamýri og Guttormi í Geitagerði, ætluðu
heim í Bót, en voru að villast eitthvað
norður á Lágheiði, rákust á steininn á
Stórusteinshlíðinni og þekktu sig þar. Þá var
auðvelt að rata heim í Bót. En 7 tíma voru
þeir á leiðinni.
Ekki man ég það glöggt hvenær faðir
þinn veiktist fyrir alvöru. En staddur var
hann í Fjallsseli þá. Mun hafa legið þar
tæpa viku, síðan var hann fluttur heim í Bót
og ég held að ég muni það að cftir það hafi
hann aldrei fötum fylgt.
Jónas Kristjánsson læknir stundaði hann
í veikindunum og mér skilst, að hann aldrei
vera á því hreina urn sjúkdóminn, fyrr en
hann var dáinn og krufinn. Þá kvað hann
það hafa verið krabba.
Foreldrar þínir giftust á Seyðisfirði
sumarið 1901 um leið og Þórdís og Davíð.1
Hver gifti þau man ég ekki hvort ég heyrði.
En séra Björn Þorláksson á Dvergasteini var
þá prestur á Seyðisfirði.
I aldarminningu afa þíns og ömmu eftir
Halldór Stefánsson er talið að foreldrar
þínir hafi byrjað búskap á Urriðavatni vorið
í
Þórdís Stefánsdóttir systir Péturs og Davíð Sigurðsson trésmíðameistari Akureyri.