Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Blaðsíða 151
Undir Fellaheiði 1703-2003
vinnumaður á Hafranesi. Samkvæmt
prestþjónustubók virðist hann hafa látist af
kviðsliti 1890.
Ingibjörg, f. 3. nóvember 1865, fór í
Skeggjastaði, sögð vera „niðurseta“ hjá
Einari Jónssyni og Hólmfríði Gunnlaugs-
dóttur síðari konu hans. Þetta taldist mjög
gott heimili. Þarna var hún næstu árin og er
síðast skráð þar í sóknarmannatali 31.
desember 1873. Finnst ekki eftir það. Árið
1874 vantar í kirkjubækur Ássóknar. Hefur
eflaust dáið það ár.
Friðrik, f. 9. október 1868, fór tæpra
tveggja ára í Ormarsstaði og er skráður
„ómagi“ þar. Fór 1872 að Ási til sr. Vigfúsar
Guttormssonar og Guðríðar Jónsdóttur.
Hann fluttist með Guðríði, þá ekkju, að
Hrafnsgerði 1876. Hún fluttist að Hallorms-
stað 1880. Næstu Qögur ár var Friðrik fyrst
á Klaustri, svo í Fjallsseli og á Ormars-
stöðum en fór 1884 til sex ára dvalar hjá
Guðríði og Páli syni hennar á Hallormsstað.
Var vinnumaður í Sauðhaga eitt ár en fór í
búnaðarskólann á Eiðurn 1891. Virðist hafa
verið mikill röskleikamaður. Varð vinnu-
maður í Hofteigi og seinna á Skeggja-
stöðum á Dal. Þar kynntist hann konu sinni
Helgu Sigurðardóttur. Þau fluttust til
Seyðisijarðar 1899 og bjuggu þar síðan.
Helga lést fimmtug að aldri 10. maí 1917.
Friðrik lést 4. ágúst 1920. Synir þeirra, Bogi
og Sigmar bjuggu á Seyðisfirði og eiga þar
afkomendur.
Eftir að Jón Jónsson frá Refsmýri fluttist
aftur i Fell frá Þernunesi var hann þar í
vinnumennsku á nokkrum bæjum, oft ekki
nema ár í senn. Var á Ási, Refsmýri,
Skeggjastöðum og Fjallsseli, fór að Klaustri
1880, að Egilsseli 1881 og þaðan lagði hann
af stað í ferð til Seyðisijarðar 19. maí 1884.
Varð bráðkvaddur á leiðinni. Jón var talinn
greinargóður og fróðleiksgjarn en óheppinn
í einkalífi sínu.
Oddbjörg Sigfúsdóltir Krossi.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
Málmfríður Jónsdóttir yngri, f. 10.
janúar 1834, var sex fyrstu æviárin með
foreldrunum í Refsmýri en síðan 10 ár í
fóstri hjá áðurnefndum Friðfinni
Flóventssyni og Guðrúnu Vigfúsdóttur. Var
með þeim á Ketilsstöðum og Beinárgerði á
Völlum til 1846 er þau fluttust að Stóra -
Steinsvaði í Hjaltastaðaþinghá. Þaðan fór
Málmfríður heim til foreldranna í Refsmýri
1850 og lést þremur árum síðar, 19 ára að
aldri. Páll, f. 22. rnars 1837. Lést í Refsmýri
23 ára 1860. Guðný (8331), f. í apríl 1838.
Húsmóðir í Refsmýri, sjá síðar. Vilhjálmur
f. í desember 1832 og Bessi f. 1832, létust
báðir á fyrsta ári. Sigfús (8330), f. 5. maí
1843, ólst upp í Refsmýri og hóf þar
búskap. Kvæntist Guðrúnu (2453) Hildi-
brandsdóttur frá Skógargerði. Þau fluttust
til Ameríku 1876 með tvær dætur
kornungar, Guðbjörgu og Guðrúnu. Það var
árið eftir Dyngjufjallagosið. Kalt árabil fór
í hönd, tímabil mikilla fólksflutninga til
Vesturheims.
149