Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 114

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 114
Múlaþing ■I Grágœs á flugi. Ljósmynd: Skarphéðinn G. Þórisson sjá til mannaferða, þeim er veitt fyrirsát eða þeir telja sig betur komna í hópi félaga og beitarsvæði gærdagsins lofar góðu. Af flugi gæsanna mætti ætla að ef ekkert óvænt kemur upp á, þá stjórnist ákvörðun um lendingarstað af áætlun að hluta til, þ.e.a.s. þær ætla sér á ákveðinn stað. Gæsirnar eru fastagestir einstakra kjörsvæða sem njóta friðsældar og umferð þeirra er stanslaus til og frá slíkum stöðum. Paraðir fuglar sem ætla að taka sig á loft úr hópi gæsa eða stakir fuglar, gefa frá sér garg, hvor fyrir sig til að leita samþykkis hins eða tilkynna brottfor. Jafnframt því sem gargið eykst hnykkja fuglarnir goggi/höfði til hliðar þar til ákvörðun hefur verið tekin og viðkomandi tekur flugið. Grágæsir geta stokkið nokkuð hátt bæði þegar þær taka sig til flugs í miklum vindi og eins þegar þær þurfa að komast upp eða yfir hindranir sem á vegi þeirra verða, til dæmis í grófu mólendi eða á leið upp úr skurðum og lækjum. Við slíkar aðstæður geta þær stokkið hæð sína og sjá karl- fuglarnir stolt sitt í að nota ekki vængina til að styðjast við. Einnig geta þær tekið sig lóðrétt til flugs í góðum vindi. Komutími Gæsin kemur yfirleitt í byrjun apríl og breytir þá engu hvort tíðarfar er gott eða slæmt. Það er breytilegt hversu margir fuglar koma fyrst. Það geta verið stakir fuglar og smáhópar. Fyrstu fuglarnir koma oft í kjölfar annarra tegunda, svo sem álfta. Aðeins örlítið brot af stofninum kemur íyrstu tíu dagana í apríl eða liðlega 1,5% af hámarks innkomu fugla. Flins vegar koma gæsirnar mjög ákveðið inn næsta þriðjung aprílmánaðar eða um 24% af hámarki. Fjöldinn nær hámarki frá 24.-30. apríl. Eftir að hámarki er náð undir lok apríl er kominn sá tími að grágæsin dreifir sér í varplöndin. Ekki er óalgengt að síðbúnir geldfuglar séu að koma til landsins í byrjun maí eða síðar. Varprannsóknir Nokkur tími fer í að forkanna varplönd grágæsa og afla upplýsinga um þau áður en hægt er að gera staðbundna úttekt. Velja þarf svæði til rannsókna oft eftir legu landsins og reyna að gæta að innan þess sé það kjörlendi varpfuglsins sem einkennandi er fyrir viðkomandi varp. I lentug stærð á úttektarsvæði er 1 km2. Þá er reynt að fara í fleiri en eina heimsókn í hvert varp til athugunar á framvindu varpsins. í íyrstu er reynt að telja alla þá fugla sem sjást við fyrstu sýn í varpinu, er sá fjöldi hafður til hliðsjónar þeim breytingum sem kunna að verða á vettvangi. Tilkoma manns í gæsa- varp virkar bæði tælandi og fælandi á fuglana. Þeir fuglar sem eru bara til staðar af tilviljun forða sér fljótlega eða halda sig hæfilega langt frá en varpfuglar fara stutt eða flögra órólegir yfir svæðinu með gargi. Fuglar frá nálægum svæðum koma þá gjarnan til hjálpar við að bægja hættunni frá. Oftar en ekki verður öll fyrirhöfnin og hávaðinn til að lokka að fleiri óboðna gesti. 112
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.