Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 156

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Side 156
Múlaþing Guðbjörg og Eiríkur giftust 5. desember 1888 og tóku við allri jörðinni vorið eftir. Þá fluttust Guðný móðir hennar og Einar Þórðarson að Eyvindará. Ekki er annars getið en að búskapur þeirra hafi gengið sæmilega. Þau nutu þess að Einar Sveinn bróðir Eiríks var vinnumaður hjá þeim 15 ár og Sigríður móðir þeirra bræðra aðstoðaði þau dyggilega uns hún lést árið 1900. Og ekki veitti af því búskapur er eitt og barnalán annað. Þau áttu við að stríða mikið og erfitt heilsuleysi barnanna. Þar voru berklar að verki og ekki tiltæk þau læknisráð, sem til urðu á síðari hluta 20. aldar. Má best sjá þetta á eftirfarandi upptalningu: Gunnlaug f. 24. febrúar 1889. Dó úr berklum 14 ára 1903. Jón f. 28. janúar 1891. Fékk snert af berklaveiki í æsku. Kvæntist Láru Runólfsdóttur frá Böðvarsdal. Bjuggu þar 1925-1947, á Torfastöðum í Vopnafirði til 1956 en síðast í Vopnaljarðarkauptúni. Jón lauk kennaraprófi 1912, var í farkennslu á Fléraði til 1920 og var farkennari á Vopnafirði til 1947 en síðan skólastjóri á Torfastöðum til ársins 1956. Lést 20. apríl 1979. Synir þeirra Láru voru tveir, Sigurður og Runólfur. Guðný, f. 27. október 1892, lést 2. nóvember 1897. Einar, f. 26. febrúar 1894, dó 21. maí 1895. Sigurður Ólafur, f. 27. mars 1895, lést 5. desember sama ár. Einar Kristinn, f. 14. júni 1896, ætíð ávarpaður síðara nafni, ólst upp með foreldrum sínum til fermingaraldurs, en var svo víða á Héraði fram yfir tvítugt. Var tvo vetur á Eiðaskóla, í íyrsta hópi Alþýðu- skólans þar. Kvæntist Salnýju Jónsdóttur frá Grófargerði á Völlum. Bjuggu í Refsmýri en síðar á Keldhólum á Völlum. Áttu tvo syni, Sigurð búsettan í Reykjavík og Jón bónda á Keldhólum. Kristinn lést 30. maí 1977. Sigríður Vilborg, f. 7. febrúar 1898, ætíð nefnd fyrra nafni. Lést úr lömunarveiki 1924, þá á Hofi í Vopnafirði. Lömunin varð í öndunarfærum. Vika leið frá því hún veiktist, þangað til hún lést. Guðný, f. 29. febrúar 1899. Fór í fóstur að Eyvindará. Dó þar 1903. Sólrún, f, 14. desember 1902, fór kornung í fóstur að Krossi vegna veikinda móður sinnar. Var þar hjá Solveigu föðursystur sinni og Páli Pálssyni, sem bæði eru nefnd hér á undan. Bjó á Krossi með manni sínum Sigfúsi Guttormssyni frá Arnheiðarstöðum. Börn þeirra níu eru öll enn á lífi: Páll, Oddur, Sólveig, Guttormur, Eiríkur, Þórey, Baldur, Jón og Oddbjörg. Sex þeirra búa í Fellum, Sólveig og Oddur í Reykjavík en Þórey á Hornafirði. Sigfus fórst í flugslysi 1951. Sólrún lést 18. mars árið 2000 og var jörðuð í heimagrafreit á Krossi. Guðný, f. 16. 1905. Fluttist 1927 til Vopnafjarðar og giftist Jóni Runólfssyni frá Böðvarsdal. Reistu nýbýlið Dalland inni í dalnum, rétt hjá þar sem nú liggur akvegur upp á Hellisheiði. Guðný lést úr berklaveiki 8. janúar 1932. Barn þeirra dó líka. Foreldrar hennar fluttust til þeirra 1927. Um 1930 var Guðný á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði og sá þá móðir hennar um heimilið innanstokks. I minningargrein um Jón Runólfsson segir Runólfur Jónsson bróðursonur Guðnýjar að hún hafi verið „ákaflega falleg ung kona“. Á Dallandi eru nú vallgrónar rústir einar. Eins og sjá má af þessari upptalningu létust ljögur af börnum Eiríks og Guðbjargar í bernsku, ein stúlka dó á fermingaraldri, tvær dætranna létust rúm- lega hálfþrítugar en þrjú lifðu til hárrar elli. 154
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.