Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Síða 160
Múlaþing
Oddur Sölvason.
Eigandi myndar: Guðrún Arnadóttir
Kristinn Eiríksson og Salný Jónsdóttir
Kristinn (1679) og Salný (sjá 3973)
bjuggu í Refsmýri frá 1931-1946 en þá
fluttust þau austur á Velli. Bjuggu á
Keldhólum frá 1949. Bjuggu á Miðhúsaseli
1929-1931. Salný var frá Grófargerði, f.
20. apríl 1886. Móðir hennar var Þórunn
dóttir Bjarna Bjarnasonar frá Krossi. Um
hann og íjölskyldu hans má lesa í
Múlaþingi 28, bls. 147-160: Fólk að baki
hluta í minjasafni. Salný lést 22. desember
1962. Kristinn var frá Refsmýri, f. 14. júní
1896. Þáttur er hér á undan um foreldra
hans Eirík Jónsson og Guðbjörgu
Gunnlaugsdóttur. Synir Kristins og Salnýjar
eru Sigurður kennari í Reykjavík og Jón
bóndi á Keldhólum. Sonur Salnýjar var
Arthúr Guðnason, f. 1910. Átti heima á
Reyðarfirði alla ævi.
Kristinn var lágur vexti og þrekinn,
glaður og fagnandi í góðra vina hópi. Hélt
vinnuþreki fram yfir sjötugt. Lést 30. maí
1977. Salný var hljóðlát en sívinnandi og
hélt sig við heimilið. Vissi mjög margt frá
liðnum tíma um fólk á Völlum og í
Skriðdal. Þar átti hún margt frændfólk.
Bræðurnir Guðmundur og Hjalti
Jónssynir
Þeir fluttust að Refsmýri 1947, keyptu
jörðina af Oddi Sölvasyni, hófu félags-
búskap og byggðu nýtt steinhús 1954. Móðir
þeirra, Katrín Jónsdóttir, var ráðskona
fyrstu árin en eftir lát hennar kom þangað
Unnur Jónsdóttir frá Þýskalandi.
Guðmundur og hún giftust og bjuggu til
1970 er þau fluttust til Akureyrar. Hjalti bjó
áfram til 1984 að hann fluttist í Fellabæ.
Faðir þeirra bræðra var Jón Friðrik
Guðmundsson en um ættfólk hans er
þátturinn Systurnar við Sœnautavatn og
afkomendur þeirra i Múlaþingi 22, 45-55.
Katrín móðir þeirra fæddist í Fjarðarkoti í
Mjóafirði 1889, ólst upp þar til 1898, var
svo í Firði til 1906 en fór þá 17 ára að
Skeggjastöðum. Þá var Jón Friðrik vinnu-
maður þar og fæddist fyrsta barn þeirra árið
eftir. Hófú búskap á Setbergi 1909. Þeim
fæddust 13 börn á árunum 1907-1923 og
var Hjalti yngstur þeirra. Hann ólst upp
með móður sinni, lengst á Hallfreðar-
stöðum og kom þaðan í Refsmýri. Lést í
Fellabæ 1995. Guðmundur fæddist 1916,
ólst upp á Staffelli og kom þaðan að
Refsmýri. Lést á Akureyri 1974. Næst
yngsta barn Katrínar og Jóns Friðriks dó 5
daga gamalt en hin börnin komust öll upp
og urðu dugnaðarfólk. Um ættfólk Katrínar
má lesa í Múlaþingi 10, bls. 139-192. Börn
Guðmundar og Unnar eru Solveig, Katrín,
Þorgils og Hörður, sem býr í Refsmýri.
Unnur er enn á lífi.
158