Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 36
Nourkrin® er selt í nær öllum apó-
tekum í landinu og í Heilsuhúsinu.
„Þetta er efni sem virkar við þessu
algenga vandamáli sem hárlos er
og herjar á konur á öllum aldri.
Við fáum sífellt meira af frábærum
reynslusögum frá ánægðum not-
endum. Það sem Nourkrin hefur
fram yfir önnur hárbætiefni er að
það byggir á yfir 100 vísindalegum
rannsóknum sem hafa verið birtar
í ritrýndum vísindatímaritum,“
útskýrir Anton. „Með vísinda-
rannsóknum er hægt að sanna
virkni Nourkrin, en varan hefur
verið á markaði síðan 1986 og verið
valin hárbætiefni ársins í mörgum
löndum, en Nourkrin hefur auk
þess unnið til fjölda annarra verð-
launa sem finna má upplýsingar
um á vefsíðu Nourkin, nourkrin.
com/awards.“
Hárvaxtarhringurinn
„Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtarhring-
ur. Í eðlilegum hárvaxtarhring
eru 85-90% háranna á vaxtar-
stigi á meðan 10-15% þeirra eru
á hvíldarstigi eftir að hafa náð
fullum vexti,“ segir Anton. „Hárlos
á sér stað hjá konum þegar hinn
hefðbundni hárvaxtarhringur
brenglast og hærra hlutfall hár-
sekkja er á hvíldastigi vegna þess
að hársekkirnir fá ekki réttu nær-
ingarefnin. Það geta verið ýmsar
ástæður fyrir því, en algengar
ástæður eru meðal annars:
■ Stress
■ Veikindi
■ Sykursýki
■ Vanvirkur skjaldkirtill
■ Hjáveituaðgerð
■ Lyfjaneysla
■ Reykingar
■ Meðganga fæðing,brjóstagjöf
■ Slæm hármeðhöndlun og fleira
Nourkrin® Woman inniheldur
réttu næringarefnin fyrir hársekk-
ina og þannig verður hárvaxtar-
hringurinn eðlilegur á ný.“
Algengt vandamál
Það er talið að um 60% kvenna
upplifi hárlos á einhverjum tíma-
punkti. „Það er oft erfitt ástand
fyrir konur og mikið feimnismál.
En Nourkrin® Woman er öruggt
og lyfjalaust bætiefni fyrir konur,
sem nærir hárið og viðheldur
eðlilegum hárvaxtarhring,“ segir
Anton. „Níu af hverjum tíu sem
tóku þátt í prófunum á vörunni
tóku eftir breytingu á hárinu eftir
meðferðina, sem felst í að taka
tvær töflur á dag í 6 mánuði.“
Hárlos hjá karlmönnum
„Hárlos og skallamyndun er
vandamál sem margir karlmenn
þekkja, en Nourkrin® Man er
öruggt og lyfjalaust bætiefni fyrir
karlmenn sem veldur engum auka-
verkunum,“ segir Anton „Skalla-
myndun hjá karlmönnum er af
öðrum toga en hjá konum, þar sem
hársekkirnir deyja. En með reglu-
legri og fyrirbyggjandi notkun á
Nourkrin Man, það er frá fyrstu
ummerkjum hárþynningar, getur
varan seinkað eða alveg komið í
veg fyrir skallamyndun. Ég ítreka
að það þarf að byrja um leið og
það fer að votta fyrir þynningu eða
skallamyndun. Rétt eins og konur
eiga karlar að taka tvær töflur á
dag í að lágmarki 6 mánuði.“
Byltingarkennt bætiefni
„Nourkrin® inniheldur byltingar-
kennda bætiefnið Marilex®, sem
er einkaleyfisvarið og eingöngu að
finna í vörum frá Pharma Medico,“
segir Anton. „Marilex® er unnið
úr sjávarríkinu og inniheldur rétt
hlutfall af svokölluðum próteóglý-
könum, sem næra hársekkina svo
þeir geti viðhaldið hinum eðlilega
hárvaxtarhring. Marilex® hefur
verið prófað um allan heim og er
samþykkt af heilsuyfirvöldum
í öllum heimsálfum, svo það er
algjörlega öruggt, má notast af
öllum aldurshópum og líka ófrísk-
um konum og konum með börn á
brjósti, en ekki þeim sem eru með
ofnæmi fyrir fiski eða skelfiski,“
segir hann. „Nourkrin® Woman
hefur einnig reynst vel fyrir konur
sem eru að koma úr krabbameins-
meðferð og hafa misst hárið. Með
Nourkrin® vex nýja hárið hraðar
og verður sterkara.
Hefðbundin meðferð er tvær
töflur daglega í sex mánuði
og ástæðan fyrir lengd með-
ferðarinnar er sú að það tekur hár-
vaxtarhringinn sex mánuði að ná
jafnvægi,“ segir Anton. „Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
hringnum þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma.“
Mikill árangur í prófunum
ÓJK-ÍSAM hefur verið með próf-
anahópa á Nourkrin Woman
þar sem konur með margvísleg
hárvandamál hafa prófað vöruna.
„Árangurinn var alveg frábær og
þær fundu allar mun, mismikinn
auðvitað, enda var mjög misjafnt
hvað var að orsaka hárlosið,“
segir Anton. „Ástæður hárloss
þeirra sem tóku þátt í prófuninni
voru hlutir eins og psoriasis, gigt,
alopecia (sjálfsofnæmi, bletta-
skalli), legslímuflakk, B12-skortur,
latur skjaldkirtill og sykursýki,
auk streitu og áfalla. Þetta eru
allt vandamál sem margar konur
glíma við.“
Hárlos eftir fæðingu
Klara, 31 árs, tók eftir einkennum
hárloss eftir fæðingu fyrsta barns
síns. „Um það bil 5 mánuðum eftir
fæðingu tók ég eftir því að að ég var
farin að sjá há kollvik á höfðinu og
ég var með mjög augljósan skalla-
blett á annarri hliðinni. Í hvert
skipti sem ég þvoði hárið fann ég
og sá mikið hárlos. Þá var mér bent
á Nourkrin af vinkonu sem hafði
náð góðum árangri með það eftir
að hafa sjálf þjáðst af hárlosi.
Ég sá fljótt mikinn mun á hár-
inu. Í fyrstu fékk ég fíngerð barna-
hár sem urðu sterkari og meiri
þannig að versti skallabletturinn
minn er nánast alveg horfinn. Ég
get ekki mælt nógu mikið með
þessum töflum og hve mikill léttir
það var að fá hárið aftur. Ég varð
alveg niðurbrotin þegar ég áttaði
mig á því að ég væri mögulega að
missa hárið og það fer ekki vel með
sjálfstraustið. Í mínu tilfelli var
greinilegt að hárið eða hársekk-
irnir væru ekki að fá næga næringu
eftir barnsburð og brjóstagjöf, sem
þeir svo fengu þegar ég byrjaði að
taka inn Nourkrin.
Ég var alltaf með hárið
slegið til að geta falið blettinn betur,
sem þýddi líka að auðvelt var fyrir
son minn að grípa í það svo það
losnuðu enn fleiri hár. Þegar maður
verður mamma í fyrsta skipti er
svo margt að hugsa um og hafa
áhyggjur af og að bæta hárinu mínu
inn í þá blöndu fannst mér svo
ósanngjarnt. Núna eru áhyggjurnar
horfnar, ég get haft hárið hvernig
sem er án þess að hafa áhyggjur.“
Uppgötvaði hárlosið
í fjölskylduboði
Júlía, 62 ára, var búin að fá þá
greiningu að hún væri með van-
virkan skjaldkirtil og samhliða
var hún aðeins farin að taka eftir
þynningu á hárinu. „Ég hafði ekki
tekið eftir hversu alvarlegt þetta
var fyrr en ég sá mynd aftan af mér
sem var tekin í fjölskylduboði og
brá mikið, því þetta var ekki bara
þunnt hár heldur líka eins konar
skallamyndun. Þetta er viðkvæmt
mál og það var eins og enginn
hefði þorað að benda mér á þetta.“
Júlía fór í apótek og leitaði eftir
aðstoð þar sem henni var bent á
Nourkrin sem væri hárbætiefni
sem virkar. Hún fór að taka það
inn og árangurinn lét ekki á sér
standa. „Níu mánuðum síðar var
hárið jafnvel betra en það var áður
en skjaldkirtilsvandamálið kom
upp,“ segir Júlía.
Nourkrin fæst í öllum helstu apó-
tekum. Nánari upplýsingar á isam.
is/nourkrin.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Anton Gylfi
Pálsson er sölu-
stjóri sérvöru
hjá ÓJK-ÍSAM
og hefur selt
Nourkrin hár-
bætiefnið hér á
landi í fjögur ár.
FRéttABLAðið/
VALLi
Níu mánuðum síðar sagði Júlía að með hjálp Nourkrin væri hárið jafnvel
betra en það var áður en skjaldkirtilsvandamálið kom upp.
Klara varð niðurbrotin þegar hún áttaði sig á því að hún væri mögulega að
missa hárið og það fór ekki vel með sjálfstraustið. MyndiR/AðSEndAR
Fyrir Eftir Fyrir Eftir
2 kynningarblað A L LT 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR