Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 73
RARIK ohf. | www.rarik.is/atvinna
Hönnun og áætlanagerð í Stykkishólmi
Nánari upplýsingar veita Björn Sverrisson,
deildarstjóri rekstrarsviðs á Vesturlandi eða
starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl og skal skila
umsóknum með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.
Helstu verkefni:
• Áætlanagerð
• Hönnun dreifikerfa
• Verkbeiðnaútgáfa
• Verkundirbúningur.
• Samskipti við viðskiptavini
• Þátttaka í svæðisvakt
Hæfniskröfur:
• Rafmagnstæknifræði, rafmagnsiðnfræði
• Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Þekking á AutoCad, Netbas og DMM er kostur
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
RARIK ohf. óskar eftir að ráða öflugan einstakling á starfsstöð fyrirtækisins í Stykkishólmi. Í starfinu felst hönnun, gerð verkáætlana o.fl.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Hér er um fjölbreytt starf að ræða við dreifikerfi fyrirtækisins. Við hvetjum bæði konur
og karla til að sækja um.
Mælaumsjón – mælauppsetning á Vesturlandi
Nánari upplýsingar veita Björn Sverrisson,
deildarstjóri rekstrarsviðs á Vesturlandi eða
starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl og skal skila
umsóknum með ferilskrá á www.rarik.is/atvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með orkumælum
• Tenging nýrra viðskiptavina
• Samskipti við verktaka og viðskiptavini
• Gagnaskráningar
• Verkundirbúningur
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafvirkjun
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð samskiptahæfni
• Bílpróf
RARIK óskar eftir að ráða sjálfstæðan og samviskusaman einstakling í mælaumsjón og mælauppsetningu á Vesturlandi með aðsetur í
Stykkishólmi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Sérfræðingur í stjórnstöð
Nánari upplýsingar veita Gísli Þór
Ólafsson, deildarstjóri stjórnstöðvar eða
starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.
Umsóknafrestur er til 25. apríl og skal skila
umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi
á www.rarik.is/atvinna.
Helstu verkefni
• Stýring og vöktun veitukerfa RARIK
• Aðgerðastjórnun
• Skipulagning rofs og vinnu
• Kerfisgreiningar og úrbótatillögur
• Samskipti við viðskiptavini
• Upplýsingagjöf til innri og ytri aðila
Hæfniskröfur
• Menntun á sviði tækni- eða verkfræði
• Reynsla af háspennukerfum er kostur
• Góð greiningarhæfni og færni til að setja
fram upplýsingar á skýran hátt
• Samskiptahæfni og útsjónarsemi
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
undir álagi
RARIK auglýsir eftir öflugu fólki í stjórnstöð fyrirtækisins. Stjórnstöð er ný deild innan rekstrarsviðs og munu sérfræðingar deildarinnar taka
þátt í mótun hennar ásamt innleiðingu nýrra kerfa sem notuð verða við úrlausn þeirra spennandi verkefna sem fram undan eru. Þegar deildin
tekur til starfa þá mun hún hafa umsjón með vöktun og stýringu veitukerfa RARIK ásamt öðrum verkefnum tengdum rauntímastjórnun og
skipulagningu rofs og vinnu. Starfið er unnið að hluta til á dag-, kvöld- og bakvöktum. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og
annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200 á um 20 starfsstöðvum sem eru dreifðar vítt og breitt um landið.
Spennandi störf í boði hjá RARIK