Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 28
Settu andlit sín við vörumerkið
Gerður stofnaði Blush ásamt vin-
konu sinni, Rakel Ósk Orradóttur,
sem eftir eitt og hálft ár hvarf til
annarra starfa.
„Við ákváðum snemma að setja
andlit okkar við vörumerkið og
búa þannig til kúnnahópinn. Þarna
væru tvær ungar stelpur að tala um
kynlíf á heilbrigðan hátt.“
Aðspurð um viðbrögð sinna nán-
ustu við því svarar Gerður: „Amma
og afi voru pínu óörugg með þetta í
upphafi og höfðu áhyggjur af því að
ég þyrfti að sækja um vinnu og fólk
færi að gúggla mig. Ég svaraði bara
að þau þyrftu ekki að hafa áhyggjur
– ég ætlaði aldrei aftur að þurfa að
sækja um vinnu.“
Segja má að Gerði hafi tekist upp-
haflega ætlunarverkið en hún segir
velgengnina vera margþætta.
„Alls staðar í heiminum er kyn-
lífstækjamarkaðurinn og viðhorfið
gagnvart honum að breytast og fjöl-
miðlar hafa hjálpað mikið við það.“
Framleiðir sín eigin kynlífstæki
Gerður segist alltaf hafa verið með
skýra sýn um hvert hún stefni með
fyrirtæki sitt. „Blush hefur aldrei
verið lítil hugmynd og ég hlakka til
að sýna fólki hvað ég geri á næstu 10
til 15 árum,“ segir Gerður sem fyrir
jólin setti á markað eigin kynlífs-
tækjalínu undir vörumerkinu Reset.
„Reset stendur fyrir það að endur-
stilla kynorkuna með því að stunda
sjálfsfróun eða kynlíf. Við erum
komin með fjórar vörur á markað
og fáum þrjár í viðbót í sumar,“ segir
Gerður sem ætlar að nota Ísland
sem prufumarkað en stefnir svo á
að selja vörurnar víðar í Evrópu á
næstu árum.
Starfsemi Blush einskorðaðist í
upphafi við heimakynningar sem
þær Gerður og Rakel sáu alfarið um.
„Það var mjög lærdómsríkt enda við
í nánum samskiptum við viðskipta-
vinina.“
Það varð algjör sprenging
Í framhaldi var vefverslunin opnuð
og svo lítil verslun sem stóð þó
aðeins opin í þrjá mánuði.
„Ég sat þar allan daginn að bíða
eftir að einhver kæmi og það kom
enginn. Ég var að opna verslun á
röngum forsendum – til að fá fleiri
viðskiptavini. Ég átti ekki pening
til að markaðssetja mig og þegar ég
opnaði fann ég að mig langaði ekk-
ert að vera búðarkona. Ég lokaði
því og einbeitti mér að vefverslun-
inni sem mér fannst skemmtilegt.
Það varð algjör sprenging. Ég bjó
hér á neðri hæðinni og stofan var
undirlögð af hundruðum pappa-
kassa með vörum. Það var bara allt
teppalagt með kynlífstækjum. Ég
fór á pósthúsið daglega svo fór fólk
að vilja mikið koma að sækja. Ég var
með fólk hér á hverjum einasta degi
og ákvað því að opna litla verslun og
ráða starfsfólk.“
Verslunin var 36 fermetrar og að
sögn Gerðar sprakk hún á fyrsta
degi.
„Vörumerkið var orðið viður-
kennt og við náðum til markhóps-
ins. Tveimur árum seinna opnaði ég
stærri verslun og nú þremur árum
síðar opnaði ég verslunina á Dalveg-
inum í 860 fermetrum.“
Sjálf verslunin er um 350 fer-
metrar en húsnæðið hýsir einnig
vöruhús, skrifstofur, sal og aðstöðu
fyrir starfsfólk.
„Við eigum 86,2 prósenta mark-
aðshlutdeild hér á landi og höfum
aukið við okkur síðustu ár,“ segir
Gerður en aðalhópur viðskiptavina
er á bilinu 25 til 55 ára.
„Við erum búin að stækka svaka-
lega mikið og erum því á viðkvæm-
um stað og þurfum að halda vel
utan um allt til að missa ekki tökin.“
Boðið að leika í klámmyndum
Gerður segir umhverfið hafa breyst
mikið á þeim ellefu árum sem hún
hefur verið í rekstri en upphaflega
hafi verið hlegið að henni.
„Ég veit að ég var ung og kannski
óþroskuð en viðmótið gagnvart
konum í rekstri er sem betur fer
mjög breytt. Á sölusýningum
erlendis var ekki hlustað á mig sem
kaupanda og mér ítrekað boðið að
taka þátt í klámmyndum. Ég var
á viðkvæmum tíma og hafði lítið
á milli handanna og voru boðnir
20 þúsund dollarar fyrir að leika í
klámmynd. Ég af þakkaði það en
þetta var mjög skrítin og óþægileg
upplifun og þreytandi að vera ekki
tekin alvarlega. Ég efast um að karl-
menn í sömu stöðu hafi upplifað
þetta viðmót .
Það var alltaf verið að tengja mig
sem kynveru inn í fyrirtækið. Það
var erfitt að fá auglýsingastofur til
að vinna með mér og ef ég mætti
fyrir hönd fyrirtækisins til að sækja
það sem vantaði, bankalán eða
kreditkort, var svarið alltaf nei.“
Mikilvægt að sinna kynverunni
En síðan hefur sannarlega mikið
vatn runnið til sjávar og upp er
komin kynslóð ungra kvenna sem
þykir það ekki tiltökumál að kaupa
sér vörur í Blush. Umræðan er allt
önnur en hún var fyrir tíu árum og
hefur Gerður sjálf gert sitt í því enda
komið fram í viðtölum og verið virk
í umræðunni á samfélagsmiðlum.
„Þótt ég segi sjálf frá þá held ég að
ég hafi hjálpað gríðarlega mörgum
einstaklingum og sérstaklega
konum að finna sína innri kynveru
og upplifa sína fyrstu fullnægingu.
Það er enn allt of algengt að konur
upplifi að þær eigi að vera settlegar
og finna minna fyrir kynhvötinni
en karlar. Þar spilar uppeldi og fleira
inn í.
Í mínum huga eru það mannrétt-
indi að fá að upplifa sig sem kyn-
veru, enda kynhvötin ein af grunn-
þörfunum, eins og að borða og sofa.
Eins gengur einfaldlega allt betur ef
við sinnum kynhvötinni okkar –
ekki síst samskiptin við makann.
Ég held að fólk átti sig ekki almenni-
lega á því hvað kynlíf er stór partur
af lífinu. Það er eins og mýkingar-
efni í líf okkar.“
Þú hlýtur að vera villt í rúminu
Þó að Gerður hafi alltaf verið opin-
ská fannst henni í fyrstu erfitt að
tala um kynlíf. „Ég hef alltaf verið
frekar opin og átt auðvelt með að
tala en að tala um kynlíf og kyn-
lífstæki fannst mér skrítið og erf-
itt fyrst. En það vandist f ljótt og
stundum held ég að það hafi vanist
of vel,“ segir hún og hlær. „Þegar ég
sit til að mynda á matsölustað að
ræða relaxing anal sleipiefni eða
álíka, þá finn ég að fólk lítur við. Þó
að ég hafi alltaf reynt að hafa þetta
settlegt hef ég gaman af því að dansa
á línunni og sjokkera aðeins.“
Viðmót ókunnugra segir Gerður
vissulega oft litast af starfi hennar.
„Já, fólk á það til að segja: „Þú hlýtur
að vera villt í rúminu!“ En ég svara
þá bara að ég sé eins og píparinn
sem nennir ekki að laga lagnirnar
heima hjá sér,“ segir hún í léttum
tón og bætir við: „Þetta er vinnan
mín.“
Gerður segir sambýlismanninn
einnig fá slíkar spurningar um
hana. „Fólk gerir sér sjálfkrafa hug-
myndir um að maður sé með kyn-
lífsrólur um allt heima fyrst maður
rekur kynlífstækjaverslun. Ég hef
því miður ekki enn náð að prófa
allar vörurnar sem Blush selur en
er hægt og rólega að vinna mig í
gegnum þær.“ ■
Gerður ákvað snemma að setja andlit sitt við vörumerki Blush og storka þannig hugmyndum um slíka verslun.
Gerður segir allt ganga betur ef við sinnum kynhvöt okkar.
Ég held að fólk átti sig
ekki almennilega á því
hvað kynlíf er stór
partur af lífinu. Það er
eins og mýkingarefni í
líf okkar.
Ég svaraði bara að þau
þyrftu ekki að hafa
áhyggjur – ég ætlaði
aldrei aftur að þurfa að
sækja um vinnu.
28 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ