Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 87
Við erum stöðugt
að vinna með
viðskiptavinum í að
betrumbæta og þróa
kerfið í takt við nýjar
hugmyndir og þarfir.
Ýrr Geirsdóttir
Spektra býður upp á fjöl-
breyttar lausnir fyrir Micro-
soft umhverfi, sem gagnast
öllum fyrirtækjum og stofn-
unum sem vilja stjórna upp-
lýsingum með ákveðnum og
öruggum hætti. Lausnirnar
þróast stöðugt í takti við
tækniþróun og ríkt samráð
við viðskiptavini.
Spektra var stofnað árið 2013 af
fimm starfsfélögum sem höfðu
unnið saman sem SharePoint
sérfræðingar og vildu gera meira
úr sinni sérþekkingu og hug-
sjónum í þessum málum. „Starfs-
fólkið okkar hefur breiða þekk-
ingu á Microsoft lausnum og við
aðstoðum okkar viðskiptavini
við að hanna og betrumbæta
lausnir í M365 umhverfinu og þá
sérstaklega SharePoint, sem er
grunnurinn í okkar þekkingu,“
segir Ýrr Geirsdóttir, forstöðu-
maður verkefnastýringar og einn
eigenda Spektra. Þjónusta Spektra
er fyrir öll fyrirtæki, stofnanir og
félagasamtök sem meðhöndla upp-
lýsingar, en þær eru verðmæti sem
þarf að stjórna með ákveðnum og
öruggum hætti.
Starfsfólk Spektra hefur mikla
þekkingu á sínu sviði. „Við veitum
góða þjónustu og viljum að okkar
viðskiptavinir geti leitað til okkar
og fengið úrlausn sinna mála hratt
og vel,“ segir Ýrr. Starfsfólk Spek-
tra leggur einnig mikið upp úr
kennslu og þjálfun í innleiðingu
þeirra lausna, þar sem þau fylgjast
með og eru til staðar eftir að kerfi
eru innleidd. „Við erum stöðugt
að vinna með viðskiptavinum í að
betrumbæta og þróa kerfið í takt
við nýjar hugmyndir og þarfir,“
segir hún og bætir því við að mestu
verðmæti hvers fyrirtækis sé fólkið
og því sé mikilvægt að virkja þau
verðmæti með góðri fræðslu og
þekkingu.
Þróast með þörfum
viðskiptavina
Microsoft og umhverfið í upplýs-
ingatækni hefur breyst gífurlega
frá því að þau stofnuðu fyrirtækið,
en í dag eru flestir viðskiptavinir
þeirra með sínar lausnir í skýinu,
sem var ekki raunin árið 2013.
Síðan þá hefur Microsoft breytt
sínum lausnum mikið, gert þær
notendavænni og komið þeim í
skýjaumhverfið og Spektra hefur
fylgt þeirri þróun vel eftir. Að sögn
Ýrar þá eru þeirra stærstu lausnir
í dag WorkPoint, sem er verkefna-
og upplýsingastjórnunarkerfi sem
heldur meðal annars utan um mál,
skjöl, samskipti og verkferla, og
gæðahandbók með fjölbreyttri
virkni, sem hefur verið að seljast
mikið undanfarin misseri. Hún
segir að þau hafi líka orðið vör við
miklar breytingar á þörfum sinna
viðskiptavina og sem dæmi er
aftur orðið vinsælt að hafa innri
vef í SharePoint í skýjaumhverfinu,
þar sem sú lausn er að miklu leyti
til staðar í SharePoint.
Bjóða upp á fjölbreyttar lausnir
Viðskiptavinum Spektra fer ört
fjölgandi, þar sem þeirra lausnir
eru vinsælar. Þau hafa innleitt
WorkPoint hjá stórum og smáum
fyrirtækjum og stofnunum, bæði
hérlendis og erlendis. „WorkPoint
er mjög fjölbreytt og skalanlegt
kerfi og þar erum við að útfæra
ýmsar lausnir, bæði tilbúnar
lausnir, málakerfi og fundagáttir
fyrir stjórnir og nefndir, gæða-
kerfi, verkefnakerfi, umsóknar-
kerfi, ábendingakerfi og sérhann-
aðar lausnir sem miða að sértækri
þjónustu eða innri ferlum okkar
viðskiptavina,“ útskýrir Ýrr.
„Gæðahandbókin okkar er
líka öflug lausn sem er í stöðugri
þróun og viðskiptavinir hafa verið
mjög ánægðir með,“ segir hún
og bætir því við að bókin byggi á
gæðakröfum sem eru til staðar og
er sérhönnuð út frá hverjum við-
skiptavini. Einnig er tenging milli
gæðahandbókarinnar og Work-
Point, þannig að gæðaskjölin eru
alltaf við hendina fyrir notandann.
„Viðskiptavinir okkar eru
fjölbreyttir og með fjölbreyttar
þarfir, og þar sem við komum að
borðinu sem ráðgjafar greinum við
umhverfi viðskiptavinarins vel og
innleiðum þeirra ferla inn í okkar
kerfi. Góð þarfagreining skilar sér
þannig í betri lausnum og meiri
sjálfvirknivæðingu sem skilar sér
aftur í betri rekstrartölum,“ segir
Ýrr.
Faghópur sinnir
stöðugum umbótum
Sérstaða Spektra er ekki bara hug-
búnaðurinn og tækifærin í stýr-
ingu á upplýsingum, heldur einnig
sú þjónusta sem Spektra veitir
og breið þekking þeirra starfs-
fólks. Starfsfólk Spektra er með
ólíka menntun og starfsreynslu,
ekki aðeins í upplýsingatækni og
verkefnastjórnun, heldur einnig í
upplýsingafræði. Að hennar mati
sé það ekki nóg að setja upp hug-
búnað, heldur þurfi líka skipulag
og stýringu út frá þeim kröfum
sem beinast að fyrirtækjum eða
stofnunum hvað varðar lagalegt
umhverfi, staðla og reglugerðir og
aðrar ytri kröfur og svo bætast við
innri viðskiptakröfur hvers og eins
fyrirtækis eða stofnunar.
Á sama tíma þarf hugbúnaður-
inn sem geymir vinnugögn að
nýtast í daglegum störfum fólks
þannig að það hafi greiðan aðgang
að þeim gögnum sem það þarf
í sinni vinnu, segir Ýrr og bætir
við: „Við höfum fundið fyrir því
að okkar viðskiptavinir eru opnir
fyrir nýjungum og breyttum hugs-
unarhætti í stjórnun upplýsinga.
Fólk vill ekki alltaf vera að finna
upp hjólið, heldur vita hvernig
aðrir hafa verið að gera hlutina
eða leysa úr vandamálum og koma
með nýjar hugmyndir.
Spektra fann fyrir þessari þörf
og svaraði kallinu með því að
koma á fót faghópi upplýsinga- og
skjalastjóra og heilbrigðisgagna-
fræðinga sem eru viðskiptavinir
Spektra og eiga það sameiginlegt
að búa yfir þekkingu í upplýsinga-
fræði og stýra WorkPoint á sínum
vinnustað,“ útskýrir Ýrr. Haldið er
utan um faghópinn af starfsmanni
Spektra sem einnig er upplýsinga-
fræðingur. Hann sér um að reglu-
lega berist upplýsingar um virkni
í WorkPoint, sem og að svara
spurningum sem upp koma, halda
vinnustofur og taka spjallið.
Faghópurinn er þá kjörinn vett-
vangur til að fá faglega umræðu
um ákveðin viðfangsefni, deila
lausnum, spyrja spurninga og bera
upp hugmyndir, sem eru tækifæri
fyrir Spektra til að gera enn betur
í þjónustu og þróun WorkPoint-
umhverfisins. Ýrr telur að með því
að flétta saman þekkingu á upplýs-
ingatækni og upplýsingafræði þá
sé verið að styðja við stjórnkerfi
upplýsinga hjá fyrirtækjum og
stofnunum.
Fjölbreytni skilar
mestum árangri
Konur skipa stórt hlutverk í dag-
legum rekstri hjá Spektra. „Við
erum með jafnt kynjahlutfall
starfsfólks og konurnar eru jafn
mikilvægur hlekkur í öllu fram-
þróunar- og gæðastarfi sem unnið
hefur verið undanfarin misseri,“
segir Ýrr og bætir við: „Við vinnum
mjög vel saman sem teymi og
styrkleikar hvers og eins fá að
njóta sín óháð kyni.“
Störf í upplýsingatækni eru
fjölbreytt og henta öllum kynjum.
Verkefnin hjá Spektra eru fjöl-
breytt, skapandi og unnin í sam-
vinnu við notendur, viðskiptavini
og samstarfsfólk. Þá er kostur að
hafa fjölbreytni í starfsmanna-
hópnum þar sem gott er að fá
sýn ólíkra aðila. „Það er í raun
besta leiðin til að fá fram sem
flestar hliðar mála til að vinna úr,“
útskýrir Ýrr. „Með samvinnu þar
sem ólík sjónarmið, styrkleikar og
skoðanir fá að koma fram, verða
bestu lausnirnar til.“
Í fyrsta sinn í sögu Spektra varð
kynjahlutfall í fyrirtækinu jafnt
á síðasta ári eftir að þau réðu til
sín fleiri konur með þá menntun
og eiginleika sem þau voru að
leita eftir. Samhliða því juku þau
þjónustu Spektra, það er faghóp-
inn, og komu á fót upplýsinga- og
fræðslusvæði fyrir sína viðskipta-
vini. „Okkur þykir mikilvægt að
í öllum starfsstéttum sé jafnvægi
á hlutfalli kynjanna því við erum
og verðum alltaf ólík að einhverju
leyti,“ segir Ýrr og leggur áherslu á
að fjölbreytnin hafi nýst Spektra
vel og sé eitthvað sem upplýsinga-
tæknin þurfi að nýta sér.
Alltaf að þróa eitthvað nýtt
„Spektra er lifandi vinnustaður
þar sem starfsfólk hlustar á þarfir
viðskiptavina sinna og nýtir sköp-
unargleði við að leita nýrra leiða til
að koma til móts við þær og veita
þeim góða og skilvirka þjónustu,“
segir Ýrr. Hún telur M365 líka vera
lifandi vinnuumhverfi sem taki
stöðugum breytingum og þróist í
takti við tæknina, og nefnir bæði
faghópinn og upplýsinga- og
fræðslusvæði Spektra sem dæmi.
„Þetta hefur reynst vel og við-
skiptavinir eru mjög ánægðir. Í
stuttu máli erum við alltaf að þróa
eitthvað nýtt og spennandi í sam-
starfi við okkar viðskiptavini.
Við viljum bjóða öllum fyrir-
tækjum og stofnunum að hafa
samband við okkur ef þau vantar
ráðgjöf og þjónustu. Svo erum við
líka alltaf að leita að góðu fólki til
að bætast í starfsmannahópinn hjá
okkur og taka þátt í uppbyggingu
Spektra og okkar lausna,“ segir Ýrr
að lokum. ■
Vandaðar lausnir í stöðugri þróun
Hjá Spektra
starfar stór
hópur kvenna
sem hefur mikla
þekkingu á sínu
sviði og leggur
sig fram við
að veita góða
þjónustu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
kynningarblað 9LAUGARDAGUR 9. apríl 2022 konur í upplýsingatækni