Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 70
Skatturinn leitar að áhugasömu, jákvæðu og drífandi fólki til
sumarstarfa á starfsstöðvum sínum á höfuðborgarsvæðinu,
Keflavík, Akureyri og á Austurlandi. Um fjölbreytt störf er að
ræða á hinum margþættu sviðum Skattsins, hvort sem um er að
ræða skrifstofustörf, tollvarðarstörf eða önnur störf.
Hæfniskröfur:
• Stúdentspróf.
• Gott vald á íslensku og ensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og metnaður.
• Öguð og skipulögð vinnubrögð.
Umsækjendur um sumarstörf tollvarða þurfa auk ofangreinds að hafa náð 20 ára aldri,
hafa almenn ökuréttindi sem og að geta framvísað hreinu sakavottorði.
Starfshlutfallið er 100% og hvetur Skatturinn fólk af öllum kynjum til að sækja um störfin.
Umsóknir skulu fylltar út á vef Starfatorgs, starfatorg.is. Laun eru samkvæmt gildandi
kjarasamningi fjármálaráðherra og stéttarfélags Sameykis.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022 og er óskað eftir því að umsækjendur
tilgreini í umsókn sinni hvort verið sé að sækja um störf tollvarða eða önnur störf og
á hvaða landssvæði óskað er eftir að starfa á. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristín Gunnarsdóttir í síma 442-1000 eða með
tölvupósti á netfangið kristin.gunn@skatturinn.is
Skatturinn annast álagningu skatta, tolla og annarra gjalda auk þess að viðhafa eftirlit með réttmæti skatt-
skila. Þá sinnir stofnunin innheimtu opinberra gjalda fyrir ríki og sveitarfélög í stjórnsýsluumdæmi Reykja-
víkur. Auk þess að tryggja þannig ríkissjóði tekjur þá gegnir Skatturinn margþættu tollgæsluhlutverki á
landamærum og veitir samfélaginu vernd gegn ólögmætum inn- og útflutningi vöru. Loks viðheldur stofnun-
in fjölda skráa sem skipta sköpum fyrir gagnsæi og samkeppnissjónarmið í viðskiptalífinu, s.s. fyrirtækjaskrá
og ársreikningaskrá.
Hjá Skattinum starfa tæplega 470 starfsmenn á 15 starfsstöðvum víðsvegar um landið og byggist meginstefna
Skattsins í mannauðsmálum á gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli allra innan stofnunarinnar.
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Fjölbreytt sumarstörf
hjá Skattinum
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Samband Stjórnendafélaga STF óskar eftir
Mennta- og kynningafulltrúa
Starfið felst í:
• Kynningu á STF á landsvísu og á starfssvæðum tíu
aðildafélaga sem eru innan sambandsins um allt land.
• Umsjón með endurmenntun fyrir félagsmenn og stjórn-
endanámi sem unnið er í samvinnu við Háskólann á
Akureyri.
• Mánaðaruppgjöri, umsjón og skráningum í orlofskerfinu
Frímann fyrir hönd STF.
• Samskiptum við aðildarfélög og stjórnir þeirra.
• Samskiptum við félagsmenn.
• Hönnun kynningarefnis og almenn skrifstofustörf.
Umsóknafrestur er til og með 25. apríl næstkomandi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí eða fyrr.
Hæfniskröfur umsækenda eru:
• Þekking/reynsla af upplýsingatækni.
• Þekking/reynsla af kynningar- og menntamálum.
• Mjög gott vald á íslensku í máli og ritun, ásamt kunnáttu
í ensku
í máli og ritun.
• Góð tölvukunnátta; Word, Excel, Powerpoint og Outlook,
ásamt dk bókhaldskerfi er kostur.
• Góð þjónustulund ásamt þekkingu á starfssemi stéttar-
félaga er kostur.
Starfstöð er á skrifstofu STF í Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum svarað. Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar á
netfangið johannb@stf.is
Nánari upplýsingar um starfið er í síma 8989929 hjá
Jóhanni Baldurssyni, forseta og framkvæmdastjóra STF.
Þarftu
að ráða?
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS