Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 91
Einar Ásgeirsson tekur inn
blöndurnar Kollagen og Liði
frá Protis. Hann er alsæll
með árangurinn og segir
vörurnar gera sér kleift að
stunda hreyfingu án verkja.
Áður en Einar hóf inntöku á Kolla-
geni og Liðum var hann farinn að
finna fyrir verkjum sem voru farnir
að hafa neikvæð áhrif á getu hans
til að hreyfa sig og þar af leiðandi á
lífsgæði hans.
„Ég var með liðaverki í öxlum
og hnjám, svona eins og gengur og
gerist en svo var ég líka sárþjáður
af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var
farinn að ímynda mér að ég væri
kominn með vefjagigt eða eitthvað
í þeim dúr.“ Einar segir kynni sín af
vörunum hafa verið hálfgerða til-
viljun. „Ég var búinn að prófa ýmis-
legt og prófaði þetta af rælni. Þetta
reyndist síðan virka svona rosalega
vel. Ég er orðinn mjög góður í dag.“
Áþreifanlegur munur
Einar er búinn að nota vörurnar
í tæp tvö ár og hafa komið upp
tímabil þar sem hann hefur ekki
tekið þær inn. „Ég er búinn að prófa
að sleppa þessu og þá fer ekkert á
milli mála hvað þetta virkar vel. Ég
hef svo fundið áþreifanlegan mun
þegar ég byrja aftur.“
Þá hefur hann enn fremur
reynslu af því að taka inn bara aðra
hvora vöruna og þær saman. „Ég
hef líka bara átt Liði eða bara átt
Kollagen en ég finn að þetta virkar
ennþá betur saman. Þetta er frábær
blanda. Ég þarf að taka þetta með
mat til að styðja við upptökuna
þannig að ég tek þetta með sjúss af
ólífuolíu,“ segir Einar og hlær.
Einar hefur einnig prófað aðrar
sambærilegar vörur, bæði erlendar
og innlendar, og segir hann Protis
hafa reynst sér best. „Þetta erlenda
virkaði ekki neitt og þetta inn-
lenda virkaði ágætlega en var bara
alltof dýrt.“
Eins og þegar maður var yngri
Einar stundar ýmsa hreyfingu sér
til ánægju og segir blöndurnar nú
orðnar ómissandi. „Ef ég ætla að
vera góður, njóta lífsins og geta
hreyft mig þá finnst mér algjört
lykilatriði að taka þetta inn. Þetta
styður alla hreyfingu, hvort sem
það er skokk, hlaup eða ganga á fell
og fjöll.“
Einar segir ávinninginn ekki
síst felast í því hversu jákvæð áhrif
þetta hafi á endurheimt vöðva
þegar búið er að taka á því. „Þetta
verður svolítið eins og þegar maður
var yngri og fékk ekki harðsperrur
eða annað vesen. Líðanin batnar og
þá er auðveldara að virkja sig betur
í hreyfingu. Þannig kemur þetta
allt.“
Einar mælir heilshugar með vör-
unum. „Ég hugsaði með mér hvort
maður ætti nokkuð að vera að tjá
sig en síðan er ég alltaf að lesa um
fólk sem þjáist til dæmis af vefjagigt
og ef það getur lagað það með
þessu í staðinn fyrir að þjást, þá
væri algjör synd að koma því ekki á
framfæri. Mér er því ljúft og skylt að
deila þessu með fólki ef þetta skyldi
vera eitthvað sem gæti hjálpað því,“
segir Einar.
„Ég hélt að ég væri kominn með
vefjagigt en það lagaðist eftir að ég
fór að taka þetta inn. Það eru svo
mikil lífsgæði sem fylgja því að vera
í formi.“
Verndar liði, bein og brjósk
Protis Liðir er unnið úr kollagen-
ríkum skrápi sæbjúgna með
viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni
fyrir viðhald vöðva og túrmeriki
fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan
inniheldur einnig mangan og nauð-
synleg vítamín fyrir heilbrigð bein,
brjósk og liðvökva.
Fyrir húð, hár og neglur
Kollagen frá Protis er einstök
blanda úr hágæða innihaldsefnum
sem styðja við styrkingu á húð, hári
og nöglum. Kollagenið er framleitt
úr íslensku fiskroði og inniheldur
einstakt innihaldsefni – SeaCol,
sem er blanda af vatnsrofnu kolla-
geni úr íslensku fiskroði og vatns-
rofnu þorskprótíni úr íslenskum
þorski. SeaCol tekur þátt í að
styrkja vefi líkamans og viðhalda
teygjanleika. Einnig er sérvalin
blanda af vítamínum og stein-
efnum sem öll styðja við styrkingu
á húð, hári og nöglum. n
Vörur Protis fást í öllum helstu
matvöruverslunum og apótekum.
Ómissandi til að geta hreyft sig og notið lífsins
Einar Ásgeirsson segist mun fljótari að ná sér eftir hreyfingu þegar hann
tekur inn bæði Kollagen og Liði frá Protis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ef ég ætla að vera
góður, njóta lífsins
og geta hreyft mig þá
finnst mér algjört möst
að taka þetta inn.
Karólína Lárusdóttir
Listmunauppboð nr. 597
Rauðarárstígur 12–14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Helgi Þorgils Friðjónsson
Bragi Ásgeirsson
Ragnheiður Jónsdóttir Ream
Sýning í Gallerí Fold
9. - 30. apríl
ÞORRI
HRINGSSON
NÝ MÁLVERK
Kristján Davíðsson
Forsýning á verkunum hjá Fold
uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is
stendur yfir • lýkur 11. apríl
VEFUPPBOÐ ÚR EINKASAFNI
ANTHONY J. HARDY
Glæsilegt safn íslenskra verka
Louisa Matthíasdóttir
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 9. apríl 2022