Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 42
Það er mikill
kostur að hafa
einhvers konar tækni-
lega þekkingu, en áhugi,
greiningarhæfni og vilji
til að læra, eru langmikil-
vægustu eiginleikarnir
þegar kemur að því að
vinna við öryggismál.
Guðrún Valdís Jónsdóttir
Guðrún Valdís Jónsdóttir
starfar sem öryggisráðgjafi
hjá Syndis. Hún komst fyrst
í kynni við upplýsinga-
öryggismál þegar hún var í
námi í Bandaríkjunum. Hún
segir fjölbreytt störf í boði í
upplýsingaöryggisgeiranum
sem henta öllum kynjum.
Syndis sérhæfir sig í netöryggi, en
innan fyrirtækisins starfa nokkur
teymi á ólíkum sviðum. Guðrún
Valdís vinnur nú í teymi sem sér
um stjórnunarlegt öryggi.
„Það þýðir að við vinnum náið
með stjórnendum fyrirtækja,
stjórnum og öryggisstjórum. Í
stuttu máli þá veitum við alls kyns
ráðgjöf tengda öryggisstjórnun og
hlítingum, æfingum og gerð ferla,
uppbyggingu jákvæðrar öryggis-
menningar innan fyrirtækja og
ýmsu slíku,“ útskýrir Guðrún
Valdís.
Guðrún Valdís lærði tölvunar-
fræði í Princeton háskóla í Banda-
ríkjunum og tók þar valáfanga í
upplýsingaöryggi.
„Það voru mín fyrstu kynni af
netöryggi og ég fékk fljótt mikinn
áhuga á því. Í framhaldinu vann ég
mjög stórt rannsóknarverkefni í
skólanum tengt upplýsingaöryggi,
en það spannaði tveggja ára tíma-
bil,“ segir hún.
Eftir útskrift fékk Guðrún Valdís
strax vinnu hjá Aon á Manhattan í
New York.
„Ég fór þá í mjög skemmtilegt
40 vikna þjálfunarprógramm,
allt tengt upplýsingaöryggi. Þar
fékk ég að kynnast nokkrum
mismunandi hliðum upplýsinga-
öryggis, til dæmis stjórnunarlegu
öryggi, öryggisprófunum og að
bregðast við öryggisatvikum. Eftir
það fékk ég fullt starf við öryggis-
prófanir. Ég vann við að hakka
ýmis kerfi hjá viðskiptavinum,
heimasíður, snjallsímaforrit,
netkerfi, og fleira,“ segir Guðrún
Valdís og bætir við að starfið hafi
verið gríðarlega lærdómsríkt og
skemmtilegt.
„Það var í raun ekki fyrr en ég fór
út á vinnumarkaðinn að ég virki-
lega fékk þessa praktísku kunnáttu
sem maður er alltaf að nýta sér í
starfi við öryggismál.“
Smæðin er styrkur
Guðrún Valdís ákvað svo að koma
heim í stutt frí þegar Covid byrjaði,
sem endaði með því að hún flutti
heim.
„Áður en ég tók ákvörðun um að
flytja heim hafði ég samband við
Syndis. Ég fékk vinnu við öryggis-
prófanir, sem var nákvæmlega það
sama og ég var að gera úti. Öryggis-
prófanir eru mjög tæknilegt starf,
sem snýst um að líkja eftir árásum
meinfýsinna hakkara til að finna
öryggisveikleika í kerfum, oft sam-
hliða því að rýna kóðann. Það er
ótrúlega gaman og spennandi að fá
að vinna við eitthvað sem er undir
öllum öðrum kringumstæðum
ólöglegt,“ segir hún.
Guðrún Valdís segir það hafa
verið erfiða ákvörðun að flytja
heim, en hún sér alls ekki eftir
henni.
„Eitt af því sem mér finnst
spennandi við að vinna í öryggis-
málum á Íslandi er hvað Ísland er
lítið land. En ég held að smæðin
sé einn okkar helsti styrkur. Lítil
fyrirtæki og einstaklingar geta
haft mikil áhrif hér, þar sem
allar samskiptaleiðir eru stuttar.
Við vinnum náið með fólki sem
er í þeirri stöðu að hafa mikið
ákvörðunarvald, svo mér finnst
ég geta haft meiri áhrif hér heldur
en í miklu stærra samfélagi eins
og í Bandaríkjunum. Það eru ekki
mikil tækifæri til að tala beint við
toppana úti,“ útskýrir hún.
Guðrún Valdís hafði unnið
við öryggisprófanir frá útskrift
frá Princeton-háskóla, en ákvað
breyta til um áramótin, skipti um
deild og fór að vinna við stjórnun-
arlegt öryggi. Hún segir að störfin
séu mjög ólík en það er einmitt
það sem henni finnst áhugavert
við upplýsingaöryggisgeirann. Það
eru svo fjölbreytt störf í boði innan
hans.
„Mér finnst frábært að hafa haft
möguleikann á að skipta um teymi
og fara að fást við eitthvað mjög
ólíkt því sem ég gerði áður, en vera
samt áfram í öryggisstarfi innan
Syndis. Svo nýtist tæknilega þekk-
ingin mín úr öryggisprófunum
mér mjög vel í núverandi verk-
efnum. Starfið sem ég er í núna
snýst meira um stjórnun, mannleg
samskipti, þjálfun starfsfólks og
öryggisvitund, á meðan öryggis-
prófanirnar eru mun tæknilegri,“
útskýrir hún.
Það þarf ekki að vera nörd
Guðrún Valdís segir að það sé
algengur misskilningur að það
þurfi að vera algjör nörd til að
vinna við upplýsingaöryggi.
„Við höfum heyrt það bæði frá
umsækjendum og fólki sem þorir
ekki að sækja um starf hjá okkur,
að það heldur að þetta sé ekki
starf fyrir það. Fólk heldur að það
sé ekki nógu klárt. Það er vissu-
lega mikið af mjög kláru fólki sem
vinnur í þessum geira. En lang-
flestir sem vinna við þetta hafa
lært mest eftir að þeir komust út á
vinnumarkaðinn, eða með sjálfs-
námi. Það eru fáir sem öðlast þessa
praktísku reynslu í öryggismálum
í skóla,“ segir hún.
„Starfsreynsla beintengd upp-
lýsingaöryggi er alls ekki skilyrði
fyrir að byrja að vinna í þessum
geira. Það er mikill kostur að hafa
einhvers konar tæknilega þekk-
ingu, en áhugi, greiningarhæfni og
vilji til að læra, eru langmikilvæg-
ustu eiginleikarnir þegar kemur að
því að vinna við öryggismál. Það
eru mjög mörg mismunandi störf
innan net- og tölvuöryggisgeirans,
störf sem krefjast ólíkra hæfileika.
Sum krefjast þess að hafa sterkan
tæknilegan bakgrunn, önnur
krefjast þess að vera góður í mann-
legum samskiptum og þar fram
eftir götunum.“
Guðrún Valdís víkur talinu að
skorti á konum innan upplýsinga-
öryggisgeirans. En hún tók eftir
honum, bæði þegar hún vann í
Bandaríkjunum og hér á Íslandi.
„Það vantar stelpur í þennan
geira. Við höfum verið um það bil
í tíu prósentunum síðan ég byrjaði
hér heima. Ég var fyrsta stelpan
sem var ráðin til Syndis árið 2020,
núna erum við rúmlega 30 manna
teymi og við erum þrjár stelpur.
Þannig að það er klárlega mikill
halli. En þetta starf hæfir okkur
alveg fullkomlega. Mig langar að fá
fleiri stelpur í bransann og fá þær
til að sækja um og koma að vinna
með mér,“ segir hún og hlær, en
bætir svo við ögn alvarlegri:
„Þeirra hæfileikar nýtast alveg
100% hér. Það er alveg pláss fyrir
stelpur í þessum bransa. Ég vona
bara að þær fari að sækja um.“ ■
Nóg pláss fyrir stelpur í bransanum
Guðrún Valdís
fékk áhuga á
netöryggi þegar
hún var í námi í
Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
4 kynningarblað 9. apríl 2022 LAUGARDAGURkoNur í upplýsiNgatækNi