Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 68
VILTU VINNA VIÐ SKEMMTILEG
OG KREFJANDI SKIPULAGSVERKEFNI?
Landmótun auglýsir eftir sérfræðingi í landupplýsingakerfum og með reynslu af
skipulagsmálum. Leitað er að fjölhæfum og lausnamiðuðum aðila til að sjá um gerð og
greiningar á landfræðilegum gögnum ásamt framsetningu á skipulagsgögnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistaragráða í landfræðilegum upplýsingakerfum, skipulagsfræði,
landslagsarkitektúr, landfræði eða sambærileg menntun.
• Þekking á hönnunarforritum og landupplýsingakerfum.
• Reynsla af skipulagsvinnu æskileg.
• Gott vald á íslenskri tungu og framsetningu á texta og kynningarefni.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Landmótun er teiknistofa sem hefur veitt alhliða ráðgjöf um skipulag og hönnun í 28
ár. Verkefnin spanna allt frá stórum skipulagssvæðum í óbyggðri náttúru, skipulagi fyrir sveitarfélög og stefnumótun og hönnun í byggðu umhverfi. Lögð er áhersla á að móta
öruggt og innihaldsríkt umhverfi sem tekur mið af aðstæðum á hverjum stað, vinna með
samspil mannlífs og náttúru, stuðla að sjálfbærni og auka lífsgæði.
Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2022 og skulu umsóknir
berast á netfangið margret@landmotun.is.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Landmótunar
www.landmotun.is. Áhugasömum er einnig bent á að hafa samband
við Margréti í síma 575 5305.
Sviðsstjóri
rannsókna- og nýsköpunarsviðs
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Rannís er líflegur vinnustaður með um 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og
samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og
menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum
og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar
undirbúning vísinda- og tæknistefnu.
Rannís leitar að metnaðarfullum og öflugum sviðsstjóra rannsókna- og nýsköpunarsviðs til að
leiða 22 manna teymi sérfræðinga í fjölbreyttum verkefnum. Sviðið er annað tveggja meginsviða
stofnunarinnar og fer með umsýslu rúmlega tíu innlendra samkeppnissjóða þar sem þeir stærstu
eru Rannsóknasjóður, Tækniþróunarsjóður, markáætlanir og Innviðasjóður. Þá sér sviðið um
þrjá réttindasjóði og er skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna þeirra stærstur. Loks sér
sviðið um þátttöku Íslands í sex alþjóðlegum áætlunum þar sem Horizon Europe, rannsókna- og
nýsköpunaráætlun ESB er umfangsmest. Sviðsstjóri er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar og
tekur virkan þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
l Háskólamenntun á meistarastigi áskilin
l Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
l Mjög góð þekking og reynsla af íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi
l Reynsla af alþjóðlegu samstarfi
l Samskiptafærni og færni til að miðla og skapa góða liðsheild
l Rekstrarreynsla ásamt færni í helstu Office forritum
l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði tal- og ritmáli
l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn verkefna
l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði
og veita góða þjónustu
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson forstöðumaður
í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2022.
Sækja skal um starfið á heimasíðu Rannís, á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.
Umsækjendum er bent á að kynna sér starfsemi Rannís og sérstaklega
starfsemi rannsókna- og nýsköpunarsviðs og þeirra sjóða og alþjóðlegu
áætlana sem sviðið hefur umsjón með.
Borgartúni 30, 105 Reykjavík,
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Tónlistarskóli Eyjafjarðar
auglýsir eftir tónlistarkennurum
í eftirfarandi stöður:
Tónlistar-/tónmenntakennari í 75-100% starfshlutfall.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar leitar að tónlistar-/tónmennta-
kennara til að kenna og móta fjölbreytta tónlistarkennslu
við skólann. Sinna þarf fjölþættri kennslu, m.a. forskóla-/
tónmenntakennslu í samvinnu við leik- og grunnskóla
á starfssvæðinu sem er Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit,
Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur.
Fyrir hæfan og metnaðarfullan aðila eru möguleikar á að
þróa og móta starfið en unnið hefur verið með ýmsa þætti
eins og marimbukennslu, kórstarf, samsöng, rythmískt sam-
spil o.fl. Hljóðfærakennsla getur verið hluti af starfinu
ef umsækjandi óskar.
Tónlistarkennari/Gítarkennari í 50-100% starfshlutfall.
Leitað er eftir kennara með breiðan bakgrunn sem gæti
kennt fjölbreytta hljóðfærakennslu byrjenda með áherslu
á klassíska gítarkennslu.
Yfirmenn eru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri tónlistar-
skólans en í nánum samskiptum við aðra stjórnendur leik-
og grunnskóla.
Umsækjandi hafi menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum tónlistarkennara
við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða, akstur greiddur
samkvæmt samningi. Góð samskiptahæfni er lykilatriði.
Höfuðstöðvar skólans eru á Hrafnagili innan við 10 mínútna
akstur frá Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 8.maí 2022.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur Viktorsson,
skólastjóri s.8980525. Fyrirspurnir og umsóknir berist
á netfangið te@krummi.is
Skólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Fagefni ehf. óskar eftir að ráða drífandi fjármálastjóra
til starfa. Um er að ræða starf fyrir einstakling sem hefur
áhuga á að taka þátt í þeim fjölbreyttu verkefnum sem
snerta rekstur fyrirtækisins, hvort sem þau snúa að
fjármálum, innkaupum eða símsvörun. Leitað er að eins-
taklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri í
ört stækkandi fyrirtæki þar sem tækifærin eru endalaus og
starfsandinn góður.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
• Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, uppgjöri, reiknings-
haldi og launaútreikningi.
• Ábyrgð á gerð greininga ásamt gerð fjárhags- og
rekstraráætlana og ráðgjafar við yfirstjórn.
• Innkaup og samningagerð.
• Þar sem að yfirstjórn er lítil þarf aðili að koma að
margvíslegum málum í rekstri fyrirtækisins t.d. önnur
tilfallandi verkefni sem getur verið símsvörun og
móttaka viðskiptavina.
MENNTUNAR OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og uppgjörum skilyrði.
• Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhags-
upplýsinga.
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar, frumkvæði og
sjálfstæð vinnubrögð.
• Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun.
• Mjög góð tölvukunnátta og þekking á dk bókhaldskerfi.
• Færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
alda@fagefni.is fyrir 20/04/2022
Fjármálastjóri
Fagefni ehf er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem
flytur inn, þjónustar og selur hágæða múrefni,
þéttiefni og vínylgólfefni frá heims þekktum
framleiðendum.
Okkar markmið er alltaf að veita framúrskarandi
þjónustu og og safna ánægðum viðskiptavinum.
24 ATVINNUBLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR