Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 26
Það var
karlmaður
að afgreiða
og ég gat
ekki fyrir
mitt litla líf
rætt við
hann um
að ég væri
að leita
mér að
tæki til að
finna
G-blettinn
minn.
Gerður Huld Arinbjarnar-
dóttir stofnaði fyrirtæki sitt
Blush aðeins 21 árs gömul.
Hún var þá nýkomin úr fæð-
ingarorlofi og búin að týna
eigin kynveru, eins og hún
orðar það. Ellefu árum síðar
er Blush komið í 860 fermetra
og Gerður var nýverið valin
markaðsmanneskja ársins og
varð um leið yngsta konan til
að hljóta þann titil.
Við hittumst á fallegu
heimili Gerðar í Sala-
hverfinu í Kópavogi,
hver f inu sem hú n
hefur búið í frá ellefu
ára aldri. „Mér líður mjög vel hér en
foreldrar mínir byggðu húsið. Eftir
að þau skildu bjó pabbi hér og ég
keypti neðri hæðina en fyrir fjórum
árum skipti ég við pabba og nú bý ég
uppi og hann niðri.“
Foreldrar Gerðar kynntust aðeins
14 ára gömul og voru gift í 36 ár.
Gerður er örverpi, yngst þriggja
systra, og aðspurð hvort uppeldið
hafi litast af því að hún sé heilum
áratug yngri en næsta systir svarar
hún: „Kannski myndu systur mínar
segja það en það þarf að taka það
inn í myndina að mamma og pabbi
urðu foreldrar sextán ára og þá er
einfaldlega erfiðara að dekra við
börn. Þegar þau eignast mig eru
þau 27 ára og búin að koma undir
sig fótunum,“ útskýrir hún.
Foreldrahlutverkið krefjandi
Sjálf á Gerður einn son sem er tólf
ára. „Ég held ég láti það duga,“ segir
hún og viðurkennir að móðurhlut-
verkið hafi reynt meira á en hún
gerði ráð fyrir, en leiðir hennar og
barnsföður hennar skildu þegar
sonurinn var tveggja og hálfs árs.
Drengurinn bjó lengst af í Reykja-
vík en f lutti norður til föður síns
fyrir þremur árum. „Sem betur fer
valdi ég góðan barnsföður,“ segir
hún og útskýrir að þó að barnið búi
á einum stað sé uppeldið sameigin-
legt.
„Ég var tvítug þegar ég átti hann
og hafði engan veginn áttað mig á
því hversu krefjandi foreldrahlut-
verkið getur verið,“ segir Gerður en
þetta tímabil reyndi á hana. „Ég var
í raun að flýja sambandið og sjálfa
mig. Ég hafði alltaf ætlað mér að
verða mamma og helst eiga fjögur
börn en verandi ein með eins stóran
rekstur og Blush er orðinn þá finn ég
ekki þörfina fyrir það. Ég vil heldur
gefa barninu sem ég á nú þegar allan
þann tíma sem ég hef.“
Á svipuðum tíma og Gerður skildi
við barnsföður sinn stofnaði hún
fyrirtækið Blush og segir það hafa
gert sér gott að geta dreift huganum.
„Það er kannski ein ástæða þess að
það hefur gengið svona vel, ég er bara
búin að sökkva mér í það. Ég var með
ákveðna sýn á fjölskyldulífið sem
rættist ekki og að einhverju leyti er
það örugglega þannig hjá öllum
sem ganga í gegnum skilnað. En mér
fannst gott að geta skapað sýn með
Blush sem svo varð að veruleika.
Verkefnin sem hafa fylgt móður-
hlutverkinu hafa verið mikið, mikið
erfiðari en nokkuð sem hefur komið
upp í fyrirtækjarekstrinum og ég
held að þess vegna hafi ég getað tekið
þeim af yfirvegun og þolinmæði.“
Ég hef gaman af ástinni
Gerður er í sambúð með Jakobi
Fannari Hansen og segir hún barn-
eignaumræðuna hafa verið tekna
snemma í sambandinu og þar séu
þau á sömu blaðsíðu, þær séu ekki á
dagskrá eins og staðan er í dag. „En
maður veit aldrei hvað framtíðin
ber í skauti sér.
Við erum saman í fyrirtækja-
rekstri, en hann vann áður hjá
WOW air og kom inn í rekstur Blush
þegar hann missti starf sitt þar. Nú
fær hann ekkert að fara, enda orð-
inn einn verðmætasti starfsmaður-
inn,“ segir hún í léttum tón.
En það er ekki bara ástalífið sem
Gerður hefur einbeitt sér að, heldur
ástin sjálf því stuttu eftir að hún
Hef gaman af því
að dansa á línunni
Hugmyndina að Blush fékk Gerður 21 árs gömul, nýkomin úr fæðingarorlofi, í leit að kynlífstæki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
setti Blush á laggirnar stofnaði hún
fyrirtækið Sambandsmiðlun.
„Ég fékk þá hugmynd út frá því að
foreldrar mínir skildu og ég vissi að
mamma væri ekki týpan í að fara
að nota stefnumótaöpp eða slíkt.
Ég stofnaði því svona gamaldags
sambandsmiðlun sem gekk alveg
ofboðslega vel. Við vorum með sál-
fræðing í vinnu sem tók viðtöl við
alla sem sóttu um og paraði svo fólk
saman. Það eru enn til pör sem við
bjuggum til og ég er til dæmis að
fylgja einu pari sem gifti sig síðasta
sumar og var að eignast sitt annað
barn,“ segir Gerður og er greinilega
sátt við að hafa komið því til leiðar.
„Ég hef gaman af ástinni og heil-
brigðum samskiptum. Mér finnst
fátt eins skemmtilegt og að kynn-
ast pörum þar sem maður sér að
báðir aðilar eru að gera sitt besta
og samskiptin eru heilbrigð. Ég á
mjög erfitt með að horfa upp á nei-
kvæð samskipti í parasamböndum
og langar oft að koma með ráð sem
gætu hjálpað öðrum í samskiptum.“
Margverðlaunað fyrirtæki
Í ljós kemur að Gerður er nú að
vinna í gráðu í sambandsmark-
þjálfun. „Þetta heitir „Love and sex
coach“, en gráðuna tek ég við Love-
ology University í Bandaríkjunum,
sem er alfarið á netinu.“
Þó að sambandsmiðlunin hafi
gengið vel hafði Gerður stuttu áður
stofnað kynlífstækjaverslunina
Blush og ákvað að einbeita sér að
rekstri hennar þegar kauptilboð
kom í sambandsmiðlunina. Hún
sér ekki eftir þeirri ákvörðun í dag
enda hefur fyrirtækið vaxið og
dafnað, er komið í 860 fermetra hús-
næði og hlaut Gerður nýverið viður-
kenningu sem markaðsmanneskja
ársins 2021. Blush hefur jafnframt
frá árinu 2019 hlotið árlegar viður-
kenningar Creditinfo sem Framúr-
skarandi fyrirtæki og bætti við sig
titlinum Besta íslenska vörumerkið
í febrúar síðastliðnum en ár hvert
eru nokkur vörumerki, sem þykja
hafa skarað fram úr, valin af Brandr
vörumerkjastofu.
Reyndi lengi að vera extróvert
En þrátt fyrir að vera orkumikil og
opinská lýsir Gerður sér sem rólynd-
ismanneskju.
„Ég hafði alltaf reynt að vera
extróvert því mér fannst það sam-
þykktari leiðin í lífinu. Ég var alltaf
að reyna að gera eitthvað og hitta
fólk en svo var ég alltaf uppgefin
og fannst þetta ekki eins gaman og
hinum. Þegar ég fattaði að ég þyrfti
ekkert að eiga þrjátíu vini, það væri
nóg að eiga eina tvo góða vini, var
það mikið frelsi. Það þurfa ekkert
allir að vera formaður nemenda-
ráðs.“
Gerður er augljóslega ástfangin en
hún og Jakob kynntust á djamminu
eins og hún orðar það fyrir um sex
árum síðan. „Við vorum upphaf-
lega bara vinir en fyrir þremur og
hálfu ári síðan, sumarið 2019, sagði
ég honum að ég væri tilbúin í sam-
band. Ég sagði honum jafnframt að
ef ég ætlaði að fara í samband þyrfti
ég annað hvort að slíta okkar vina-
sambandi eða við þyrftum hrein-
lega að fara á stefnumót. Ég fann
bara hvernig ég var orðin skotin
í honum. Hann svaraði þá bara:
„Förum á stefnumót!“
„Þetta small strax og okkur líður
mjög vel saman,“ segir Gerður en
stuttu eftir að sambandið hófst var
Jakob farinn að vinna hjá Blush.
„Við pældum alveg í því hvernig
það yrði en hjá okkur hófst þetta
hægt og rólega og við vinnum mikið
hvort á sínum endanum. Ég er ekk-
ert yfirmaður hans en hann er ekki
heldur yfirmaður minn.“
Passaði ekki inn í
kynlífstækjakúltúrinn
Gerður stofnaði Blush árið 2011, hún
var þá 21 árs gömul og nýkomin úr
fæðingarorlofi. „Ég var þá búin að
vinna úti um allt: Subway, Hópkaup-
um, Landspítalanum og nokkrum
fataverslunum en alltaf mjög stutt
á hverjum stað. Þannig að ég hef
víðtæka reynslu úr atvinnulífinu,“
segir hún og hlær. „Draumurinn var
þó alltaf að eiga mitt eigið fyrirtæki
og ég hafði íhugað að opna skóbúð.“
En hugmyndin að Blush kom
þegar hún sjálf fann ekki það sem
hún leitaði að.
„Ég upplifði mig ekki passa inn í
þann kynlífstækjakúltúr sem var á
Íslandi. Ég labbaði inn í eina þeirra
verslana sem þá voru og ætlaði að
kaupa mér tæki, þar tók á móti mér
klámvídeó og óþægilegt umhverfi
fyrir 21 árs konu. Ég var á viðkvæmu
tímabili, nýbúin að eignast barn
og svolítið að reyna að endurupp-
götva kynveruna innra með mér.
Mér fannst ég ekkert sexí og labba
svo þarna inn og sé ekkert nema
klámmyndir. Það var karlmaður
að afgreiða og ég gat ekki fyrir mitt
litla líf rætt við hann um að ég væri
að leita mér að tæki til að finna G-
blettinn minn.“
Frá klámi í kynheilbrigði
Gerður lagðist því í rannsóknar-
vinnu og þar sem hún hafði verið að
leita að hugmynd að eigin fyrirtæki
fór hún að hugsa hvers vegna hún
stofnaði ekki kynlífstækjaverslun.
„Grunnhugmynd Blush var að
færa kynlífstækjamarkaðinn frá
klámi yfir í kynheilbrigði. Þegar
ég keypti mitt fyrsta kynlífstæki
var það til að rækta sjálfa mig. Ég
var búin að týna minni eigin kyn-
veru eftir barneignir og vissi ekki
hvernig ég ætti að starta mér aftur.
Ég hafði vanrækt sjálfa mig kyn-
ferðislega árið á undan og ætlaði
þarna að taka málin í mínar hendur.
Ég hafði alveg átt einhver tæki áður
en það var einhvern veginn meira í
gríni, þarna var hugsunin dýpri. Ég
vildi vera kynvera en var það ekki
á þessum tíma – ég var bara föst í
mömmugírnum Ég fór því að skoða
í kringum mig hvaða merki væru í
boði. Á þessum tíma var bæði lítið
framboð á Íslandi og lítil eftirspurn.
Þetta var bara sérhópur sem var að
kaupa þetta og aðrir fóru til útlanda
að versla. Ég þurfti því bæði að búa
til eftirspurnina og finna merkin.“
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
26 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ