Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 4
Vigdís Häsler
framkvæmdastjóri
Bændasamtaka
Íslands
tjáði sig á Face
booksíðu sinni
um ummæli
Sigurðar Inga
Jóhannssonar, innviðaráðherra og
formanns Framsóknarflokksins,
á Búnaðarþingi sem haldið var
í síðustu viku. Fréttir herma að
óviðurkvæmileg orð hafi verið
látin falla um húðlit Vigdísar, sem
tók málið óstinnt upp. „Ég veit hvað
ég heyrði, ég veit hvað var sagt.“
Magnús
Leópoldsson
sem sat í
gæsluvarðhaldi
í yfir 100 daga í
Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu
gagnrýnir harð
lega aðkomu stjórnmálamanna að
bótum til þeirra sem komu honum
í fangelsi með röngum sakar
giftum. Hann segir að himinháar
bótagreiðslur í þessu ljósi séu þeim
sem enn lifa af þeim fjórum sem
sátu inni mjög þungbærar.
Aníta Briem
leikkona
leikur aðal
hlutverkið í
kvikmyndinni
Skjálfta. Myndin
hefur verið sýnd
á nokkrum kvik
myndahátíðum og fengið góða
dóma. Aníta segir myndina fjalla
um það að ekki sé hægt að sópa
hlutum undir teppið. „Ef fólk tekst
ekki á við hlutina stækka þeir og
verða eins og eitur í líkamanum
sem ekki fer fyrr en við þorum að
horfast í augu við það.“ ■
■ Þrjú í fréttum
209
fjárfestar fengu kauprétt
í útboði á hlut ríkisins
í Íslandsbanka fyrir
rúmum tveimur vikum.
150
sátu í fangelsi á Íslandi
árið 2021, samkvæmt
nýlegri úttekt Evrópu-
ráðsins á fangelsis-
málum.
1,5
prósenta hækkun er
á matarkörfu fjögurra
manna fjölskyldu milli
mánaða, samkvæmt
verðkönnun ASÍ.
6,7
prósenta verðbólga er
á landinu og hefur ekki
mælst meiri í tólf ár.
66
prósent allra seldra nýrra
fólksbíla á árinu eru
nýorkubílar.
■ Tölur vikunnar
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
Hvað nærðu að gera á fimm mínútum? Það tekur Fiat 500e aðeins
fimm mínútur í hraðhleðslu að ná 50km akstursdrægni. Fiat 500e
sameinar gæði og tímalausa ítalska hönnun sem hentar vel fyrir þá
sem þurfa að komast örugglega á milli staða innanbæjar.
Með 3+1 hurðum og allt að 433 km drægni
FIAT.IS
Meint lögbrot við sölu
Íslandsbanka skapa titring.
Forsætisráðherra segir að
spurningar hafi vaknað um
pólitíska ábyrgð.
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Meirihlutinn á Alþingi
féllst ekki á óskir minnihlutans um
að skipa sérstaka rannsóknarnefnd
um útboð á hlut ríkisins í Íslands
banka. Ásakanir um meint lögbrot
við söluna bættust ofan á fyrri ólgu á
Alþingi í gær, svo nálgast suðupunkt.
Margir þingmenn minnihlutans
vidu knýja fram rannsókn þingsins
á málinu og telja ekki nóg að gert að
vísa málinu til Ríkisendurskoðunar.
„Ríkið er búið að dunda við að
selja bankana í tómu rugli og lög
brotum,“ sagði Guðmundur Ingi
Kristinsson, Flokki fólksins, og gerði
ágóða útvalinna vegna sölunnar að
umræðuefni.
Halga Vala Helgadóttir, þing
flokksformaður Samfylkingarinnar,
var í hópi þeirra sem vildu gera hlé
á þingfundi til að ná niðurstöðu um
formlega rannsóknarnefnd Alþingis
vegna sölunnar.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður
Viðreisnar, sagði ekkert mál meira
knýjandi en þetta. Hann sagði orð
Sigríðar Benediktsdóttur hagfræð
ings, sem sat í rannsóknarnefnd
Alþingis sem rannsakaði hrunið og
telur að lög hafi verið brotin, vega
þyngra en allt sem sagt hefði verið í
ræðustóli Alþingis um málið síðustu
daga.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð
herra sagði skömmu áður en krafan
kom upp á þinginu að enginn deildi
um það að frumútboð við sölu ríkis
hlutar í Íslandsbanka í fyrra hefði
verið vel heppnað. Í þessum legg
sölunnar hefðu aftur vaknað spurn
ingar um pólitíska ábyrgð. Eðlilegt
væri að þeirra spurninga sé spurt og
niðurstaða fáist í málinu.
Katrín segir að Bankasýslan hafi
verið valin til að stýra þessu ferli.
Hún starfi í armslengd frá hinu
póli tíska valdi. Katrín segist sjálf
hafa lagt áherslu á, í blóra við vilja
Bankasýslunnar, að birta nafnalista
kaupenda. Ríkisstjórnin hafi verið
einhuga um nafnbirtinguna.
„Það hafa vaknað spurningar um
hvort framkvæmdin haf verið í takti
við lýsingu sem lagt var upp með.
Við höfum sent Ríkisendurskoðun
beiðni og þessum málum verður
ekkert hreyft meðan málið er til
skoðunar hjá Ríkisendurskoðun,“
sagði Katrín.
Spurð hvort Bankasýslan hafi
sannarlega starfað í armslengd frá
hinu pólitíska valdi, svarar Katrín:
„Ja, ekki var ég upplýst um neina
kaupendur og ég tel að það sama eigi
við um aðra ráðherra.“
Varðandi ábyrgð Bjarna, sem
viðurkenndi í samtali við Frétta
blaðið í gær að hann hefði betur
séð til þess fyrir fram að pabbi hans
hefði ekki keypt hlut í útboðinu,
segir Katrín:
„Það er á ábyrgð löggjafans sem
hefur útbúið ferlið, að Bankasýslan
sé fjarri pólitísku valdi og þótt við
höfum skoðanir er það ekki okkar
hlutverk að velja kaupendur, við
erum ekki upplýst. En við getum
rætt hvort við viljum hafa þetta
fyrirkomulag. Þótt það sé þann
ig að við setjum stofnun í fjarlægð
er spurning hver ber ábyrgð á hinu
pólitíska valdi."
Svandís Svavarsdóttir, sjávarút
vegs og landbúnaðarráðherra VG,
vildi ekki ganga svo langt að kalla
söluna klúður.
„Nei, alls ekki klúður,“ sagði Svan
dís.
Bjarni Benediktsson sagði í við
tölum við fjölmiðla í gær að hann
gerði sér vonir um að úttekt Ríkis
endurskoðunar lægi fyrir í júní.
„Eina leiðin til að ná trausti á ný,“
segir Svandís.
Fagfárfestirinn Jakob Valgeir
Flosason gagnýndi í Fréttablaðinu í
gær að lífeyrissjóðirnir hefðu press
að verð hlutabréfanna niður. Ríkið
hefði getað fengið hærra verð fyrir
hlutina sem seldir voru ef færri kaup
endur hefðu fengið að kaupa meira,
„Þarna er útgerðarmaður að segja:
Ef ég hefði fengið að kaupa meira
hefði ríkið getað fengið hærra verð,“
segir Bjarni Benediktsson. „En við
erum sammála um að tryggja fjöl
breytni eigenda og dreifa eignarað
ild. Við myndum ekki vilja láta fáa,
til dæmis útgerðaraðila, taka stóra
hluta og ráða bankanum í fram
haldinu.“
Bjarni bendir á að nú séu 14 hlut
hafar með eitt prósent eða meira í
bankanum, Ríkið sé enn langstærst
með 45 prósent. 15.000 hluthafar eigi
minna en eitt prósent.
„Útgerðarmaðurinn er að segja að
ef hann hefði fengið að kaupa meira
hefði bankanum verið betur stýrt í
framhaldinu. Hann má alveg eiga þá
skoðun,“ segir Bjarni. ■
Hafnar beiðni um rannsókn þingsins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að spurningar hafi vaknað um pólitíska ábyrgð. Hún á
von á að þeim verði svarað með úttekt Ríkisendurskoðunar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Bjarni
Benediktsson
Svandís
Svavarsdóttir
4 Fréttir 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ