Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 88
Fjölbreytileiki er
nátengdur nýsköp-
un og á vinnustað býr
hann til frjórra umhverfi
sem hvetur til sköpunar.
Ósk Ólafsdóttir
Annata er alþjóðlegt hug-
búnaðarfyrirtæki með
höfuðstöðvar á Íslandi.
Starfsstöðvar eru víðs vegar
um heiminn og þær stærstu
eru í Malasíu og Bretlandi.
Um 30 prósent starfsfólks
og þrír af sex framkvæmda-
stjórum eru konur.
„Annata er með skrifstofur í
fimmtán löndum og hjá fyrir-
tækinu starfa rúmlega 200 manns,“
segir Elva Guðrún Guðjónsdóttir,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
Annata. „Frá stofnun Annata
höfum við lagt áherslu á þróun
á lausnum byggðum á Microsoft
Dynamics 365, Power BI, Azure og
umlykjandi tækni, sem síðan hefur
fest sig í sessi á alþjóðamarkaði
innan bíla- og tækjaiðnaðarins.“
Alþjóðleg staða Annata er eins-
dæmi hér á landi. „Við vinnum
mjög náið með Microsoft á sviði
viðskiptalausna fyrir bíla- og
tækjaiðnað og erum eitt örfárra
fyrirtækja í heiminum sem Micro-
soft flokkar sem alþjóðlegan hug-
búnaðarframleiðanda Microsoft
sérlausna. Undanfarin ár höfum
við hjá Annata unnið markvisst að
uppbyggingu á erlendum mörk-
uðum, en 95% af viðskiptavinum
Annata eru erlendis,“ segir Elva.
Fjölbreytileikinn gerir menn-
inguna betri
„Fyrirtækjamenning Annata er til
þess fallin að hvetja starfsfólk til
þróunar í starfi,“ segir Ósk Ólafs-
dóttir framkvæmdastjóri inn-
leiðingar og þjónustu hjá Annata.
„Ég er tölvunarfræðingur frá HR og
með meistaragráðu í hugbúnaðar-
verkfræði frá DTU í Danmörku.
Fyrir Annata hafði ég unnið í um
sex ár við hugbúnaðarþróun og
verkefnastjórnun hjá UT-fyrirtækj-
um. Á þeim tíu árum sem ég hef
verið hjá Annata hef ég verið með
fingurna í nánast allri starfsemi,
sem forritari, ráðgjafi, verkefna-
stjóri, viðskiptastjóri og fleira og er
nú framkvæmdastjóri í alþjóðlegu
hlutverki. Ég hef fengið mörg tæki-
færi til að vaxa og þróast í starfi
innan fyrirtækisins,“ segir Ósk.
Arna Eir Einarsdóttir fjármála-
stjóri er viðskiptafræðingur frá
HR. „Ég vann í sjö ár hjá Actavis
sem sérfræðingur á fjármálasviði
og var að ljúka MBA-námi í Kúala
Lúmpúr þegar mér bauðst staða
rekstrarstjóra á skrifstofunni í
Malasíu. Á tveimur árum fjölgaði
starfsmönnum skrifstofunnar úr
tuttugu í sextíu, sem var ótrúlegt
ævintýri. Það eru forréttindi að
hafa fengið að kynnast ólíkum
menningarheimum, en starfs-
menn skrifstofunnar þar eru með
mjög ólíkan bakgrunn. Á þessum
tíma vorum við með starfsfólk frá
yfir tíu löndum. Ég flutti aftur til
Íslands 2019 og var í hlutverki verk-
efnastjóra í nokkra mánuði áður
en ég tók við sem fjármálastjóri. Ég
hef verið hjá Annata í rúm fimm ár
en er núna í fæðingarorlofi,“ segir
Arna.
Áður en Elva hóf störf hjá Annata
hafði hún unnið í fjarskiptageir-
anum í um tíu ár. „Í sömu viku og
ég byrja hjá Annata, í algjörlega
nýjum geira, hóf ég MBA nám við
Háskólann í Reykjavík, en fyrir
var ég með viðskiptafræðigráðu
frá HR. Næstu tvö ár voru ákveðin
áskorun, en þessi reynsla hefur
komið sér vel í núverandi starfi. Ég
er auðvitað ekki með þessa dæmi-
gerðu tæknimenntun og það er
staðfesting á að hægt sé að ná langt
innan þessa geira verandi kona
með annan bakgrunn og sýn. Fjöl-
breytileikinn hjá Annata er mikill
sem gerir menningu Annata enn
betri. Í dag, eftir sex ára starf, er ég
framkvæmdastjóri markaðssviðs
hjá Annata og starfa þvert á allar
skrifstofur.“
Tækifærin og traustið til staðar
Elva segir að stærsti hluti hennar
teymis sé í Malasíu. „Að stýra
dreifðu og fjölbreyttu teymi getur
auðvitað verið krefjandi, en á sama
tíma er þetta mjög skemmtilegt og
lærdómsríkt,“ segir Elva.
„Tækifærin hjá Annata geta líka
verið fjölbreytt. Sjálf tók ég ákvörð-
un um að flytja heim frá Malasíu
og hafði þá möguleika á að takast
á við nýjar áskoranir hjá Annata
á Íslandi. Ég hef verið óhrædd við
að grípa þau tækifæri sem bjóðast
og verkefni mín hafa verið þvert
á starfsemi fyrirtækisins,“ segir
Arna.
„Einn af stærri kostum Annata
er einmitt að fólki er tekið á sínum
forsendum en ekki flokkað í kassa.
Strax á mínum fyrstu vikum
kom ég auga á eitthvað sem betur
mátti fara, sem snerti ekki á mínu
verksviði. Stjórnendur veittu mér
umboðið og ábyrgðina til þess að
laga málið. Ég hef fengið traust,
stuðning og tækifæri til þess að
takast á við krefjandi áskoranir
og verkefni og fengið að stýra með
ýmsum hætti, svo lengi sem sýnt
er fram á árangur,“ segir Ósk. Arna
bætir þá við: „Ef fólk veit hvert það
vill stefna þá er það mín reynsla
að stjórnendur geri sitt besta til
að styðja starfsfólk í að komast
þangað.“
Lengi má gott bæta
Konum hefur farið fjölgandi í upp-
lýsingatæknigeiranum, en betur
má ef duga skal. „Þegar ég byrjaði
í tölvunarfræði fann ég aðeins
fyrir því að ég passaði ekki inn í
staðalímyndina. Í mínum geira hef
ég samt alltaf fundið fyrir virðingu
og síðustu ár hef ég áttað mig á því
að sú staðreynd að ég passa ekki í
þetta hefðbundna form, er einn af
mínum helstu styrkleikum. Fjöl-
breytileiki er nátengdur nýsköpun
og á vinnustað býr hann til frjórra
umhverfi sem hvetur til sköpunar,“
segir Ósk.
„Í okkar vinnuumhverfi eru
konur í minnihluta. Við þetta
bætist að fyrirtækin sem við erum
að herja á eru aðallega innan bíla-
og vinnuvélaiðnaðarins og er sá
geiri karllægari en tæknigeirinn,
ef eitthvað er. Þó örfáar undan-
tekningar séu á því, hefur mér verið
tekið á jafningjagrundvelli.“
Elva bætir við að þó kynjahlut-
föllin í tæknigeiranum þokist í
rétta átt, sé vinnunni alls ekki
lokið. „Þróunin hefur staðnað í
faraldrinum. Í Covid komu upp
aðstæður sem þurfti að bregðast
hratt við. Lokanir á leikskólum og
stofnunum urðu til þess að margir
þurftu í auknum mæli að huga
að börnum og öðrum fjölskyldu-
meðlimum. Þessar aðstæður
höfðu frekar áhrif á konur og störf
þeirra, þar sem þær eru líklegri til
að standa þessa svokölluðu þriðju
vakt. Við þurfum að gera enn betur
í jafnrétti kynjanna að þessu leyti.“
„Tæknifyrirtækin eru að átta
sig á því að þau þurfa að búa til
starfsumhverfi sem hlúir að alls
konar fólki. Vonandi erum við
að færast nær því að geta skilið
staðalímyndirnar eftir í fortíðinni,“
segir Ósk.
„Ólíkur bakgrunnur er af hinu
góða. Þetta snýst líka um sýnileika
og það hjálpar til að kvenkyns
fyrirmyndum hefur fjölgað. Ég
hef lært mjög mikið af öflugum
konum, en líka körlum innan
Annata og er afskaplega þakklát
fyrir það,“ segir Arna.
„Síðustu árin hefur kynja-
hlutfallið verið að réttast af hjá
okkur og í dag eru þrír af sex
framkvæmdastjórum konur. Það
er dýrmætt að eiga skemmtilegar,
hæfileikaríkar og reynslumiklar
samstarfskonur eins og Örnu og
Elvu,“ segir Ósk. Elva tekur undir
ummæli beggja og bætir við að
virðing sé stór hluti af menningu
Annata. „Í heildina eru 30% starfs-
fólks Annata konur og við erum að
gera sérstaklega vel í Malasíu og á
Íslandi,“ segir Elva.
Jákvæð áhrif fjarvinnu
Með faraldrinum komu áskoranir,
en líka tækifæri. „Í samkomutak-
mörkunum færðist starfsemi fyrir-
tækja í auknum mæli upp í skýið.
Sveigjanleiki hefur aukist, sem er
mikilvægt fyrir jafnréttið. Rann-
sóknir sýna að það jafnar leikinn
fyrir konur ef starfsfólki er gefið
tækifæri til að vinna sveigjanlegan
vinnutíma og heiman frá þegar
þörf er á,“ segir Ósk.
„Staðsetning skiptir minna
máli en áður og fjarfundir eru
eðlilegur hluti af vinnudeginum
þar sem Annata vinnur þvert á
tímabeltin. Sú framþróun á staf-
rænum lausnum sem átti sér stað
í faraldrinum gaf Annata aukna
getu til þjónusta viðskiptavini sem
nauðsynlega þurftu að bregðast við
breyttum kröfum markaðarins,“
bætir Elva við. „Sömuleiðis opnuð-
ust dyr að fjölbreyttari tækifærum
innan Annata fyrir starfsfólk sem
hefur ekki tök á að ferðast vegna
vinnunnar,“ bætir Arna við. „Það
kom einmitt í ljós að við getum gert
miklu meira án þess að vera í sama
landi og viðskiptavinir og sam-
starfsfólk,“ segir Ósk. ■
Skiljum staðalímyndirnar eftir í fortíðinni
Elva, Arna og
Ósk eru sam-
mála um að
menningin hjá
Annata sé ein-
stök og til þess
fallin að hvetja
starfsfólk til
dáða.
Fréttablaðið/
Eyþór
10 kynningarblað 9. apríl 2022 LAUGARDAGURkonur í upplýSingatækni