Fréttablaðið - 09.04.2022, Blaðsíða 24
Nánari upplýsingar um
viðburði helgarinnar
má finna á: barna-
menningarhatid.is.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Þetta
ósann-
gjarna
kosninga-
kerfi er í
boði Fram-
sóknar.
Við mælum með
Klámiðn-
aðurinn er
á undan-
haldi á
meðan
kynheil-
brigði er á
allra
vörum.
BJORK@FRETTABLADID.IS
Afternoon Tea á Fjallkonunni
Síðdegiste á Fjallkonunni er sér-
lega gómsæt og girnileg upplifun.
Hægt er að velja úr nokkrum bragð-
tegundum af tei og jafnvel bæta
við glasi af freyði- eða kampavíni.
Maturinn er borinn fram á fallegum
tveggja hæða bakka troðnum af alls
kyns kræsingum svo sem bláberja-
skonsum, túnfiskssamlokum, bolla-
kökum, sörum og makkarónum.
Confit-önd á vestfirskri hveitiköku
bar þó af. Síðdegisteið er borið fram
alla virka daga frá klukkan 14.30-17.
Í næstu þingkosningum, sem gætu
orðið fyrr en varir miðað við vand-
ræðaganginn á ríkisstjórninni, flyst
eitt þingsæti frá Norðvesturkjör-
dæmi til Kragans. Ástæðan er sú að
í þingkosningunum í september síð-
astliðnum höfðu kjósendur í Norð-
vestur 2,1 atkvæði á móti hverju
einu atkvæði kjósenda í Kraganum.
Samkvæmt 31. grein stjórnar-
skrárinnar verður að f lytja þing-
sæti frá því kjördæmi sem hefur
fæsta kjósendur að baki hverjum
þingmanni yfir í það kjördæmi
sem hefur flesta kjósendur að baki
hverjum þingmanni verði munur á
vægi atkvæða tvöfaldur eða meiri.
Í næstu þingkosningum verða
kjördæmakjörnir þingmenn Norð-
vestur sex talsins sem er lágmarkið
samkvæmt stjórnarskrá. Samt verða
kjósendur í Norðvestur með 1,7
atkvæði á móti einu atkvæði hvers
kjósanda í Kraganum.
Þetta ósanngjarna og spillta
kosningakerfi er í boði Framsóknar-
f lokksins, sem hefur það sem eitt
sitt helsta keppikefli að halda vægi
atkvæða í þéttbýlinu umhverfis höf-
uðborgarsvæðið svívirðilega lágu.
Framsóknarflokkurinn reynir að
bera óréttlætið á borð sem réttlætis-
mál og heldur því fram að eðlilegt
og rétt sé að skerða sjálfsögð mann-
réttindi íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins vegna þess að þeir eigi greiðari
aðgang að stjórnsýslu og þjónustu
en íbúar landsbyggðarinnar.
Þessi rök eru falsrök. Heilög
mannréttindi á borð við jafnan
kosningarétt geta ekki og mega
ekki vera umsemjanleg pólitísk
Mannréttindabrot í boði Framsóknarflokksins
skiptimynt. Vilji stjórnmálamenn
og -flokkar bæta stöðu dreifbýlisins
hafa þeir ýmis úrræði til þess.
Skerðing sjálfsagðra mannrétt-
inda meirihluta þjóðarinnar er hins
vegar ekki í boði.
Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu
mættu hafa hugfast við kjörkass-
ann í sveitarstjórnarkosningum
14. maí að Framsóknarflokkurinn,
sem berst gegn sjálfsögðum mann-
réttindum kjósenda í Reykjavík og
nágrannasveitarfélögum, á ekkert
erindi í sveitarstjórnir á svæðinu. n
Smörre á Kastrup
Það verður enginn svikinn af smur-
brauðinu á veitingastaðnum Kast-
rup á Hverfisgötu. Klassískir réttir
á við maríneraða síld, egg og rækjur
og roastbeef í bland við kartoffel-
mad og nautalund eru bæði vel úti-
látnir og fallega framreiddir. Svo
má auðvitað toppa máltíðina með
eftirréttaostum, pönnukökum eða
sætum súkkulaðibitum. Velbe-
kommen! n
Á þriðjudag var Barnamenn-
ingarhátíð sett í Reykjavík og
stendur hún út sunnudaginn
með tilheyrandi gleði og fjöl-
breyttum viðburðum um alla
borg – sem allir eru þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
bjork@frettabladid.is
Ævintýrahöllin
Fjölbreytt og spennandi menning-
ardagskrá er fyrir börn og fjölskyld-
ur í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal.
Fjölskyldujóga, trúðar, dans-safarí,
Abba-söngstund í sundi, upplestur
úr bókum, æskusirkus, sundballett,
krakkakarókí og krakkareif og ótal
margt fleira.
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, frá
kl. 10-17 báða dagana.
TÍST, TÍST! … ĆWIR, ĆWIR! …
TWEET, TWEET!
Fjölskylduvænn f jöltyngisvið-
burður á íslensku, pólsku, ensku
og fuglamáli. Dansarinn Magdal-
ena Tworak og leikkonan Nanna
Gunnars leiða fjölskyldur í gegnum
30 mínútna gagnvirka sögustund
sem er ætluð 5-12 ára börnum.
Verkið fjallar um fjölda farfugla sem
kemur til Íslands hluta ársins og er
skrifaður af Ewu Marcinek.
Gröndalshús, sunnudag, kl. 11, 12
og 13.
Stefnumót á strigaskóm
Hjólatúr verður um Voga- og
Heimahverfið þar sem hlusta má
á upplestur úr barnabókum á vel
völdum stöðum. Heitt súkkulaði á
kaffihúsi í lok ferðar. Hjólastjórar
eru Árni Davíðsson hjá Landssam-
tökum hjólreiðamanna og Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir, barnabóka-
vörður á Borgarbókasafninu Sól-
heimum.
Laugardag frá kl. 10 til 12.
50 hættulegir hlutir
Hefur þú sleikt níu volta batterí?
Tekið lokið af pottinum á nákvæm-
lega sama tíma og poppmaísinn
springur? Aldrei? Þá er sýningin 50
dangerous things eitthvað fyrir þig!
Sýningin rannsakar allt það sem
börnum er yfirleitt sagt að vara sig
á eða forðast! Stórhættulegt leik-
hús sem reynir á þolmörkin, eitt-
hvað sem börn fá yfirleitt ekki að
upplifa.
Norræna húsið, laugardag, kl. 15.
Sögur af afa og ömmu
Afi og amma hafa frá ýmsu að segja.
Undanfarnar vikur hefur sögum frá
eldra fólki sem sækir félagsstarfið í
Gerðubergi verið safnað saman. Þau
hafa rifjað upp atburði frá því þau
voru börn og á þessum viðburði
ætla þau að segja börnunum þessar
sögur.
Listasmiðja – börnin teikna undir
áhrifum frá sögunum.
Gerðuberg, laugardag, kl. 11 til
12.30.
LÁN – listrænt ákall til
náttúrunnar
Sýningar á verkum barna tengdum
náttúrunni og sýn barna á framtíð
jarðarinnar. Börn úr 15 leikskólum
og grunnskólum borgarinnar hafa
unnið undir leiðsögn vísinda- og
listafólks.
Borgarbókasafnið Gróf inni og
Spönginni, Sjóminjasafnið, Perlan,
Safnahúsið, Grasagarðurinn. Kl. 10
til 17 báða dagana. n
Fjölskyldufjör um alla borg
Skemmtilegir viðburðir fyrir börn-
verða víðs vegar um borgina.
Hugmyndin er að margbreytileiki og
jafnræði sé leiðarljós hátíðarinnar.
Frítt er inn á
alla viðburði
hátíðarinnar
sem rúmar allar
listgreinar fyrir
börn og fjöl-
skyldur þeirra.
MYND/AÐSEND
Gerður Huld Arinbjarnardóttir er
yngsta kona sem hefur verið valin
markaðsmanneskja ársins – en þó að
hún hafi staðið í fyrirtækjarekstri í
ellefu ár er hún aðeins rúmlega þrítug.
Viðurkenninguna hlaut hún í upphafi árs fyrir
ótrúlegan vöxt fyrirtækis síns, kynlífstækja-
verslunarinnar Blush.
Hugmyndina að versluninni fékk Gerður þegar
hún sjálf gekk inn í kynlífstækjaverslun 21 árs
gömul og nýkomin úr fæðingarorlofi. Þar blasti
við henni klámvídeó á stórum skjá og hún treysti
sér ekki til að leita ráða hjá karli sem vann þar við
afgreiðslu.
Hún fann að það sem hún leitaði eftir var ekki
til hér á landi og tók því málin í sínar hendur.
Hana langaði að breyta áherslu markaðarins frá
klámi í kynheilbrigði, fyrirtækið fór hægt af stað
en hefur sannarlega vaxið og ræður nú stórum
hluta markaðarins hér á landi. Nálgunin var aug-
ljóslega rétt og á hárréttum tíma. Klámiðnaður-
inn er á undanhaldi á meðan kynheilbrigði er
á allra vörum. Þökk sé því að skömm og tabú
hafa fengið að víkja fyrir opinni og heilbrigðri
umræðu. n
Út með klám og inn
með kynheilbrigði
24 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR